Segja 2,2 milljarða tjón verða af friðun hafnargarðs - og munu sækja bætur

Lóð­ar­hafar við hlið Toll­húss­ins, þar sem Minja­stofnun Íslands ákvað að skyndi­friða hafn­ar­garð í síð­asta mán­uði, telja að frið­lýs­ingin muni að lág­marki valda sér 2,2 millj­arða króna tjóni verði hún stað­fest af Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra. Lóð­ar­hafar munu sækja það tjón úr hendi Minja­stofn­unar og því myndi það lenda á rík­is­sjóði Íslands verði tjónið stað­fest. Sig­mundur Davíð hefur til 22. októ­ber að ákveða hvort hann muni stað­festa frið­lýs­ing­una eða ekki.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í bréfi lög­manns lóð­ar­hafar sem Kjarninn hefur undir höndum.

Minjastofnun færð undir forsætisráðherra


Á síð­asta þingi voru sam­þykkt lög um vernd­ar­svæði í byggð. Flutn­ings­maður þeirra var Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra. Samkvæmt lög­unum getur for­sæt­is­ráð­herra tekið ákvörðun um vernd byggðar að feng­inni til­lögu sveit­ar­stjórnar eða Minja­stofn­unar Íslands, ekki sveit­ar­fé­lögin sem byggðin er í. Minja­stofnun var færð undir for­sæt­is­ráðu­neytið þegar rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar tók við völdum. Hún heyrði áður undir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið. Var þetta gert sér­stak­lega að ósk Sig­mundar Davíðs, sem er mik­ill áhuga­maður um skipu­lags- og vernd­ar­mál. Minja­stofnun er eina eft­ir­lits­stofnun lands­ins sem heyrir undir for­sæt­is­ráðu­neytið.

Lögin hafa verið gagn­rýnd harka­lega, meðal ann­ars af Sambandi íslenskra sveita­fé­laga. Halldór Hall­dórs­son, for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, sagði í vor að frum­varpið stríði gegn skipu­lags­valdi og sjálf­stjórn­ar­rétti sveit­ar­fé­lag­anna, og að minnsta kosti sé farið mjög nálægt því að brjóta ákvæði stjórn­ar­skrár­innar með því.

Þann 7. sept­em­ber síð­ast­lið­inn ákvað Minja­stofnun að skyndi­friða hafn­ar­garða við Aust­ur­höfn­ina í Reykja­vík. Friðunin gildir í sex vikur og þarf for­sæt­is­ráð­herra að ákveða hvort garð­ur­inn verði frið­lýstur fyrir 22. októ­ber næst­kom­andi.

Heiða Kristín Helga­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, beindi fyrir­spurn til Sig­mundar Davíðs fyrir nokkrum vikum og vildi fá að vita hvort hann hefði haft ein­hverja aðkomu að skyndi­friðun garðs­ins. Fyr­ir­spurn­inni hefur enn ekki verið svarað.

[caption id="attachment_41351" align="alignnone" width="800"] Reit­irnir sem um ræðir eru í hjarta Reykja­víkur og fram­kvæmdir á þeim munu hafa mikið áhrif á brag mið­borg­ar­innar. MYND: Reykja­vik.is[/caption]

 

Stærsta byggingaverkefni til þessa í hjarta Reykjavíkur


Bygg­ing­ar­reit­ur­inn að Aust­ur­bakka 2 er um 55 þús­und fer­metrar að stærð og liggur frá Ing­ólfs­garði, yfir Geirs­götu að Tryggva­götu. Lóð­ar­hafar eru Tón­listar- og ráð­stefnu­hús ohf., Situs ehf., Kolufell ehf., Lands­bank­inn og Bíla­stæða­sjóður Reykja­víkur. Um er m.a. að ræða lóð­ina sem Harpa stendur á, lóð­ina sem lúx­us­hótel á að rísa á við hlið hennar, lóð­ina sem Lands­bank­inn hefur haft hug á að reisa sér höf­uð­stöðvar og lóð­ina við hlið Toll­húss­ins.

Á lóð­inni er gert ráð fyrir bygg­ing­areit neð­an­jarðar. Sá bygg­ing­areitur nær yfir alla lóð­ina. Um er að ræða kjall­ara á tveimur hæðum með þjón­ustu og bíla­stæðum.

Allt í allt eru níu bygg­ing­areitir á Aust­ur­bakka 2. Félagið Land­stólpar þró­un­ar­fé­lag ehf. á tvo þeirra. Í apríl 2015 var tekin fyrsta skóflustunga vegna upp­hafs fram­kvæmda á reit­unum. Í frétt á heima­síðu Reykja­vík­ur­borgar af því til­efni segir: „Fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir eru hluti af stærsta bygg­inga­verk­efni fram til þessa í hjarta Reykja­víkur. Samkvæmt deiliskipu­lagi má byggja á reitum 1 og 2 við Aust­ur­bakka, 21.400 m2 ofanjarðar. Áætlað er að þar verði íbúðir og fjöl­breytt hús­næði fyrir ýmsa atvinnu­starf­semi, s.s. versl­anir, veit­inga­hús, skrif­stofur og þjón­ustu. Auk þess verður byggður bíla­kjall­ari á reitnum sem verður sam­tengdur öðrum bíla­kjöll­urum á lóð­inni, allt að Hörpu. Áætlað að sam­eig­in­legur kjall­ari rúmi um 1.000 bíla“.

Fram­kvæmd­unum á að ljúka árið 2018 sam­kvæmt áætlun.

Skyndifriðun setur framkvæmdir í uppnám


Skyndi­friðun hafn­ar­garð­anna hefur hins vegar sett þær fram­kvæmdir í upp­nám. Hafn­ar­garð­arnir tveir eru nefni­lega á reitum Lands­stólpa. Þessir tveir hafn­ar­garðar, standi þeir frið­aðir, koma bein­línis í veg fyrir að hægt veðri að byggja neð­an­jarðar.

Gamli garð­ur­inn telst sann­ar­lega til forn­leifa, þar sem hann er yfir 100 ára gam­all. Minja­stofnun hafði í ágúst til­kynnt lóð­ar­hafar að hann ætti því að standa en að heim­ilt væri að hylja hann að fullu, sem lóð­ar­haf­ar­sam­þykktu.

Hinn garð­ur­inn, sá nýrri, var reistur 1928 og er því ekki forn­minjar sam­kvæmt 100 ára skil­grein­ing­unni. Umræddur garður stóð auk þess í tíu ár eftir að hann var byggður. Þennan garð stóð til að fjar­lægja. Þrátt fyrir þetta til­kynnti Minja­stofnun um skyndi­friðun alls garðs­ins án afmörk­unar 7. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

2,2 milljarða króna tjón sótt til Minjastofnunar


Kjarninn hefur undir höndum bréf lög­manns Lands­stólpa til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins vegna skyndi­frið­un­ar­innar, dag­sett 9. októ­ber. Í því segir að Lands­stólpi hafi í tveimur bréfum til Minja­stofn­unar, dag­sett 8. og 21. sept­em­ber, gert „alvar­legar athuga­semdir við máls­með­ferð stofn­un­ar­innar“. Að mati lög­manns­ins er máls­með­ferðin and­stæð stjórn­sýslu­lögum. And­mæla­réttur hafi ekki verið virtur né hafi með­al­hófs­reglu verið fylgt. Auk þess telur hann ljóst að skyndi­friðun feli í sér skerð­ingu á mann­rétt­indum skjól­stæð­inga sinna þar sem hún sé í and­stöðu við eign­ar­rétt­ar­á­kvæði stjórn­ar­skrár Íslands.

Í bréf­inu segir: „Ljóst er að kom til þess að ráð­herra taki ákvörðun um frið­lýs­ingu nýja garðs­ins sam­kvæmt til­lögu Minja­stofn­unar er óhjá­kvæmi­legt að sú ákvörðun mun valda umbjóð­anda okkar gríð­ar­legu tjóni. Minn skal á varð­andi skaða­bætur vegna slíkrar ákvörð­unar að það er meg­in­regla eigna­réttar að komi til skerð­ingar þeirra skuli fullt verð koma fyrir[...]Allt það tjón sem hlýst af þess­ari fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmd verður því sótt úr hendi Minja­stofn­unar[...]Í því efni dugar hvorki fyrir Minja­stofnun né ráð­herra að vísa á önnur stjórn­völd, þar sem tjónið mun leiða af ákvörðun ráð­herra um frið­lýs­ingu“.

Að mati lög­manns­ins yrði heild­ar­tjón Lands­stólpa vegna ákvörð­unar um frið­lýs­ingu að lág­marki verða 2,2 millj­arðar króna. „Er þá ótalið tjón ann­arra sam­eig­enda lóð­ar­innar sem og allur kostn­aður sem myndi hljót­ast af slíkri máls­með­ferð“.

Skýr­ingin birt­ist fyrst 16. októ­ber kl. 10.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár