Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykkja verkfall

Meiri­hluti félags­manna í Lands­sam­bandi slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna hefur sam­þykkt boðun verk­falls­að­gerða.

Mikill meiri­hluti félags­manna í Lands­sam­bandi slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna (LSS) sam­þykkti boðun verk­falls­að­gerða í atkvæða­greiðslu sem fram fór dag­ana 18. til 21. febr­úar.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá BSRB í dag.

Alls sam­þykktu 79,9 pró­sent þeirra sem greiddu atkvæði verk­falls­boð­un­ina. Þátttaka í atkvæða­greiðsl­unni var afar góð, sam­kvæmt BSRB, en um 68,4 pró­sent þeirra sem voru á kjör­skrá greiddu atkvæði.

Aðgerðir LSS bein­ast bæði að rík­inu og sveit­ar­fé­lögum í land­inu og hefj­ast þriðju­dag­inn 10. mars næst­kom­andi.

[adspot]

Samhliða aðgerðum annarra aðildarfélaga BSRB

„Aðgerð­irnar verða tíma­settar sam­hliða aðgerðum ann­arra aðild­ar­fé­laga BSRB sem boðað hafa til verk­falls­að­gerða frá 9. mars næst­kom­andi. Alls hafa nú sextán aðild­ar­fé­lög banda­lags­ins til­kynnt við­semj­endum um umfangs­miklar verk­falls­að­gerðir sem ná munu hámarki með ótíma­bundnu alls­herj­ar­verk­falli þann 15. apríl næst­kom­andi, tak­ist samn­ingar ekki fyrir þann tíma,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Samkvæmt BSRB má skipta boð­uðum aðgerðum í tvo flokka. Í fyrsta lagi mun þorri félags­manna hjá rík­inu, Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga og Reykja­vík­ur­borg leggja niður störf á ákveðnum dögum. Þessi hópur mun leggja niður störf dag­ana 9. og 10. mars, 17. og 18. mars, 24. og 26. mars og 31. mars og 1. apríl. Félagar í LSS munu leggja niður störf dag­ana 10. mars, 18. mars, 26. mars og 1. apríl.

Í öðru lagi munu smærri hópar félags­manna ákveð­inna aðild­ar­fé­laga verða í ótíma­bundnu verk­falli frá og með 9. mars. Í þeim hópi eru meðal ann­ars starfs­menn í grunn­skólum og leið­bein­endur á frí­stunda­heim­ilum á nær öllu höf­uð­borg­ar­svæð­inu auk Akraness auk starfs­manna hjá Skatt­inum og sýslu­manns­emb­ættum um allt land.

Þessar aðgerðir munu halda áfram fram í dymbil­viku, en hafi samn­ingar ekki tek­ist fyrir 15. apríl munu félags­menn sextán aðild­ar­fé­laga BSRB sem starfa hjá ríki og sveit­ar­fé­lögum fara í ótíma­bundið alls­herj­ar­verk­fall þar til samn­ingar hafa tek­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár