Óútskýrt af hverju boðsferð bankastjóra er ekki brot á reglum

Samkvæmt reglum Lands­bank­ans þarf reglu­vörður bank­ans að sam­þykkja allar boðs­ferðir starfs­manna.

Styrking á tengslum
Styrking á tengslum Samkvæmt svari frá Lands­bank­anum styrkti boðs­ferð Lilju Bjarkar Ein­ars­dóttur tengsl bank­ans við Visa Europe.

 

Lands­bank­inn hefur ekki svarað því nákvæm­lega hvernig boðs­ferð banka­stjór­ans, Lilju Bjarkar Ein­ars­dóttur, á lands­leik Íslands og Argent­ínu í Rúss­landi „þjónar við­skipta­hags­munum bank­ans“. Eins og Stundin greindi frá í síð­ustu viku bauð alþjóð­lega geiðslu­korta­fyr­ir­tækið Visa Europe banka­stjóra rík­is­bank­ans Lands­banka í nokk­urra daga ferð til Rúss­lands um liðna helgi. Ísland spil­aði við Argent­ínu í Moskvu laug­ar­dag­inn 16. júní.

Visa Europe er alþjóð­legt greiðslu­korta­fyr­ir­tæki í eigu Visa Inc. Það félag keypti Visa Europe af útgef­endum Visa-greiðslu­korta í Evrópu, meðal ann­ars íslensku fyr­ir­tækj­unum Borgun og Valitor árið 2016. Lands­bank­inn átti stóra hluti í Borgun og Valitor en seldi báða hlut­ina á und­ir­verði árið 2014. Sala Lands­bank­ans á Borgun varð að hneyksl­is­máli á árunum eftir 2014 þar sem hluta­bréfin voru seld á und­ir­verði og hafa kaup­endur þeirra hagn­ast vel á bréf­unum. Tekið skal fram að Lilja Björk var ekki banka­stjóri þegar þetta var. 

Boðsferð styrkir tengslin

Í svörum frá Lands­bank­anum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár