Rúmlega 17.000 skora á stjórnvöld að hætta við brottvísun

„Í Pakistan bíður þeirra ekk­ert nema óvissa en þangað hefur dreng­ur­inn aldrei komið og for­eldr­arnir ekki í tíu ár. Þau hafa ástæðu til að ótt­ast hvað tekur við þeim í Pakistan og staða barns­ins verður miklu verri en hér á landi.“

Yfir 17.200 manns hafa skrifað undir áskorun þess efnis að íslensk stjórn­völd virði Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna og hætti við brott­vísun Muhammeds Zohair Faisal og fjöl­skyldu hans á morgun, 3. febr­úar.

Haldinn var sér­stakur fundur í dag á skóla­lóð Vest­ur­bæj­ar­skóla til að sýna sam­stöðu og kær­leik og til að sýna stjórn­völdum að brott­vís­unin væri ekki það sem fólkið vildi. Eftir fund­inn verða und­ir­skrift­irnar afhentar niðri í dóms­mála­ráðu­neyti klukkan 15:30.

Í áskor­un­inni segir að í Pakistan bíði þeirra ekk­ert nema óvissa en þangað hafi dreng­ur­inn aldrei komið og for­eldr­arnir ekki í tíu ár. Þau hafi ástæðu til að ótt­ast hvað tekur við þeim í Pakistan og staða barns­ins verði miklu verri en hér á landi.

Einstaklega heillandi strákur, brosmildur, hlýr og lífsglaður

„Muhammed er ein­stak­lega heill­andi strákur, brosmildur, hlýr og lífs­glaður. Hér hefur Muhammed búið í meira en tvö ár og tengst sam­fé­lag­inu sterkum böndum. Hann er búinn að eign­ast marga vini, leik­skóla­fé­laga á Dverga­steini og skóla­fé­laga í Vest­ur­bæj­ar­skóla og Skýja­borgum. Hann talar lýta­lausa íslensku, er frá­bær náms­maður svo eftir er tekið og hefur tek­ist að bræða hjörtu allra þeirra sem hafa kynnst honum,“ segir í áskor­un­inni.

Þá er bent á að Barna­sátt­mál­inn kveði á um að það sem barni er fyrir bestu skuli ávallt hafa for­gang í ákvörð­unum stjórn­valda. Það feli meðal ann­ars í sér að tryggja líf barns, þroska og öryggi, óháð laga­legri stöðu eða athafna for­eldra hans eða hennar.

Þegar máls­með­ferð ungs barns hefur staðið yfir í rúm­lega tvö ár beri stjórn­völd ríkar skyldur gagn­vart barn­inu, sem dvalið hefur hér stóran hluta ævi sinnar og aldrei séð heima­land for­eldr­anna. „Íslensk stjórn­völd hafa gefið það út að Ísland skuli verða besta land í heimi fyrir börn. Sýnum það í verki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár