Dánartíðni vegna COVID-19 hærri hjá ómenntuðum en menntuðum á Ítalíu

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur leikið Ítalíu grátt en það var fyrsta Evr­ópu­landið til að glíma við mikla útbreiðslu veirunnar. Í mars­mán­uði jókst munur á dán­ar­tíðni mennt­aðra og ómennt­aðra þar í landi vegna veirunnar.

Tæplega 35 þúsund hafa látist af völdum COVID-19 á Ítalíu
Tæplega 35 þús­und hafa lát­ist af völdum COVID-19 á Ítalíu Mynd: EPA

Dán­ar­tíðni af völdum COVID-19 á Ítalíu er hærri meðal fátækra íbúa lands­ins heldur en hjá þeim sem hærri hafa tekj­urnar. Þetta eru nið­ur­stöður fyrstu rann­sóknar sem þar­lend yfir­völd gera á félags­legum áhrifum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins en frá þessu er sagt í frétt Reuters.

Í árlegri skýrslu Instituto Nazionale di Statistica (ISTAT), sem hefur svip­uðu hlut­verki að gegna og Hag­stofan hér­lendis, er dán­ar­tíðni skoðuð frá jan­úar 2019 til mars 2020. Í skýrsl­unni er sér­stak­lega horft til mennt­un­ar­stigs þeirra sem hafa lát­ist hafa á tíma­bil­inu.

Að jafn­aði eru lífslíkur meðal þeirra sem hætta skóla­göngu snemma minni heldur en meðal þeirra sem eru lang­skóla­gengnir og dán­ar­tíðni meðal ómennt­aðra sé því hærri en hjá mennt­uðum. Í skýrsl­unni kemur fram að munur á dán­ar­tíðni milli þess­ara hópa hafi hald­ist stöð­ugur frá jan­úar í fyrra fram í febr­úar í ár. Í mars hafi mun­ur­inn hins vegar auk­ist á þeim svæðum sem illa urðu fyrir barð­inu á veirunni.

Haft er eftir Lindu Sabbad­ini, töl­fræð­ingi hjá ISTAT, að gögn um menntun væru aðgengi­legri en gögn um tekjur og aðra félags­lega þætti. Að hennar mati hafi því verið góð nálgun að líta til mennt­un­ar­stigs, en af því ráð­ast tekjur og stétt­ar­staða að miklu leyti.

Lág­tekju­hópar eru taldir hafa verið ber­skjald­aðri fyrir veirunni vegna þess að lág­tekju­fólk sé lík­legra til þess að sinna störfum sem krefj­ist við­veru , til að mynda í land­bún­aði, í kerfi almenn­ings­sam­ganga og í umönn­un­ar­störfum. Þá er lík­legra að ómenntað fólk búi þrengra og jafn­vel með mörgum öðrum, sem gerir fólki erf­ið­ara um vik að halda fjar­lægð frá öðrum.

Ekki var merkj­an­legur munur á dán­ar­tíðni ómennt­aðra sem komnir eru yfir átt­rætt og dán­ar­tíðni mennt­aðra á sama aldri. Ekki fannst heldur merkj­an­legur munur á milli dán­ar­tíðni ómennt­aðra og mennt­aðra á þeim svæðum þar sem útbreiðsla veirunnar var lítil.

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur leikið Ítalíu grátt en það var fyrsta Evr­ópu­landið til að glíma við mikla útbreiðslu veirunnar. Fjöldi smit­aðra jókst hratt strax eftir að veiran greind­ist þar fyrst þann 21. febr­úar síð­ast­lið­inn og náði fjöldi nýgreindra smita hámarki í lok mars. Alls hafa 240 þús­und greinst með veiruna þar í landi og sam­tals hafa tæp­lega 35 þús­und lát­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár