Huldufé bak við fund Sigmundar Davíðs og Repúblikana

Jane Mayer, blaða­maður hjá The New Yorker, segir millj­arða­mær­inga fjármagna samtökin Turning Point sem borguðu Norður­landaferð hóps Repúblikana að hitta formann Miðflokksins og fleira áhrifa­fólk af hægri vængnum. Hún hefur rannsakað net Charles Koch sem nær til Íslands. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur ekki svarað því hver greiddi ferð hans.

Jane Mayer
Jane Mayer Rann­sókn­ar­blaða­maður The New Yorker rakti pen­inga­slóð Koch-bræðra í bók sinni, Dark Money. Mynd: AFP

Rannsóknar­blaða­maðurinn Jane Mayer hjá The New Yorker segir í viðtali við Heimildina að huldufé bandarískra milljarðamæringa hafi greitt fyrir ferð hátt­settra Repúblikana til að funda með formanni Miðflokksins og öðru áhrifa­fólki af hægri væng stjórn­mála Norður­landa síðasta sumar.

Í samtali við Heimildina segir hún að markmið milljarðamæringanna sé að draga úr trú almennings á að loftslags­breytingar séu raun­verulegar, enda hafi þeir mikilla hagsmuna að gæta í olíu­iðnaðinum. Þá þrýsti þeir á minni takmarkanir á viðskipta­frelsi alþjóðlegra stór­fyrirtækja og lægri skatta á þá ríku.

Mayer hefur rannsakað fjármál og spillingu í bandarískum stjórn­málum og hlotið fjölda verðlauna fyrir störf sín. Árið 2016 gaf hún út bókina Dark Money, þar sem hún skoðaði styrk­veitingar bræðranna Charles og David Koch í stjórn­málum, en þeir eru meðal helstu aðila bak við net hugveitna og stofnana sem teygja anga sína til Íslands.

Eins og Heimildin hefur greint frá sótti Sigmundur …

Kjósa
71
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Og þetta er Miðflokkurinn !!!
    0
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Mig langar að benda á heimildarmyndina,
    Everything Is a Rich Man’s Trick, sem, að mínu mati, útskýrir á mannamáli hvernig atvik fortíðarinnar koma okkur í koll í dag. (linkur hér)
    https://youtu.be/4oVpt_I9iQQ?si=jC5NUuFFhsoEQs5j
    2
    • Greg Hill skrifaði
      Ég horfði á myndina en varð að lokum fyrir vonbrigðum því hún notar sama bragð og hún sakar ofurríka um: að blanda saman sannleika og lygum. Sannleikurinn öðlast traust fólks, svo það gleypir nokkrar lygar. Til dæmis, eins og nokkrir álitsgjafar hafa bent á, á einum tímapunkti í myndinni er fáránleg verðbólguspá upp á 25 milljónir Bandaríkjadala á sjöunda áratugnum sem jafngildir 250 billjónum þegar myndin var gerð (ég man ekki nákvæmar tölur en athugasemdirnar sýna það). Ef þú fylgist vel með eru margar fleiri lygar og órökstuddar fullyrðingar. Bók Marks Lane, „Rush to Judgment“, er miklu betri til að greina morðið á Kennedy.
      0
  • Bergljót Davíðsdóttir skrifaði
    Spyr mig hvað er að baki þegar fólk gengur í Miðflokkinn. Er það að þar nái þeir sætum neðar á lista, eða er það virkilega skoðun þeirra sem ganga í flokki fasismi sé það eina rétta. Burt með landflótta manneskjur, höldum þjóðernisrembingnum á lofti. Eiga fátækir að svelta. Hvað er það eiginleg sem fær þokkalega greindar mannelskur til að vera með þessum skelfilegu fasisikar áherslur? Eru þeir að hugsa um eigin hag en ekki heildarinnar sem þeir sem bjóða sig fram til áhrifa ber skylda til að gera einmitt það. Velferð heildarinnar en ekki eiginn hag.
    13
  • HÖ
    Hreiðar Ögmundsson skrifaði
    Fólk með þessar tilhneygingar hefur orðið appelsínugult í framan.
    4
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Takk fyrir þessa umfjöllun. Það er afar þarft verk að afklæða Miðflokkinn svo kjósendur sjái hann í viðurstyggilegri MAGA, öfga-hægri nekt sinni.
    24
    • ÓRÁ
      Óli Rúnar Ástþórsson skrifaði
      Er hugmyndafræðin ekki bara Trump í torfkofa?
      5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði umfjöllun Heim­ild­ar­innar um tengsl flokksins við MAGA-hreyfinguna „full­kominn þvætting“ en staðfesti fund sinn með Repúblikönum í Gautaborg. Aðrir flokks­menn hafa nú sagt frá tengslum við ECR-flokkinn og Heritage Foundation en eftir standa spurningar um hver borgaði.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár