Bankastjóri sagði Norðurál ætla að „eyðileggja" Orkubloggara

Ketill Sig­ur­jóns­son, sér­fræð­ingur í orku­málum sem hefur haldið úti Orku­blogg­inu um langt skeið, segir í nýrri færslu að banka­stjóri í íslenska banka­kerf­inu hefði haft sam­band við sig og varað sig við því að Norðurál væri að und­ir­búa her­ferð gegn hans mál­flutn­ingi. Fyr­ir­tækið væri að reyna að ráða almanna­tengla til verks­ins og banka­stjór­inn bætti við: „Þeir ætla sér að eyði­leggja þig“.

Ketill hefur fjallað ötul­lega um kosti lagn­ingar sæstrengs og það lága orku­verð sem erlend stór­iðju­fyr­ir­tæki greiða fyrir orku á Íslandi. Hann hefur háð marga rit­deil­una við for­svars­menn þeirra stór­iðju­fyr­ir­tækja á Íslandi, meðal ann­ars þá sem stýra málum hjá Norð­ur­áli, sem rekur álver á Grund­ar­tanga og hefur stefnt að bygg­ingu álvers í Helguvík.

Í nýj­ustu færslu sinni, sem jafn­framt er kveðju­færsla á blogg­inu, segir Ketill frá því að Norðurál hafi reynt ýmis­legt til að hafa áhrif á hann í gegnum tíð­ina. Meðal ann­ars hafi Ágúst Hafberg, fram­kvæmda­stjóri hjá fyr­ir­tæk­inu, sent honum tölvu­póst um á árinu 2013 til að reyna að fá hann til að vinna fyrir sig verk­efni, í kjöl­far þess að Ketill hafði gagn­rýnt orku­sölu til álvera í frétta­skýr­inga­þætti á RÚV. „Allt í einu vildi álfyr­ir­tækið fá mig til að útvega því upp­lýs­ingar. M.ö.o. að vinna fyrir sig verk­efni," segir Ketill í færsl­unni. Hægt er að lesa umræddan tölvu­póst hér.

Síðan segir hann: „Það var athygl­is­vert að um mitt ár 2014 hafði sam­band við mig þaul­reyndur fram­kvæmda­stjóri hjá einu af stærstu íslensku fjár­mála­fyr­ir­tækj­unum. Og sagði mér að for­stjóri Norð­ur­áls væri að hringja í stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins og kvarta yfir sam­starfi þeirra við mig. Þetta þótti mér auð­vitað merki­legt, enda nokkuð und­ar­legt að fyr­ir­tæki úti í bæ sé að skipta sér af ein­stak­lingum með þessum hætti.

Það var svo í júní á liðnu ári, 2015, að einn af banka­stjór­unum í íslenska banka­kerf­inu hafði sam­band við mig. Og var­aði mig við því að Norðurál væri að und­ir­búa her­ferð gegn mínum mál­flutn­ingi. Og væri að reyna að ráða almanna­tengla til verks­ins. Og við­kom­andi bætti við þessum skemmti­legu orðum: „Þeir ætla sér að eyði­leggja þig“.

Þetta þótti mér líka fróð­legt að heyra. Því með þessu fékk ég í reynd stað­fest að ég var að birta upp­lýs­ingar sem stór­iðjan vill ekki að almenn­ingur viti af. Hér er líka vert að minna á blekk­inga­leik­inn sem átti sér stað árið 2009 og sýnir vel hversu sterkur áróður stór­iðj­unnar er. En nú var sem sagt orðið aug­ljóst að ég var orð­inn upp­lýs­inga­brunnur sem stór­iðjan vildi kæfa."

Ruglukollar spretta fram með áróðursskrif

Ketill segir svo að miðað við „ruglu­koll­anna" sem sprottið hefðu fram í kjöl­farið með áróð­urs­skrif fyrir stór­iðju og gegn sæstreng virð­ist Norð­ur­áli hafa gengið hálf illa að fá fag­fólk til verks­ins. Þar á hann við hóp sem Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, ræddi einnig um á for­dæma­lausum blaða­manna­fundi sem hann hélt í des­em­ber síð­ast­liðnum þar sem kom skýrt fram í máli hans að hann teldi Norðurál, og eig­endur þess, vera að beita öllum mögu­legum með­ulum til að halda orku­verði til sín sem lægstu. Auk þess sagði Hörður: „Það er hins vegar alveg rétt að það hafa komið upp hópar manna sem hafa áður ekki tengst orku­um­ræðu inn í umræð­una. Þeir hafa verið kynntir í við­tölum sem ráð­gjafar Norð­ur­áls.“

Þessi hópur sem Hörður talar um er leiddur af manni sem heitir Viðar Garð­ars­son, við­skipta­fræð­ingi og mark­aðs­ráð­gjafa, sem blandað hefur sér af miklu afli í umræður um orku­mál að und­an­förnu. Viðar er á meðal þeirra sem heldur úti vett­vangnum „Auð­lind­irnar okkar“ á Facebook, vef­miðl­inum Veggnum og skrifar pistla á vef mbl.is. Í skrifum Viðars og ann­arra á þessum síðum er talað fyrir lægra orku­verði til stór­iðju, lengri orku­sölu­samn­ingum og gegn lagn­ingu sæstrengs til Bret­lands. Þá var Viðar til við­tals í fréttum Stöðvar 2 í byrjun des­em­ber 2015. Í kynn­ingu þeirrar fréttar kom fram að Viðar hafi unnið fyrir Norðurál. Í þeirri frétt sagði Viðar að hótun Rio Tinto um að loka álver­inu í Straums­vík í tengslum við vinnu­deilu sem þar hefur geisað hafi verið sett fram vegna þungs rekst­urs, sem megi rekja til of hás orku­verðs.

Hörður sagði þennan hóp og skrif þeirra ekki trufla Lands­virkjun mikið og að samn­ings­við­ræður við Norðurál stæðu yfir þrátt þessa stöðu. Þær væru alls ekki í upp­námi. „En það er tek­ist á.“

Yfirburðarstaða stóriðju gagnvart einstaklingi

Ketill segir í færslu sinni í dag að það væri þó þannig að það virð­ist þríf­ast mikil und­ir­gefni gagn­vart Norð­ur­áli og öðrum stór­iðju­fyr­ir­tækjum á Íslandi. Hann hafi því ákveðið að draga sig í hlé frá umfjöllun um þau, og hætta skrifum á Orku­blogg­inu, enda séu þessi útlendu stór­iðju­fyr­ir­tæki „með mikla veltu og kaupa hér marg­vís­lega þjón­ustu. Og það eitt og sér skapar þeim völd. Hvað við­víkur mér, þá er þarna um að ræða því­líka yfir­burð­ar­stöðu að ein­stak­lingur getur ekki til lengdar verið í því hlut­verki að upp­lýsa um hið sanna um við­skiptaum­hverfi og starfs­að­ferðir þess­ara fyr­ir­tækja."

Þess í stað hyggst hann nú alfarið ein­beita sér að alþjóð­legri ráð­gjöf á sviði orku­mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár