Íslendingar plataðir þegar tvísköttunarsamningar voru gerðir

Sigurður Ingólfsson.
Sigurður Ing­ólfs­son. Mynd: RÚV/Skjáskot

Sigurður Ing­ólfs­son, sem var for­maður starfs­hóps sem falið var að skoða umfang aflandseigna Íslend­inga og skila skýrslu um málið, segir að mörgum sem til þekkja finn­ist sem Íslend­ingar hafi verið plat­aðir við gerð tví­skött­un­ar­samn­inga við Holland og Lúx­em­borg. Samn­ing­arnir voru gerðir 1999 og 2002 og áttu meðal ann­ars að liðka fyrir erlendri fjár­fest­ingu hér­lendis. Þeir voru hins vegar fyrst og síð­ast nýttir af Íslend­ingum til þess að kom­ast hjá því að greiða skatta á Íslandi með stofnun skúffu­fé­laga í Hollandi og Lúx­em­borg. Þetta kemur fram í umfjöllun Kast­ljóss um aflandseigna­skýrsl­una sem sýnd verður í kvöld.

Í skýrsl­unni, sem var birt 6. jan­úar síð­ast­lið­inn en hafði þá verið til­búin frá því um miðjan sept­em­ber 2016, kom fram að stökk­breyt­ing hafi orðið á flæði fjár til aflands- og lág­skatta­svæða á fyrsta ára­tug þess­arar aldar, og fjöldi aflands­fé­laga í eigu Íslend­inga fer­tug­fald­að­ist frá árinu 1999 og fram að hruni. Eignir í stýr­ingu íslensku bank­anna í Lúx­em­borg 46-föld­uð­ust á sama tíma­bili. Upp­safnað umfang eigna Íslend­inga á aflands­svæðum frá árinu 1990 til 2015 nemur ein­hvers staðar á bil­inu 350 til 810 millj­örðum króna, og tekju­tap hins opin­bera á árunum 2006 til 2014 nemur lík­lega um 56 millj­örðum króna. Á hverju ári gæti tapið vegna van­tal­inna skatta verið á bil­inu 4,6 til 15,5 millj­arðar króna.

Afland­svæð­ingin á íslenskum eignum var að öðrum þræði „þjóð­ern­issinnuð“ segja skýrslu­höf­undar, vegna þess að aflands­fé­lögin fjár­festu í stórum stíl á Íslandi. Til dæmis var meiri­hluti úrvals­vísi­tölu Kaup­hall­ar­innar, eða 56%, í eigu aflands­fé­laga í árs­lok 2007, eða um 1.500 millj­arðar króna. Félögin voru að lang­mestu leyti í eigum Íslend­inga, og það sama gilti um óskráð félög í aflandseign­ar­haldi. Á þessum tíma er lík­legt að um 70 pró­sent eigna­safns í eigna­stýr­ingu íslensku bank­anna í Lúx­em­borg hafi verið bundin í íslenskum hluta­bréfum. Þetta var nátengt mik­illi inn­lendri eigna­verðs­þenslu, útlána­vexti og rót­tækri fjár­mála­væð­ingu íslensks sam­fé­lags á þessum tíma, segir í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár