Allir sekir í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis

Fimm menn voru í dag fundnir sekir fyrir mark­aðs­mis­notkun sem átti sér stað í Glitni fyrir hrun. Lárusi Welding var ekki gerð frek­ari refs­ing þar sem hann hefur þegar sprengt refsirammann.

Lögmenn sakborninga við dómsuppsögu í dag. Sakborningarnir sjálfir mættu ekki.
Lögmenn sak­born­inga við dóms­upp­sögu í dag. Sak­born­ing­arnir sjálfir mættu ekki. Mynd: Fanney Birna Jónsdóttir

Fimm menn voru í dag fundnir sekir í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Glitnis í hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Þeir eru Lárus Welding, fyrr­ver­and­i ­for­stjóri Glitn­is, Jóhannes Bald­urs­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri ­fyr­ir­tækja­sviðs Glitn­is, og þrír fyrr­ver­andi miðl­ar­ar, þeir Jónas Guð­munds­son, Val­garð Már Val­garðs­son og Pétur Jón­as­son.

Lárusi var ekki gerð frek­ari refs­ing en hann hefur þegar hlotið sex ára dóm í öðrum málum, sem er hámarks­refsirammi. Jóhannes hlaut eins árs dóm, Jónas hlaut eins árs skil­orðs­bundin dóm, Valgar var dæmdur í níu mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi og Pétur í sex mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi.

Málið snýst um atburði sem áttu sér stað fyrir um ára­tug síð­an. Ákæran í mál­inu var gefin út í mars í 2016. Með útgáfu hennar var það stað­fest að rök­studdur grunur væri um að allir stóru bank­arnir þrír hafi stundað umfangs­mikla mark­aðs­mis­notkun fyrir hrun. Raunar er það meira en rök­studdur grun­ur. Þegar hafa fallið þungir dómar vegna mark­aðs­mis­notk­unar í Glitni, Lands­banka Íslands og Kaup­þingi.

Hægt er að lesa ákæruna hér í heild sinni.

Umfangsmikil og þaulskipulögð brot

Í ákærunni sagði að meint brot hinna ákærðu hafi verið mjög um­fangs­mik­il, þaul­skipu­lögð, hafi staðið yfir í langan tíma og hafi varð­að gríð­ar­lega háar fjár­hæð­ir. Þar var til­greint að hinir ákærðu hefðu með­ ­skipu­lögðum hætti keypt gríð­ar­legt magn af bréfum í Glitni til að halda ­mark­aðs­verði þeirra uppi.

Lárusi var síðan gefið að hafa losað um hlut­ina, og með­ því mis­notað aðstöðu sína sem for­stjóri, með því að selja þau til félaga í eig­u margra af stærstu við­skipta­vinum bank­ans á þessum tíma og alls 14 félaga í eig­u ­stjórn­enda Glitn­is.

Í nán­ast öllum til­vikum lán­aði Glitnir að fullu fyr­ir­ ­kaup­unum og tók ein­ungis veð í bréf­unum sem var verið að selja. Mark­aðs­á­hætta þeirra var því áfram að fullu hjá Glitni.

Hér­aðs­sak­sókn­ari hélt því fram í ákæru að menn­irnir fimm hafi allir haft „veru­lega ­per­sónu­lega hags­muni“ af því að verð á hluta­bréfum í Glitni héld­ist hátt, auk þess sem Lárus Welding hefði haft mikla hags­muni að halda vel­laun­uðu starf­i sínu í bank­an­um. Lárus hafi ekki átt hlut í Glitni en hann hafi hins vegar gert ­kaup­rétt­ar­samn­ing þegar hann skrif­aði undir ráðn­ing­ar­samn­ing árið 2007, þá rétt ­rúm­lega þrí­tugur að aldri. Þá hafi hann fengið 300 milljón króna ein­greiðslu þegar hann réð sig til starfa hjá Glitni og átti að fá aðra slíka 1. febr­úar 2009.

Hinir starfs­menn­irnir fjórir áttu allir hlut í Glitni eða ­kaup­rétti. Einn miðlar­anna, Val­garð Már, fékk 20 millj­óna króna ráðn­ing­ar­bónus þeg­ar hann réð sig þangað frá Kaup­þingi í ágúst 2007. Hann átti þá einn mánuð í að verða 27 ára gam­all.

Dæmdir í Stím-málinu

Tveir hinna ákærðu, Lárus og Jóhannes, hafa áður hlotið þunga dóma vegna hrun­mála. Lárus var dæmdur í fimm ára fang­elsi í hér­aðs­dómi í svoköll­uðu Stím-máli í des­em­ber síð­ast­liðnum. Jóhannes hlaut tveggja ára dóm í sama máli. Þeirri nið­ur­stöðu hefur verið áfrýjað til æðra dóm­stigs.

Í því máli voru þeir, ásamt Þorvaldi Lúðvík Sig­ur­jóns­syni sem hlaut 18 mán­aða dóm, ákærðir vegna lán­veit­inga sem Glitnir veitti Stími til að kaupa hlutafé í bank­an­um, en hluta­bréfa­­kaup Stíms í Glitni og FL Group námu tæpum 25 millj­­örðum króna. Kaupin voru að stórum hluta fjár­­­mögnuð með láni frá Glitni og hluta­bréfin sjálf voru eina veð­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár