Ámælisvert að farið sé í húsnæðisátak án fullnægjandi þarfagreiningar

Minni­hluti vel­ferð­ar­nefndar gagn­rýnir harð­lega vinnu­brögð félags- og barna­mála­ráð­herra við fram­lagn­ingu frum­varps um breyt­ingar á lögum um almennar leigu­í­búðir og leggst minni­hlut­inn gegn því að frum­varpið verði sam­þykkt.

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkarinnar og formaður Velferðarnefndar.
Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylkar­innar og for­maður Vel­ferð­ar­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Formaður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, auk þriggja nefnd­ar­manna, leggst gegn því að frum­varp félags- og barna­mála­ráð­herra um breyt­ingar á lögum um almennar íbúðir verði sam­þykkt. Nefnd­ar­menn­irnir gagn­rýna harð­lega vinnu­brögð ráð­herra við fram­lagn­ingu frum­varps­ins og telja það jafn­framt ámæl­is­vert að stjórn­völd grípi til átaks á hús­næð­is­mark­aði án þess að fari fram full­nægj­andi þarfa­grein­ing.

Jafn­framt telur nefndin hættu á að hækkun tekju- og eign­ar­marka leigj­enda í almennum íbúðum verði á kostnað þeirra allra tekju­lægstu og þeirra sem séu í mestri þörf. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nefnd­ar­á­liti minni­hlut­ans um frum­varpið

Miðist við tekjur í tveimur lægstu tekjufimmtungunum

[links]Ein stærsta breyt­ingin sem lögð er til í frum­varp­inu er hækkun tekju- og eigna­marka leigj­enda almennra íbúða. Í núgild­andi lögum um almennar íbúðir er kveðið á um hve há tekju- og eigna­mörk leigj­enda megi vera og mið­ast þau mörk nú við neðri fjórð­ungs­mörk, 25 pró­sent, reglu­legra heild­ar­launa full­vinn­andi ein­stak­linga. Það eru sömu tekju- og eigna­mörk og gilt hafa um leigj­endur félags­legra leigu­í­búða sem fjár­magn­aðar hafa verið með lánum með sér­stökum vaxta­kjörum frá Íbúða­lána­sjóði.

Með frum­varpi félags­mála­ráð­herra er lögð til sú breyt­ing að tekju- og eigna­mörk verði hækkuð þannig að þau mið­ist við tekjur í tveimur lægstu tekju­fimmt­ung­unum, 40 pró­sent. [adspot]

Í nefnd­ar­á­liti minni­hlut­ans er bent á að frum­varpið er liður í stuðn­ingi stjórn­valda við lífs­kjara­samn­ing­ana svoköll­uðu sem und­ir­rit­aðar voru í apríl. Nefndin segir að kjara­samn­ing­arnir hafi ein­ungis verið gerðir við hinar vinn­andi stéttir en að frum­varpið hafi einnig áhrif á hinn almenna fast­eigna­eig­anda sem og þeim hópi sem hækk­andi leigu­verð hefur komið hvað harð­ast niður á, öryrkjum, eldri borg­urum, atvinnu­lausum og náms­mönnum.

Telur minni­hlut­inn því ámæl­is­vert að farið sé í átak sem þetta án þess að það fari fram þarfa­grein­ing á hvar á land­inu þörfin fyrir hús­næði sé mest og hver staðan sé á almennum fast­eigna­mark­aði.

Eftir breytingarnar muni stór hópur bera skertan hlut frá borði

Minni­hlut­inn segir jafn­framt að meiri­hluti vel­ferð­ar­nefnd­ar­innar hafi ekki tekið til­lit til þeirra athuga­semda sem fram komu í umsögn Félags­bú­staða hf. sem er eig­andi langstærsta hluta félags­legra íbúða á land­inu, vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar sem þjón­ustar flesta íbúa lands­ins eða umsagna Öryrkja­banda­lags­ins og Brynju – hús­sjóðs Öryrkja­banda­lags­ins um frum­varpið.

Í umsögnum þeirra var bent á að frum­varpið feli í sér mikla fjölgun þeirra ein­stak­linga sem munu eiga kost á almennum íbúðum vegna hækk­unar tekju- og eigna­marka og vegna áforma um byggða­fram­lög þar sem skortur er á leigu­hús­næði. Lýst er yfir áhyggjum um að slíkar breyt­ingar gætu haft þau áhrif að sá hópur sem til þessa hefur átt rétt á félags­legu hús­næði beri skertan hlut frá borði.

Félags­bú­staðir telja til mynda að ef frum­varpið nái fram að ganga þá muni félags­legar íbúðir sveit­ar­fé­laga verða settar í minni for­gang fyrir árin 2020 til 2022.

Meirihlutinn fylgjandi frumvarpinu

Í áliti meiri­hlut­ans um frum­varpið er einnig fjallað um þetta, þar að segja þá skoðun að með breyt­ing­unum sé verið að lög­festa for­gang tekju­lágra ein­stak­linga á vinnu­mark­aði og slík for­gangs­röðun kunni til að mynda að vera á kostnað örorku­líf­eyr­is­þega. Meiri­hlut­inn bendir hins vegar á að fjár­magn til úthlut­unar á stofn­fram­lögum hafi verið aukið veru­lega og ætti sú aukn­ing að koma til móts við hækkun tekju- og eigna­marka.

Auk þess sé með frum­varp­inu lagt til að Íbúða­lána­sjóður skuli tíma­bundið miða við að a.m.k. tveir þriðju hlutar þess fjár­magns sem til úthlut­unar er hverju sinni renni til íbúða sem ætl­aðar eru tekju- og eigna­minni leigj­endum á vinnu­mark­aði. Lagt er til grund­vallar að ákvæðið falli úr gildi þegar stofn­fram­lögum hefur verið úthlutað til 1.534 almennra íbúða sem ætl­aðar eru tekju- og eigna­minni leigj­endum á vinnu­mark­aði.

Meiri­hlut­inn leggur því til að frum­varpið verði sam­þykkt en beinir því til félags- og barna­mála­ráð­herra að fylgj­ast sér­stak­lega með hús­næð­is­þörf öryrkja og fatl­aðs fólks sem þarf á sér­tækum búsetu­úr­ræðum að halda og bregð­ast við í sam­ræmi við þær þarfir.

Gagnrýna vinnubrögð ráðherra

Minni­hlut­inn gagn­rýnir jafn­framt harð­lega vinnu­brögð ráð­herra við fram­lagn­ingu frum­varps­ins í áliti sínu. Gagnrýnt er að umsagn­ar­að­ilar hafi aðeins fengið eina viku til að kynna sér frum­varpið og skila inn umsögn í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Jafn­framt gagn­rýnir minni­hlut­inn það harka­lega hversu seint frum­varpið er lagt fram á Alþingi. Mælt var fyrir mál­inu um miðjan nóv­em­ber eða um hálfu ári eftir að umsagn­ar­ferli lauk í sam­ráðs­gátt. Nefnd­inni hafi því ekki gef­ist nægur tími til þess að vinna lag­fær­ingar á frum­varp­inu, meðal ann­ars þar sem ekki hafi gef­ist tími til þess að kalla alla umsagn­ar­að­ila á fund nefnd­ar­innar sem gerðu alvar­legar athuga­semdir við frum­varpið.

„Það verður að telj­ast ámæl­is­vert af stjórn­völdum þegar um er að ræða eins viða­mikið mál og umfangs­miklar breyt­ingar á lögum um almennar íbúðir að standa svo að málum,“ segir í nefnd­ar­á­lit­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár