Ekki óeðlilega margar nýskráningar fyrir prófkjörið

Fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir nýskrán­ingar fyrir odd­vita­próf­kjör í Reykja­vík hafa verið á pari við önnur próf­kjör. Þátttaka í próf­kjör­inu mun minni en áður.

Þórður Þór­ar­ins­son fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir nýskrán­ingar í flokk­inn fyrir odd­vita­próf­kjör flokks­ins í Reykja­vík um liðna helgi hafa farið á pari við und­an­farin próf­kjör. Nýskrán­ingar hafi verið heldur fleiri en fyrir síð­asta próf­kjör flokks­ins árið 2016 en heldur minni en árið 2014 í borg­inni.

Þórður segir í sam­tali við Kjarnann að flokk­ur­inn gefi ekki upp nákvæmar upp­lýs­ingar um fjölda skrán­inga, hvorki um hversu margir séu skráðir í flokk­inn né um nýskrán­ingar.

Hann segir ekki um að ræða gríð­ar­legan fjölda nýskrán­inga fyrir próf­kjörið um helg­ina.

Þátt­takan í odd­vita­kjör­inu var með dræmara móti í sam­an­burði við önnur próf­kjör flokks­ins fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Nú um helg­ina kusu alls 3.885 í odd­vita­próf­kjör­inu. Árið 2013 þegar Halldór Hall­dórs­son var kjör­inn odd­viti kusu 5.075 en 7.173 árið 2010 þegar Hanna Birna Krist­jáns­dóttir var kjörin. Árið 2005 kusu 12.453 Vilhjálm Þ. Vil­hjálms­son þegar hann lagði Gísla Martein Bald­urs­son í slag um odd­vita­sæti sjálf­stæð­is­manna í borg­inni.

Þannig er ljóst að þátt­taka í próf­kjörum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík hefur farið hratt minnk­andi. Hins vegar má búast við minni þátt­töku þegar færri eru í fram­boði líkt og var nú í odd­vita­kjör­inu þegar fimm voru í fram­boði og aðeins kosið um eitt sæti á list­anum en ekki fleiri eins og áður hefur verið.

Eyþór Arnalds sigr­aði odd­vita­kjörið með miklum yfir­burðum um helg­ina með 61 pró­sent atkvæða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár