„Tók snúning“ og græddi 10 milljónir á Íslandsbanka á einni nóttu

Páll Magn­ús­son segir frá kunn­ingja sínum sem var boðið að „taka snöggan snún­ing á Íslands­banka“ 22. mars síð­ast­lið­inn. Hann seldi hlut­inn aftur morg­un­inn eftir og græddi 10 millj­ónir.

Færsla Páls hafði ekki staðið í klukkustund þegar hún hafði vakið mikla athygli og hörð viðbörgð.
Færsla Páls hafði ekki staðið í klukku­stund þegar hún hafði vakið mikla athygli og hörð við­börgð. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Að kvöldi 22. mars var hringt í vel stæðan kunn­ingja minn og spurt hvort hann vildi ekki taka snöggan snún­ing á Íslands­banka. Hann gæti lík­lega orðið 10 millj­ónum rík­ari þegar hann vakn­aði í fyrra­málið.“

Svona hefst færsla Páls Magn­ús­sonar, fyrr­ver­andi þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, titluð Sala af banka­sölu, þar sem hann segir frá kunn­ingja sínum sem keypti í Íslands­banka í lok­uðu útboði 22. mars síð­ast­lið­inn.

[links]Samkvæmt Páli var sá sem hringdi vinur kunn­ingja hans, og var sá starfs­maður hjá einum af sölu­að­ilum bréf­anna. Tilboðið þótti kunn­ingja Páls stór­snið­ugt og keypti um milljón hluti á 117 krónur, 5 króna afslætti frá síð­asta skráða mark­aðs­gengi, sem hafði verið 122 krónur. „Við fyrsta hana­gal morg­un­inn eftir seldi svo kunn­ingi minn bréfin á geng­inu 127. Loforð vinar hans frá því kvöldið áður stóðst nán­ast upp á krónu: Kunningi minn græddi um 10 millj­ónir á þessum tveimur sím­tölum; tæp­lega 1,5 millj­ónir á klukku­tíma á meðan hann svaf,“ skrifar Páll.

[adspot]Um svipað leyti og þessi kunn­ingi hans hafi fengið til­boð um að kaupa á 117 krónur hafi til­boði frá stórum líf­eyr­is­sjóði, sem vildi kaupa fyrir meira en 10 millj­arða króna á geng­inu 122 krónur, sem­sagt án afsláttar, verið hafnað.

„Svo komu menn hver um annan þveran; fjár­mála­ráð­herr­ann, Banka­sýslu­for­ingj­arnir og jafn­vel nokkrir þing­menn og útskýrðu fyrir okkur ein­feldn­ing­unum hvað þetta hefði verið gríð­ar­lega vel heppnað útboð. Einmitt.“

Færsla Páls hafði ekki staðið í klukku­stund þegar hún hafði vakið mikla athygli og hörð við­börgð. Meðal þeirra sem skrifar athuga­semd við færsl­una Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem þakkar Páli fyrir að deila sög­unni og segir það mik­il­vægt. Þá hefur Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, deilt færsl­unni og látið þessi orð fylgja: „Ætla menn svo áfram að halda því fram að það eigi ekki að skipa rann­sókn­ar­nefnd Alþingis til að kryfja þessa banka­sölu? Eigum við áfram að taka það gott og gilt að þetta verði ekki rann­sakað af þeim sem mestar rann­sókn­ar­heim­ildir hefur? Hversu mikið þarf að koma í ljós til þess að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir átti sig á að það þarf að velta við hverjum steini, en ekki bara sumum steinum."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár