Málefni Seðlabankans færast til forsætisráðuneytisins

Ýmsar breyt­ingar verða gerðar á verk­efna­skipan ráðu­neyt­anna sam­hliða því að nýtt ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar er tekið við völdum. Þetta var gert með for­seta­úr­skurði um skipt­ingu stjórn­ar­mál­efna á milli ráðu­neyta.

Málefni Seðla­banka Íslands munu flytj­ast með Bjarna úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu yfir í for­sæt­is­ráðu­neytið. Aftur á móti munu verk­efni hag­skýrslu­gerðar og upp­lýs­inga um lands­hagi, þar með talið Hagstofu Íslands, fær­ast frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu til fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Þá munu þjóð­menn­ing­ar­mál fær­ast frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og aftur til mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins, en það munu mál­efni Vísinda- og tækni­ráðs einnig gera.

Málefni Þing­valla­þjóða­garðs, nema Þing­valla­bæj­ar­ins sjálfs, munu fær­ast frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu til umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins. Neyt­enda­mál munu heyra undir atvinnu­vega­ráðu­neytið en ekki inn­an­rík­is­ráðu­neytið, og verk­efni byggða­mála verða í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu en ekki atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár