Segir Snorra kynna „mjúka útgáfu“ af rasískri samsæriskenningu

Stjórn­ar­maður í Eflingu segir það „rasíska draum­óra“ að inn­fæddum sé skipt út fyrir inn­flytj­endur. Snorri Másson, vara­for­maður Mið­flokks­ins, segir mikil menn­ing­ar­verð­mæti tap­ast ef „heima­menn“ lenda í minni­hluta á Íslandi.

Snorri Másson og Ian McDonald
Snorri Másson og Ian McDonald Vara­for­maður Mið­flokks­ins skrif­aði grein um hrun vest­rænnar sið­menn­ingar.

Stjórn­ar­maður í Eflingu segir Snorra Másson, vara­for­mann Mið­flokks­ins, boða hvíta þjóð­ern­is­hyggju og draga athygl­ina frá raun­veru­legum vanda­málum í sam­fé­lag­inu.

Snorri skrif­aði grein í Við­skipta­blaðið í vik­unni þar sem hann sagði hrun vest­rænnar sið­menn­ingar vofa yfir og „heima­menn“ lenda í minni­hluta á Íslandi að óbreyttu eftir nokkra ára­tugi. Mikil menn­ing­ar­verð­mæti muni tap­ast við það að inn­flytj­endum fjölgi á kostnað inn­fæddra.

„Snorri Másson vill að þú trúir því að lækk­andi fæð­ing­ar­tíðni á Íslandi og vax­andi inn­flytj­enda­fjöldi séu á ein­hvern hátt tengd,“ skrifar Ian McDonald, stjórn­ar­maður í Eflingu, í umræðu­hóp­inn Rauða þráð­inn á Facebook. Greinin er á ensku en til­vitn­anir í þýð­ingu blaða­manns „Við skulum kalla það það sem það er. Þetta eru ekki sam­fé­lags­legs­um­ræða. Þetta er mjúk útgáfa af sam­sær­is­kenn­ing­unni um „Great Replacement“, rasískum draum­órum um að hvítum eða „inn­fæddum“ íbúum sé skipt út fyrir útlend­inga.“

„Þetta er hvít þjóð­ern­is­hyggja klædd sem lýð­fræði­legt áhyggju­efni“

Hann …

Kjósa
100
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár