Verðbólgan yfir verðbólgumarkmið í fyrsta sinn frá því í nóvember

Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um 0,54 pró­sent í maí og verð­bólgan því komin í 2,6 pró­sent. Seðla­banki Íslands spáir því að verð­bólgan verði undir mark­miði á næst­unni en óvissa sé þó mikil.

Verðbólgan hækkaði um 0,4 prósentustig á milli mánaða.
Verð­bólgan hækk­aði um 0,4 pró­sentu­stig á milli mán­aða. Mynd: Seðlabanki Íslands

Verð­bólga mælist nú yfir verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands í fyrsta sinn síðan í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um 0,54 pró­sent í maí og mælist verð­bólga nú 2,6 pró­sent. Hún hækkar því um 0,4 pró­sentu­stig milli mán­aða. Verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans er 2,5 pró­sent.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Hagstofu Íslands segir að verð á mat og drykkj­ar­vörum hafi hækkað um 1,6 pró­sent, hús­gögn og heim­il­is­bún­aður hækkað um 2,9 pró­sent og verð á nýjum bílum hafi hækkað um 3,7 pró­sent. Lækkun var á reikn­aðri húsa­leigu um 0,6 pró­sent og verð á bens­íni og olíum lækk­aði um 3,4 pró­sent.

Krónan hefur veikst tals­vert gagn­vart helstu gjald­miðlum frá ára­mótum og í grein­ingu Íslands­banka segir að áhrif veik­ing­ar­innar hafi komið fram í verð­mæl­ingum á inn­fluttum vörum í apríl og maí.

[adspot]Í nýlegum pen­inga­málum Seðla­banka Íslands kemur fram að verð­bólgu­vænt­ingar mark­aðs­að­ila hafi ekki hækkað og hald­ast undir mark­miði. Bankinn spáir því að verð­bólga verði undir mark­miði á næst­unni og að hún hjaðni í um 1,5 pró­sent um mitt næsta ár en tak­ist svo við að þok­ast upp á við í átt að mark­miði. Þar er þó tekið fram að óvissa sé mikil.

Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu Hag­stof­unnar að mæl­ing og útreikn­ingur á vísi­tölu neyslu­verðs í maí hafi gengið vel fyrir sig. Þar skipta mestu mál aflétt­ingar á tak­mörk­unum sem gripið var til í því skyni að hefta útbreiðslu COVID-19. Fyr­ir­tæki sem höfðu þurft að loka væru nú opin.

Verð­bólgan fór yfir verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans í júní 2018 og hélst yfir mark­miði fram í nóv­em­ber 2019. Á þeim tíma reis hún hæst í 3,7 pró­sent í des­em­ber 2018. Fyrir sum­arið 2018 hafði verð­bólgan verið undir verð­bólgu­mark­miði frá því í febr­úar 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðbólga

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár