Afkoma ríkissjóðs verður neikvæð um 15 milljarða í ár

Tekjur rík­is­sjóðs í ár verða 30 millj­örðum krónum lægri en reiknað hafði verið með á fjár­lögum. Útgjöld munu verða mun hærri en fyrri áætl­anir gerðu ráð fyrir, aðal­lega vegna auk­ins kostn­aðar vegna atvinnu­leysis sem teng­ist beint gjald­þroti WOW air.

Afkoma rík­is­sjóðs verður nei­kvæð um 14,8 millj­arða króna í ár. Þegar fjár­lög fyrir árið 2019 voru sam­þykkt átti að vera umtals­verður afgangur af rík­is­rekstr­inum en ýmsar breyt­ingar, bæði á tekju- og gjalda­hlið rekst­urs­ins, hafa gert það að verkum að nið­ur­staðan verður önnur og verri.

Nið­ur­staðan er enn verri en gert var ráð fyrir í sept­em­ber, þegar fjár­laga­frum­varp fyrir 2020 var lagt fram, en þá var búist við því að afkoman myndi verða nei­kvæð um 8,8 millj­arða króna í ár.

Þetta kemur fram í frum­varpi til fjár­auka­laga sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, dreifði um helg­ina.

Tekjur 30 milljörðum lægri

Tekjur rík­is­sjóðs verða 30 millj­örðum krónum lægri en fjár­lög gerðu ráð fyrir. Þyngst vegur að fjár­magnstekju­skattur mun skila 6,2 millj­örðum krónum minna í rík­is­kass­ann en reiknað var með. Kjarninn greindi frá því í októ­ber að fjár­magnstekjur lands­manna hefðu enda dreg­ist saman úr 166 millj­örðum króna árið 2017 í tæp­lega 138 millj­arða króna í fyrra. Það er sam­dráttur upp á 17 pró­sent.

Fjár­magnstekjur eru allar vaxta­tekjur auk sölu­hagn­að­ar, arðs og tekna af atvinnu­rekstri. Skattur á fjár­magnstekjur er umtals­vert lægri en á launa­tekj­ur. Fjár­magnstekju­skattur var hækk­aður upp í 22 pró­sent í byrjun árs 2018.

Þá verða tekjur rík­is­sjóðs vegna tekju­skatts­greiðslna lög­að­ila, þ.e. félaga og fyr­ir­tækja, 5,5 millj­örðum krónum lægri en reiknað var með. Á móti kemur að tekjur vegna tekju­skatts ein­stak­linga, þ.e. vegna launa­tekna, verða 1,1 millj­arði krónum hærri en fjár­lög gerðu ráð fyrir.

Aðrar tekjur en skatt­tekjur lækka líka, alls um átta millj­arða króna, frá því sem áður var áætlað. Arð­greiðslur frá rík­is­fyr­ir­tækjum eru þar stærsta breytan, en arð­greiðslur frá bönkum verða 7,1 millj­arði krónum lægri en fjár­lög gerðu ráð fyrir. Á móti skil­aði Lands­virkjun 1,5 millj­arði krónum meira í arð en reiknað var með. „Að lokum má nefna að gert er ráð fyrir að tekjur rík­is­sjóðs af sölu los­un­ar­heim­ilda í við­skipta­kerfi ESB lækki um 0,7 ma.kr. vegna til­færslu milli ára,“ segir í fjár­auka­lögum.

Háar greiðslur vegna ólögmætrar skerðingar

Fjár­auka­lögin gera ráð fyrir að kostn­aður við rekstur rík­is­sjóðs auk­ist um 14,9 millj­arða króna á næsta ári. Þar ráða nokkrir stórir kostn­að­ar­liðir mestu. Í fyrsta lagi aukast útgjöld vegna greiðslna til öryrkja og aldr­aðra um 7,3 millj­arða króna frá fyrri áætlun. Meg­in­þorri þeirrar upp­hæðar er til­komin vegna dóms Lands­réttar um ólög­mæti aft­ur­virkrar skerð­ingar á greiðslum til elli­líf­eyr­is­þega vegna greiðslna úr skyldu­bundnum atvinnu­tengdum líf­eyr­is­sjóðum. Áætluð áhrif þessa dóms nema um 5,4 millj­örðum króna. Í fjár­auka­laga­frum­varp­inu segir: „Bætur voru skertar aft­ur­virkt með laga­breyt­ingu frá árinu 2017 þar sem verið var að leið­rétta mis­tök sem voru gerð við breyt­ingu á lögum um almanna­trygg­ingar árið áður og heim­ila áttu skerð­ingu á greiðslum til elli­líf­eyr­is­þega aft­ur­virkt um tvo mán­uði. Aft­ur­virkni lag­anna var dæmd ólög­mæt og Trygg­inga­stofnun rík­is­ins gert að greiða til baka skerð­ing­una ásamt drátt­ar­vöxtum. Alls fengu 29.000 ein­stak­lingar leið­rétt­ingu á greiðslum elli­líf­eyris fyrir jan­úar og febr­úar 2017, eða sem nemur um 190.000 kr. á hvern elli­líf­eyr­is­þega að með­al­tali. “

Í fjár­auka­lögum er einnig verið að leið­rétta örorku­bætur í sam­ræmi við álit umboðs­manns Alþingis sem varðar áhrif búsetu­tíma erlendis á rétt til örorku­líf­eyris, sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að lækkun greiðslu­hlut­falls líf­eyris vegna búsetu erlendis væri ekki í sam­ræmi við lög. Áhrif af áliti umboðs­manns nema um 800 millj­ónum króna á árinu 2019 en alls hafa 320 manns fengið leið­rétt­ingu það sem af er ári. Þá er gert ráð fyrir tæp­lega 1,5 millj­arða króna aukn­ingu fram­laga vegna halla sjúkra­trygg­inga­liða á yfir­stand­andi ári, sem ekki hefur verið brugð­ist við með við­eig­andi ráð­stöf­unum.

Þrot WOW air skilur eftir milljarðakostnað

Hinn stóri lið­ur­inn sem bítur fast í rík­is­rekst­ur­inn nú er aukin kostn­aður vegna hærra atvinnu­leysis og greiðslna úr Ábyrgð­ar­sjóði launa, aðal­lega vegna gjald­þrots WOW air sem hefur aukið veru­lega kostnað vegna beggja liða. Atvinnu­leysi stefnir í að verða 3,5 pró­sent í ár, en var 2,4 pró­sent að með­al­tali í fyrra.

Í frum­varp­inu er lagt til að fjár­heim­ild til mála­flokks­ins verði aukin um 7,6 millj­arða króna. Af þeirri upp­hæð er gert ráð fyrir að tæp­lega 6,3 millj­arðar króna fari í að mæta auknum útgjöldum Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs á yfir­stand­andi ári. Þá er er farið fram á að tæp­lega 1,3 millj­arðar króna fari til Ábyrgð­ar­sjóðs launa til að mæta auknum útgreiðslum vegna gjald­þrota fyr­ir­tækja á árinu.

Þá verða greiðslur vegna fæð­ing­ar­or­lofs verða rúm­lega 1,1 millj­arði krónum hærri en gert var ráð fyrir í fjár­lögum árs­ins en þessa aukn­ingu má helst rekja til þess að hámarks­greiðslur hafa hækkað frá fyrra ári auk þess sem for­eldrum sem taka fæð­ing­ar­or­lof hefur fjölgað umfram for­sendur fjár­laga, sem og orlofs­dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár