Aukið atvinnuleysi ógnar finnska velferðarkerfinu

Atvinnu­leysi í Finn­landi hefur náð nýjum hæðum og ekk­ert bólar á þeim 100 þús­und störfum sem stjórn­völd lof­uðu. Nið­ur­skurður í rík­is­fjár­málum hefur fækkað opin­berum störfum og sér­fræð­ingar segja óljóst hvernig bregð­ast megi við ástand­inu.

Erfið staða
Erfið staða Stöðnun í útflutn­ingi, veik neyt­enda­eft­ir­spurn og geopóli­tísk óvissa, ásamt öldrun þjóð­ar­innar, hamla vexti, að mati Henna Busk, aðal­hag­fræð­ings hjá hag­fræði­stofn­un­inni Pellervo . Mynd: Wikimedia / Ninara

Atvinnu­leysi í Finn­landi hefur auk­ist og er nú eitt það mesta innan Evr­ópu­sam­bands­ins. Þar sem engin merki eru um við­snún­ing segja sér­fræð­ingar að þetta ógni vel­ferð­ar­lík­ani lands­ins.

Inez Aulen, 29 ára, sem nýlega útskrif­að­ist með meistara­gráðu í fjöl­miðla- og sam­skipta­fræði, hefur sótt um meira en 50 störf þrátt fyrir að hafa nokk­urra ára reynslu og tala þrjú tungu­mál reiprenn­andi, sagði hún í sam­tali við AFP.

Hún hefur verið atvinnu­laus í fimm vikur en vinnu­mála­stofnun hefur sagt henni að búa sig undir að minnsta kosti sex mán­aða atvinnu­leit og jafn­vel lagt til að hún sæki um störf erlendis.

„Ég hef verið í námi og vinnu síð­ustu sex ár, svo ég hef aldrei verið í þess­ari stöðu áður,“ sagði Aulen og lýsti því sem „til­finn­inga­legum rús­sí­bana“.

Atvinnu­leysi í Finn­landi fyrir fólk á aldr­inum 15 til 74 ára náði 10,3 pró­sentum í októ­ber, sem er hæsta hlut­fall í …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár