Ekki séns að afþakka starfið

Reynir Jóhann­es­son er aðstoð­ar­sam­göngu­ráð­herra Noregs. Fyrir rúmum ára­tug var hann 18 ára bæj­ar­full­trúi fyrir Fram­fara­flokk­inn. Hann reyndi að hætta í stjórn­málum 2013 en gafst upp eftir tvær vikur þegar hann fékk til­boð sem hann gat ekki hafnað.

Reynir Jóhannesson, aðstoðarsamgönguráðherra Noregs.
Reynir Jóhann­es­son, aðstoð­ar­sam­göngu­ráð­herra Noregs. Mynd: Norska samgönguráðuneytið

Íslend­ing­ur­inn Reynir Jóhann­es­son tók rúm­lega þrí­tugur við emb­ætti aðstoð­ar­sam­göngu­mála­ráð­herra Noregs síð­asta sumar. Hann hafði þá starfað sem póli­tískur ráð­gjafi sam­göngu­ráð­herr­ans Ketil Solvik-Olsen í eitt og hálft ár, fyrir Fram­fara­flokk­inn (n. Fremskitts­partiet). 

Núver­andi rík­is­stjórn Noregs tók við kefl­inu 2013 og er borg­ara­leg minni­hluta­stjórn Hægri flokks­ins og Fram­fara­flokks­ins, með for­sæt­is­ráð­herr­ann Ernu Solberg, for­mann Hægri flokks­ins, í broddi fylk­ingar. Solvik-Olsen er vara­for­maður Fram­fara­flokks­ins.

„Ég er í raun með sama vald og ráð­herr­ann sjálfur,” segir Reynir. „Nema ég mæti ekki til kóngs­ins á föstu­dögum, ég tala ekki fyrir þingið og mæti ekki á rík­is­stjórn­ar­fundi. En ég get verið í for­svari fyrir öll önnur mál sem eru afgreidd í ráðu­neyt­inu og und­ir­skrift mín jafn­gildir und­ir­skrift ráð­herra.”

18 ára bæjarfulltúi í Noregi

Áhugi Reynis á stjórn­málum kvikn­aði snemma. Hann flutti átta ára gam­all með for­eldrum sínum frá Siglu­firði til Sandefjord í Noregi. Aðeins 18 ára að aldri var hann kos­inn bæj­ar­full­trúi Fram­fara­flokks­ins í bænum. Nokkrum árum síðar flutti hann til Íslands til að leggja stund á nám í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands. 

„Ég vann í Lands­bank­anum haustið 2008 og þá reynslu tek mér með mér út allt lífið. Að horfa upp á það sem var að ger­ast, á sama tíma og ég var að taka virkan þátt í póli­tík­inni á Íslandi, mót­aði mig mikið,” segir hann. Reynir tók virkan þátt í starfi InDefence-hóps­ins á þeim tíma. „Ég vann náið með Jóhann­esi [Þór Skúla­syni, aðstoð­ar­manni for­sæt­is­ráð­herra] við und­ir­skrift­ar­söfn­un­ina, sá um heima­síð­una og vann á net­inu við að ná inn und­ir­skriftum. Þar fann ég fyrst hversu öfl­ugt verk­færi inter­netið er.” 

[quote font="0" align="right"]Ég vann í Lands­bank­anum haustið 2008 og þá reynslu tek mér með mér út allt lífið. Að horfa upp á það sem var að ger­ast, á sama tíma og ég var að taka virkan þátt í póli­tík­inni á Íslandi, mót­aði mig mikið.[/quote]

Kom Framfaraflokknum á Netkortið

Árið 2009 flutti Reynir aftur til Noregs ásamt konu sinni, þar sem ástríða hans fyrir stjórn­málum átti heldur betur eftir að halda áfram. 

„Ég þekkti Fram­fara­flokk­inn og hann þekkti mig. Ég hóf störf sem ráð­gjafi fyrir þing­flokk­inn skömmu síðar og gerði það næstu fjögur árin,” segir hann. Námið í HÍ nýtt­ist honum vel í kosn­inga­bar­átt­unni í Noregi. „Loka­verk­efnið mitt var um blogg og stjórn­mál. Á þeim tíma vorum við aðal­lega að not­ast við MySpace, Facebook var að byrja og svo voru bloggin. Ég hjálp­aði flokknum, sér­stak­lega for­mann­inum og vara­for­mann­inum, til að byggja sig upp með notkun nets­ins og sam­fé­lags­miðla í kosn­inga­bar­átt­unni.”

„Við Ketill kynnt­umst þarna. Við unnum mikið að vid­eo­fram­leiðslu, netskrifum, bloggum og ímynd­ar­sköpun á Facebook og Twitter. Þetta er orð­inn gíf­ur­lega mik­il­vægur hluti af póli­tík­inni í dag. Vikulega erum við með sex hund­ruð þús­und til milljón Facebook-not­endur sem sjá hvað ráð­herr­ann er að gera,” segir Reynir.

Fékk nóg af pólitíkinni

Eftir árang­urs­ríkt starf Reynis við kosn­inga­bar­áttu Fram­fara­flokks­ins árið 2013 ákvað hann að þó róa á önnur mið.

„Ég var kom­inn með nóg af stjórn­málum. Eða það hélt ég. Ég tók starf hjá almanna­tengsla­fyr­ir­tæki í Osló þar sem ég átti að byggja upp staf­ræna miðlun fyrir fyr­ir­tækið og við­skipta­vini þeirra. En eftir ein­ungis tvær vikur hringdi Ketill, sem var þá nýorð­inn sam­göngu­mála­ráð­herra, og bauð mér starf sem póli­tískur ráð­gjafi. Og ég gat ekki sagt nei við því, það var ekki séns. Þetta gæti hafa verið eina tæki­færið sem mér býðst til þess að taka þátt í að stýra ráðu­neyti og landi.”

Ári síðar fékk Reynir stöðu­hækkun og var ráð­inn aðstoð­ar­ráð­herra. Hann ber nú ábyrgð á þáttum sem snúa að inter­net­inu, umhverf­is­málum í sam­göngum, hafn­ar­málum, far­síma­kerf­inu og póst­þjón­ust­unni. Þar að auki sér hann um að setja saman fjár­lög ráðu­neyt­is­ins í heild.

Þrír aðstoð­ar­ráð­herrar starfa í sam­göngu­ráðu­neyti Noregs, hver með sín ábyrgð­ar­svið. Reynir segir starfið afar frá­brugðið starfi póli­tísks ráð­gjafa, sem svipar til starfs aðstoð­ar­manns ráð­herra hér á landi.

[quote font="0" align="right"] Og ég gat ekki sagt nei við því, það var ekki séns. Þetta gæti hafa verið eina tæki­færið sem mér býðst til þess að taka þátt í stýra ráðu­neyti og landi. [/quote]

Harðastur í innflytjendamálum

Beðinn um að aðlaga Fram­fara­flokk­inn að íslenskum veru­leika, segir Reynir að hann sé eins konar blanda af Sjálf­stæð­is­flokknum og Fram­sókn­ar­flokknum. 

„Stjórn­málaum­hverfið í Noregi er mjög ólíkt því íslenska. Fram­fara­flokk­ur­inn er harður á að lækka skatta og und­ir­strikar nauð­syn þess að fara var­lega í það hversu miklum skatt­pen­ingum skal verja í vel­ferð­ar­kerfið. Svo er flokk­ur­inn þekktur fyrir að vera mjög harður í inn­flytj­enda­málum,” segir hann. „Auðvitað verður umræðan mjög hörð og ég veit af eigin reynslu að það er erfitt að útskýra þessi mál því maður er alltaf settur í ein­hvern bás og er mis­skil­inn. Ég hef ekk­ert á móti útlend­ingum heldur er flokk­ur­inn ein­ungis með harða inn­flytj­enda- og flótta­manna­stefnu. Við erum harð­asti flokk­ur­inn hvað varðar inn­flytj­endur í Noregi, þó ekki eins öfga­fullir og hörð­ustu flokk­arnir ann­ars staðar í Evrópu, eins og í Frakk­landi, Grikk­landi og Hollandi. Okkar flokkur er mjög frjáls­lyndur, en hefur samt tekið að sér þennan hluta af umræð­unni,” segir Reynir.

[quote font="0" align="right"] Við erum harð­asti flokk­ur­inn hvað varðar inn­flytj­endur í Noregi, þó ekki eins öfga­fullir og hörð­ustu flokk­arnir ann­ars staðar í Evrópu, eins og í Frakk­landi, Grikk­landi og Hollandi. [/quote]

Eitt að flytja - annað að fá hluta af kerfinu

Reynir segir grund­vall­ar­stefnu Fram­fara­flokks­ins vera lægri skattar og minni opin­ber afskipti af fólki og fyr­ir­tækjum.

„Á níunda ára­tugnum byrj­aði inn­flytj­enda­um­ræðan í Noregi og hún er enn mjög stórt mál. Í ár gætu komið á bil­inu 30.000 til 60.000 flótta­menn til lands­ins og um tíma var talið að þeir gætu orðið 100.000. Maður sá það sem gerð­ist þegar Svíar voru með tárin í aug­unum að loka landa­mær­unum og allt fór úr bönd­unum. Við þurfum að passa upp á að þeir sem koma séu raun­veru­lega að flýja stríð því hingað koma margir sem okkar stofn­anir upp­götva að búa ann­ars staðar í heim­inum, mögu­lega í löndum þar sem er stríð, en reyna að nýta sér tæki­færin til að kom­ast inn í önnur lönd. Eitt er að flytja, en annað er að fá hluta af kerf­inu okkar. Við erum með ákveðin fjár­lög og erum að reyna að hjálpa eins mörgum og við getum. Það er fólk raun­veru­lega að flýja stríð, en svo er fólk sem er bara að leita sér að betra lífi. Og það er líka allt í lagi, en þá er það fólk að taka pen­inga frá þeim sem eru raun­veru­lega að flýja stríð. Og það er ekki ótak­markað af pen­ingum hér heldur, þó að Noregur sé ríkt land. Þetta er stóra málið núna.”

Fregnir voru af því á dög­unum að Norðmenn væru að taka fé úr olíu­sjóðnum í fyrsta sinn. Reynir segir sjóð­inn þó alltaf að stækka, þó að það sé minna sem fari í hann. Tekj­urnar séu lægri núna út af lækk­andi olíu­verði, en sjóð­ur­inn tap­aði 300 millj­örðum norskra króna það sem af er ári miðað við und­an­farin ár.

„Hann er samt alltaf að stækka. Þegar ég flutti til Noregs voru um 4.000 millj­arðar norskra króna í honum, nú eru þeir um 7.000. Það þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af þessu.”

Eins og efsta deild fótbolta fyrir stjórnmálanörd

Reynir hefur verið aðstoð­ar­ráð­herra í tæpt ár en hefur unnið náið með sam­göngu­ráð­herr­anum í rúm tvö ár. Og hann er svo sann­ar­lega ekki kom­inn með leið á stjórn­málum á nýjan leik. 

„Þetta er bara lífið mitt. Ætli fót­bolta­bullur geti ekki skilið þetta - þegar maður er kom­inn upp í efstu deild stjórn­málanör­danna þá yfir­tekur þetta allt. Núna er ég kom­inn út á völl­inn í stað þess að sitja í stúkunni. Þá nýtir maður tæki­færin, vinnur sextán tíma á dag og reynir eftir fremsta megni að eiga fjöl­skyldu­líf líka. Sem betur fer á ég þol­in­móða fjöl­skyldu sem skilur að þetta er tæki­færi sem kemur kannski ekki aftur.”

Skrifstofan liggur yfir House of Cards og Borgen

Sjón­varps­þættir um líf og störf stjórn­mála­manna hafa senni­lega aldrei verið eins vin­sælir og nú. Spurður hvort hann sam­sami sig þáttum eins og Borgen, West Wing, House of Cards og Scandal segir Reynir vissu­lega svo vera.

„Auðvitað horfir öll skrif­stofan á House of Cards. Við horfum líka á Borgen og að mínu mati er það, sem betur fer, mun nær raun­veru­leik­anum heldur en það fyrr­nefnda,” segir Reynir. „Borgen er gert að miklu drama, en það er rosa­lega margt þar sem við getum sam­samað okkur.”

Spurður hvort hann hafi þá upp­lifað sig sem Casper Juul þegar hann vann sem póli­tískur ráð­gjafi ráð­herra hlær Reynir og segir að svo hafi verið að ein­hverju leyti.

„Maður var alltaf að kljást við fjöl­miðla, ríf­ast við þá, berj­ast fyrir því að það fari út réttar upp­lýs­ingar, þær upp­lýs­ingar sem maður vill að fari út og að and­stæð­ing­ur­inn stýri ekki hvernig litið er á hlut­ina,” segir hann.

Þar sem rík­is­stjórnin er minni­hluta­stjórn er hún í sam­starfi við Kristi­lega flokk­inn (n. Kristelig Fol­ke­parti) og Vinstri (n. Venstre). „Þessir fjórir flokkar vinna saman í yfir 90 pró­sent mála og fjár­lögum. Við þurfum alltaf að sækja meiri­hluta í þing­inu og þá kemur svo­lítið Borgen-ástand,” segir hann.

Meiri persónuleg harka á Íslandi

En það er víðar en í Noregi þar sem stjórn­málin minna á sjón­varps­þætti. Ísland hefur legið undir smá­sjá inn­lendra og erlendra fjöl­miðla und­an­farið vegna fregna af eignum ráða­manna í skatta­skjólum.

„Ég les alltaf fréttir um málin heima á Íslandi. Þetta er líka margt fólk sem ég þekki og hef unnið með,” segir Reynir. „En ég vil ekki tjá mig um inn­an­rík­is­mál ann­arra landa þar sem ég er hluti af rík­is­stjórn Noregs. En ég var í stúd­entapóli­tík­inni á Íslandi og var með í Sjálf­stæð­is­flokknum og Heimdalli, þannig að ég þekki eitt­hvað til. Það er mik­ill munur á íslenskum og norskum stjórn­málum, auð­vitað bæði vegna stærð­ar­mun­ar­ins, en stærsti mun­ur­inn er sá að það er meiri per­sónu­leg harka á Íslandi. Það er sótt harðar að manni sem ein­stak­lingi. Ég vil ekki hafa neina skoðun á því hvort menn hafi gert rétt eða rangt, en mér finnst meiri áhersla lögð á mál­efnin sjálf í Noregi, og það verður oft harka í því, en á Íslandi er það oft mað­ur­inn sem verður aðal­málið. Ég sé það síður í Noregi.”

Reynir segir mjög mik­il­vægt að fjöl­miðlar og almenn­ingur veiti stjórn­mála­mönnum aðhald. „En svo þarf að passa að fólk fái ekki illt í mag­ann við til­hugs­un­ina um að fara út í póli­tík og ótt­ist að ein­hver komi og éti sig. En það er líka mis­jafnt hvernig stjórn­mála­menn kljást við umtal, hvort þeir segja satt eða ósatt. Það er auð­vitað mjög stór hluti af þessu öllu saman.”

[quote font="0" align="right"] En það er líka mis­jafnt hvernig stjórn­mála­menn kljást við umtal, hvort þeir segja satt eða ósatt. [/quote]

Vonar að orðsporið þoli stjórnmálin

Næstu kosn­ingar í Noregi verða haustið 2017. Það er því mögu­legt að eftir eitt og hálft ár verði Reynir að leita sér að annarri vinnu. Hann er full­kom­lega með­vit­aður um það og segir alla átta sig á að svona störf séu bundin við tíma­bil.

„Ég veit alltaf að þetta er tíma­bundið starf. En ég gæti hætt á morgun og verið mjög ánægður með mína vinnu. Og ég hef ekki hug­mynd um hvað mig langar að gera næst.” Spurður hvort hann gæti hugsað sér að vinna í póli­tík­inni á Íslandi, bendir Reynir á að hann sé norskur rík­is­borg­ari og búi þar með konu og börn. Norsk póli­tík sé hans póli­tík.

„Ég mundi þó aldrei úti­loka neitt. Ég er norskur stjórn­mála­maður þannig að það er erfitt að tjá sig um að vinna sem póli­tíkus í öðrum löndum, en að vinna við sam­skipta­mál, fjar­skipta­mál eða star­fræna miðlun, sem ég hef mik­inn áhuga á, er eitt­hvað sem ég gæti hugsað mér í fram­tíð­inni,” segir hann. „Ég vona bara að orð­spor mitt verði ekki ónýtt eftir stjórn­málin, sem ég efast stór­lega um að verði. Svo er ég ungur þannig að ég á nóg eftir.”

[quote font="0" align="right"] Ég veit alltaf að þetta er tíma­bundið starf. En ég gæti hætt á morgun og verið mjög ánægður með mína vinnu. Og ég hef ekki hug­mynd um hvað mig langar að gera næst. [/quote]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár