Mynd: EPA

Framhjáhaldið sem felldi Hancock

Matt Hancock steig til hliðar sem heil­brigð­is­ráð­herra Bret­lands um síð­ustu helgi eftir að The Sun birti mynd af honum vera að kyssa aðstoð­ar­konu sína, Ginu Coladangelo, á for­síðu blaðs­ins.

Í störfum sínum sem heil­brigð­is­ráð­herra á tímum veiru­far­ald­urs hefur Matt Hancock reglu­lega minnt fólk á mik­il­vægi þess að bæði fylgja sótt­varna­reglum og huga að sótt­vörnum almennt. Hann var til við­tals á sjón­varps­stöð­inni Sky í sept­em­ber í fyrra þegar talið barst að sótt­vörnum og kyn­lífi. „Við skulum túlka regl­urnar bók­staf­lega, það er í lagi að stunda kyn­líf svo lengi sem maður sé í föstu sam­bandi,“ sagði Matt hálf­vand­ræða­lega í við­tal­inu. Þessi orð hans hafa nýlega verið rifjuð upp vegna þess að Matt sjálfur hefur átt í ást­ar­sam­bandi við aðstoð­ar­konu sína, Ginu Coladangelo, þrátt fyrir að vera sjálfur harð­giftur.

Málið komst upp fyrir um viku síðan og vakti strax reiði, bæði meðal almenn­ings sem og þing­manna stjórn­ar­and­stöð­unnar, enda fór ráð­herr­ann gegn ráð­legg­ingum sinnar eigin rík­is­stjórnar. Þá hafa ein­hverjir furðað sig á því að það hafi þurft fram­hjá­hald til þess að velta heil­brigð­is­ráð­herra af stalli en ekki meint sinnu­leysi hans í starfi á tímum veiru­far­ald­urs sem hefur dregið fleiri en 150 þús­und til dauða í Bret­landi.

Vakti son sinn til að segja honum frá hjónaskilnaði

Síðdegis á fimmtu­dag í síð­ustu viku má segja að bolt­inn hafi farið að rúlla. Matt Hancock hafði nýlokið að ræða mál­efni bresku heil­brigð­is­þjón­ust­unnar NHS í full­trúa­deild breska þings­ins þegar hann fékk sím­tal frá breska dag­blað­inu The Sun. Í sím­tal­inu var Hancock tjáð að blaðið hafi undir höndum myndefni sem sýnir hann og Ginu Coladangelo kyss­ast á skrif­stofu Hancock.

Matt og Gina hafa þekkst lengi. Þau störf­uðu bæði við stúd­enta­út­varpið í Oxford en þau lögðu stund sama nám í Exeter College, lærðu heim­speki, stjórn­mála- og hag­fræði, á deild sem hefur stundum verið líkt við útung­un­ar­stöð fyrir stjórn­mála­fólk. Gina hóf störf fyrir Matt árið 2019 þegar hann var til skamms tíma í fram­boði til for­manns Íhalds­flokk­ins.

Eftir að sím­tal­inu frá The Sun lauk á Hancock að hafa haldið heim til eig­in­konu sinnar, Mörthu Hancock, sagt henni frá yfir­vof­andi umfjöllun blaðs­ins, frá mynd­unum sem umfjöll­unin byggði á og lýst því yfir að hjóna­bandi þeirra væri lokið. Því næst vakti hann yngsta son þeirra hjóna, átta ára gamlan, til þess að segja honum frá yfir­vof­andi hjóna­skiln­aði for­eldr­anna.

Í umfjöllun Daily Mail er haft eftir vinum Hancock hjón­anna að opin­berun Matt hafi komið Mörthu algjör­lega í opna skjöldu. Hún hafi talið sig vera í ham­ingju­sömu hjóna­bandi og traustu. Vinir Matt hafa hins vegar sagt að alvara sé í sam­bandi þeirra Ginu, þrátt fyrir að það hafi ekki staðið lengi yfir, hann hafi sjálfur í hug að stofna með henni heim­ili.

Málinu lokið að mati forsætisráðherra eftir afsökunarbeiðni

Þrátt fyrir að Matt Hancock sé nú búinn að segja af sér þá tók hann sér aðeins lengri tíma til þess að segja skilið við ráð­herra­emb­ættið heldur en hann tók sér til þess að segja skilið við eig­in­kon­una. Hann sendi frá sér yfir­lýs­ingu um hádeg­is­bil á föstu­dag, sama dag og mynd þeirra Ginu birt­ist á for­síðu The Sun. Í yfir­lýs­ing­unni baðst hann afsök­unar á því að hafa gengið gegn til­mælum um fjar­lægð­ar­mörk, hann sagði sig hafa brugð­ist fólki og að hann sæi eftir því. Engu að síður ætl­aði hann að halda áfram að gegna emb­ætti ráð­herra, „Ég mun halda áfram að ein­beita mér að þeirri vinnu að koma þjóð­inni út úr þessum far­aldri og yrði þakk­látur ef mér og minni fjöl­skyldu yrði veitt næði vegna þessa máls,“ sagði meðal ann­ars í yfir­lýs­ingu Hancocks.

Sú afsök­un­ar­beiðni virt­ist nægja for­sæt­is­ráð­herr­anum Boris Johnson sem stóð með Hancock og leit svo á að mál­inu væri lokið um miðjan dag á föstu­dag.

En mál­inu var hvergi nærri lokið. Þingmenn Íhalds­flokks­ins, ráð­herrar hans og gras­rót­ar­fé­lagar mót­mæltu afstöðu for­sæt­is­ráð­herr­ans og fóru fram á að Hancock yrði vikið úr rík­is­stjórn­inni. Hancock sendi for­sæt­is­ráð­herra svo afsagn­ar­bréf á laug­ar­dag.

Í bréfi Hancocks sagði hann að hann vildi síst af öllu að hans einka­líf drægi skugga á þá kröft­ugu bar­áttu sem unnin hefði verið til þess að vinna bug á far­aldr­inum. „Ég vil ítreka afsök­un­ar­beiðni mína vegna þess að ég fór á svig við gild­andi leið­bein­ingar og ég vil biðja fjöl­skyldu mína og ást­vini afsök­unar á því að leggja þetta á þau. Einnig þarf ég núna að verja tíma með börn­unum mínum,“ segir í bréfi Hancocks.

Boris Johnson sagði í svar­bréfi sínu til Hancock að hann mætti vera stoltur af sínum verkum sem heil­brigð­is­ráð­herra, bæði fyrir störf sín í bar­átt­unni við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn sem og í ráð­herra­störfum sínum fyrir far­aldur. Boris sagð­ist auk þess vera viss um að störfum Hancocks í þágu almenn­ings væri langt í frá lokið.

Forsætisráðherra sagði Hancock vera vonlausan

Vera má að hér sé aðeins um venju­bundna kurt­eisi að ræða af hálfu for­sæt­is­ráð­herr­ans, því skammt er síðan að fréttir voru fluttar af opin­berun fyrrum aðstoð­ar­manns for­sæt­is­ráð­herr­ans, Dominic Cummings, á sam­skiptum þeirra tveggja sem sneru meðal ann­ars að Matt Hancock. Dominc Cummings varð sjálfur upp­vís af því að fara gegn til­mælum stjórn­valda í fyrra þegar hann fór í ferða­lag þegar útgöngu­bann var í gildi.

Í skila­boðum sem fóru milli þeirra Cummings og Johnson segir Johnson meðal ann­ars að Matt Hancock sé „gjör­sam­lega von­laus“ sem heil­brigð­is­ráð­herra. Þá kemur þar einnig fram að Johnson hafi verið að hugsa um að skipta Matt Hancock út fyrir Michael Gove í emb­ætti heli­brigð­is­ráð­herra en skila­boðin eru frá því snemma í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum á fyrri hluta árs 2020.

Segja má að van­trú for­sæt­is­ráð­herr­ans á Matt Hancock sé skili­j­an­leg, enda Bretland meðal þeirra landa sem verst hafa farið út úr kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Jonathan Freedland, dálka­höf­undur hjá Guardian, sagði í hlað­varpi blaðs­ins, Today in Focus, að það væru ef til vill ein­hverjir pirraðir á því að það hefði verið mynd­birt­ing af þessu tagi sem felldi Hancock en ekki frammi­staða hans sem ráð­herra. Fólk hefði kallað eftir því að bæði Matt Hancock sem og rík­is­stjórn öll myndi svara fyrir aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar, eða öllu heldur aðgerð­ar­leysi hennar.

Boris Johnson íhugaði það að skipta Matt Hancock út fyrir Michael Gove í fyrra.
Boris Johnson íhug­aði það að skipta Matt Hancock út fyrir Michael Gove í fyrra.

Til að mynda nefnir Freedland að fram­kvæmd skim­ana í Bret­landi hafi verið klúð­urs­leg, fram­vkæmdin hafi verið dýr og ekki skilað til­ætl­uðum árangri. Til við­bótar við þetta hefði mátt bjarga þús­undum manns­lífa í Bret­landi ef harð­ari sótt­varna­að­gerðum hefði verið beitt fyrr í far­aldr­inum og vísar hann þar til útreikn­inga sem gerðir voru af Neil Ferguson. Neil, sem er sótt­varna­læknir, ákvað í maí í fyrra að taka ábyrgð á gjörðum sínum og sagði sig frá ráð­gjaf­ar­störfum fyrir rík­is­stjórn­ina eftir heim­sókn frá kær­ustu hans, en þau deildu ekki heim­ili.

Stigið yfir línu forsætisráðherrans

Innan stjórn­kerf­is­ins hefur það ekki tíðkast hingað til að fólk segi af sér vegna skakka­falla í einka­lífi, að minnsta kosti ekki hjá núver­andi rík­is­stjórn. Það hefur í það minnsta verið stefna for­sæt­is­ráð­herr­ans sem hefur ekki séð sig knú­inn til þess að losa sig við ráð­herra úr rík­is­stjórn­inni þrátt fyrir hneyksl­is­mál sem komið hafa upp. Sá stuðn­ingur sem Boris sýndi Matt á föstu­dag í síð­ustu viku þegar hann sagð­ist líta svo á að mál­inu væri lokið var til marks um þá stefnu.

Líkt og áður segir hafa komið upp hneyksl­is­mál sem höfðu litla sem enga eft­ir­mála fyrir þá ráð­herra sem áttu þar hlut að máli. Priti Patel inn­an­rík­is­ráð­herra var til að mynda sökuð um að reyna að skara eld að köku fyr­ir­tækis í eigu vinar hennar. Ráðherra hús­næð­is­mála Robert Jenrick á að hafa sparað verk­taka­fyr­ir­tæki tugi millj­óna punda með því að greiða götu þess per­sónu­lega, en fyr­ir­tækið hefur stutt rausn­ar­lega við bakið á Íhalds­flokknum með fjár­fram­lögum. Þá var mennta­mála­ráð­herr­ann Gavin Williamsson í klemmu í fyrra eftir að hann breytti til­högun ein­kunna­gjafar í loka­prófum fram­halds­skóla á síð­ustu stundu, en fyrir vikið lækk­aði ein­kunn fjölda nem­enda. Öll héldu þau starf­inu, að ógleymdum Dominic Cummings sem hér var áður minnst á.

Nú er hins vegar komið for­dæmi fyrir því að ráð­herra í rík­is­stjórn Borisar hverfi af sjón­ar­svið­inu. Það gæti breytt stöðu for­sæt­is­ráð­herr­ans, líkt og Jonathan Freedland fór yfir í áður­nefndu hlað­varpi. Hann sagði það ljóst að horft yrði til Matt Hancock næst þegar ein­hver ráð­herra brýtur af sér og krafan um afsögn eða brott­vikn­ingu hávær­ari en áður. For­sæt­is­ráð­herr­ann sjálfur hefur einnig orðið ber­skjald­aðri eftir afsögn Matt Hancock, en skjöldur hans er ekki tand­ur­hreinn þegar hneyksl­is­mál eru ann­ars vegar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár