Frosti: Sigmundur Davíð sagði ósatt

Trún­að­ar­brestur varð þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagði ósatt í við­tali við sænska sjón­varpið. Það er ekki boð­legt að segja ósatt frekar en að leyna hags­munum tengdra aðila. Þetta sagði Frosti Sig­ur­jóns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, í helg­ar­út­gáf­unni á Rás 2 í dag. Hann segir að taf­ar­laust þurfi að fara fram rann­sókn af hálfu hins opin­bera á tengslum Íslend­inga við aflands­fé­lög, því umfangið sé svo mikið.

„For­sæt­is­ráð­herr­ann sagði ósatt og það í raun­inni er slæmt því allt sem í fram­haldi kemur er dregið í efa. Og ég held að þar hafi orðið trún­að­ar­brestur, að for­sæt­is­ráð­herra treysti sér ekki til að segja satt á því augna­bliki, þegar hann er bara spurður hreint út. Ég held að þar hljóti lexían að vera sú að það er eng­inn val­kostur að segja ósatt um svona hluti. Það er eng­inn val­kostur að leyna hags­munum tengds aðila í svona stóru máli,“ sagði Frosti. Hann sagði að hann efað­ist ekki um að skattar hafi verið greiddir af félag­inu Wintris og að Sig­mundur hafi barist af heilum hug fyrir hags­munum Íslands. Samt sem áður orki það mjög tví­mælis að leyna þessum upp­lýsinsum. „Þá getur hann ekki svarað svona spurn­ingu, eða honum vefst tunga um tönn og þá er traustið farið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár