Áslaug Arna: „Haturstákn og sjónarmið verða ekki liðin innan lögreglunnar“

Dóms­mála­ráð­herra segir „alveg skýrt“ að hat­ur­s­tákn og sjón­ar­mið verði ekki liðin innan lög­regl­unnar, hvorki nú né fram­vegis.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er alveg skýrt, hat­ur­s­tákn og sjón­ar­mið verða ekki liðin innan lög­regl­unnar, ekki nú né fram­vegis. Ef við þurfum að auka menntun eða taka á því með ein­hverjum hætti sem yfir­stjórn lög­regl­unnar telur rétt, þá gerum við það,“ segir Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra á Twitter í dag.

Tilefni þess­arar yfir­lýs­ingar ráð­herra er sú umræða sem skap­að­ist í gær vegna vafa­samra merkja sem lög­reglu­maður bar á und­ir­vesti sínu við skyldu­störf og sáust á mynd sem fylgdi frétt á mbl.is. Myndin var tekin árið 2018.[links]

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu brást við mál­inu með því að taka fram að hún styddi ekki með neinum hætti hat­urs­orð­ræðu eða merki sem ýttu undir slíkt og sagð­ist harma að hafa valdið fólki sær­indum.

Skila­boðin á merkj­unum voru sögð í engu sam­ræmi við fræðslu, stefnu og mark­mið lög­regl­unnar og lög­reglu­mönnum hjá emb­ætt­inu voru send skýr fyr­ir­mæli um að fjar­lægja öll merki af lög­reglu­bún­ingum sínum sem ekki væru í sam­ræmi við reglu­gerð.

[adspot]

Dóms­mála­ráð­herra telur að lög­reglu­emb­ættið hafi brugð­ist rétt við mál­inu í gær og með afger­andi hætti, en hún segir það líka lög­reglu­manna að vera með­vit­aðir um að gefa ekki nein slík merki frá sér, ekki „með táknum orðum né handa­hreyf­ingum.“

„Núna liggur það fyrir skýrar en nokkru sinni og öllum ætti að vera ljóst hvaða þýð­ingu ein­stök merki hafa. Við munum því gera meiri kröfur héreftir,“ skrifar dóms­mála­ráð­herra.

Áslaug Arna seg­ist halda að við „séum flest sam­mála um það að íslenskir lög­reglu­menn leggi sig almennt fram við að koma fram við fólk af vin­semd og virð­ingu“ og bætir við að lög­reglan eigi að sýna fram á að hún starfi og þjóni öllum þeim sem hér búa og dvelja,“ og að það telji hún hana gera.

Verður tekið til umræðu í lögregluráði

Hún segir að rík­is­lög­reglu­stjóri muni ræða mál sem snúa að klæðn­aði lög­reglu­manna og kyn­þátta­for­dómum á fundi lög­reglu­ráðs, en lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til­kynnti í gær að málið hefði verið sent til nefndar um eft­ir­lit með störfum lög­reglu.

Málið var til umræðu á Alþingi í gær, en Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir þing­maður Pírata hefur óskað eftir því að nefnd­ar­menn alls­herj­ar- og mennta­mála­nefndar ræði við full­trúa lög­regl­unnar um ras­isma innan lög­regl­unnar og aðferðir til að sporna við hon­um vegna máls­ins.

„Ljós­mynd Morg­un­blaðs­ins af lög­reglu­konu sem bar merki hvítra þjóð­ern­is­sinna og tákn­mynd teikni­mynda­and­hetj­unnar „The Pun­is­her“ eða Refs­arans, með leyfi for­seta, við skyldu­störf sín hefur vakið verkskuld­aða athygli í dag.

Pun­is­her-­merkið er ekki sak­leys­is­leg til­vísun í teikni­mynda­per­sónu úr Mar­vel-heim­inum heldur tákn­mynd lög­regl­unnar vestan hafs sem refsandi afls þeirra sem taka lögin og refs­ingar í eigin hendur og sneiða fram hjá rétt­ar­kerf­in­u,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár