Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Bristol

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Mér finnst eins og síð­asta blogg hafi verið fyrir þremur tímum síðan. Þetta var hinn týpíski túr­dagur þar sem ekk­ert ger­ist og allt er eins. Senni­lega hefur nú alls­konar gerst, en í svip­inn ekki neitt. Ég ætla að prófa að rekja atburða­rás­ina.

Ég man að þegar ég stóð upp frá tölv­unni í gær var ég mun hell­aðri en mér fannst. Í það minnsta las ég bloggskrifin frá því þá ein­hvern tím­ann áðan og var hrein­lega ekki viss um að ég hefði skrifað allt saman sjálfur. En það er svona, það sem stendur skal standa. Rit­skoðun er ekki leyfð í þessum bálki. Ég sofn­aði stuttu eftir þetta allt saman og svaf þangað til Robert ræsti okkur í ferju. Þá var klukkan að verða átta. Vitandi að við ættum eftir tals­verða keyrslu eftir ferj­una lagði ég á ráðin og afréð að halda mér vak­andi meðan við sigldum. Stímið tók tæpa fjóra tíma (eða þrjá kannski?) sem ég eyddi að mestu við spjall heim yfir alnetið. Það var alveg sér­lega ánægju­legt. Ég var svo kom­inn í koj­una áður en bíll­inn keyrði upp úr ferj­unni. Og þar var ég mestan hluta úr deg­inum. Undir það síð­asta hef ég verið hálf­vak­andi því ég heyrði hvernig sjón­varps­þátt­ur­inn Fóst­bræður mall­aði hér frammí. Ég veit ekki hverjir voru að horfa eða hvernig. Í það minnsta var eng­inn í koju nema ég. Skömmu seinna nam rútan staðar.

[caption id="attachment_12361" align="alignnone" width="4896"] Bibbi, þungur á brún.[/caption]

Tón­leik­arnir í kvöld hóf­ustu klukkan átta. Við upp­setn­ingu dag hvern hvílir aðal­á­byrgðin á tækniliði Elu­veitie, þetta er jú þeirra túr og hverf­ist kringum þau. Yfir­leitt reyna þau að kom­ast inn á tón­leika­stað­ina um hádegi og þannig er nokkuð tryggt að allt hafi náðst á settum tíma. Oft má þó engu muna eins og áður hefur komið fram í þessu bloggi. Þar sem keyrslan eftir ferj­una var áætluð kannski fimm til sex tímar í dag höfðu þau bókað sitt far yfir sundið klukkan tvö í nótt. Við Skálmeld­ingar þurfum yfir­leitt alls ekki að mæta jafn­snemma og þau og létum okkur nægja brott­för­ina klukkan átta. Þó fór svo að ferjan sem átti að fara klukkan tvö var biluð og sat í slipp í alla nótt. Við þessu var ekk­ert að gera og þannig kom stóra rútan með okkur í átta-ferj­una, sem síðan orsak­aði að hers­ingin skil­aði sér ekki til Bristol fyrr en milli fimm og sex. Aug­lýstur opn­un­ar­tími á staðnum var hálf8, við áætl­aðir á svið klukkan átta. Við þennan túr vinnur sjóað fólk og um leið réð­ust allir í að rusla dót­inu upp. Þrátt fyrir allt þetta stress vorum við eig­in­lega óþarfir því við komumst ekki að dag hvern fyrr en allt hefur verið sett upp. Við röltum því af bæ í súr­r­eal­ískum róleg­heitum miðað við allt stressið. Eftir skamma göngu fundum við þýskt jóla­þorp sem Bristol-búar hafa ákveðið að stað­setja þarna mið­svæðis. Þýskur Johnny King með alpa­húfu mund­aði skemmt­ar­ann, jólaglögg, ristaðar hnetur og syk­ur­púðar, bekkir, borð og Weinachtenschwein. Og risa­stórar pylsur af grill­inu. Við átum þær, fengum okkur svo kaffi í baka­leið­inni og kíktum upp á venju. Hálftími í gigg og alls ekki komið að okkur.

En þá fór vélin af stað fyrir alvöru. Öllum mögu­legum óþarfa var sleppt, Rúss­arnir tóku enga hljóðprufu en unnu með okkur að því að koma draslinu okkar fyrir, þó með því skipu­lagi að þau gætu auð­veld­lega tekið við að því loknu. Okkar bein­harði tækni­maður Flex vann á við fjóra og sá til þess að allt skil­aði sér. Þarna kom hin íslenska vinnu­skorpu­geð­veiki sér vel. Senni­lega var neðri hæðin opnuð hálf8. Klukkan 19.58 höfðum við náð að tengja allt, tókum svo sem ekk­ert eig­in­legt sánd­tékk, létum okkur hverfa og fólki streymdi í sal­inn. Mínútu seinna kom Tibor til okkar að sagði að tón­leik­unum skyldi seinka um 20 mín­útur. Það var næstum því svekkj­andi eftir að hafa náð að sigr­ast á þessum ótrú­legu tíma­mörkum. En senni­lega hjálp­aði það til því við spil­uðum fyrir ansi marga sem ann­ars hefðu mögu­lega ekki verið komnir.

[caption id="attachment_12362" align="alignnone" width="4896"] Böbbi söngv­ari. Hann er ekki svona rólegur þegar hann er að öskra. Ó nei.[/caption]

Giggið gekk svo sem brösu­lega. Strax í fyrsta lagi lið­að­ist sprak­ar­inn hans Jóns Geirs í sundur en hann náði að bjarga því strax að því lagi loknu. Um mið­bikið sleit Baldur streng en var vit­an­lega með varagítar til­tækan. Það sem var kannski und­ar­leg­ast var hljóðið á svið­inu því við höfðum jú ekki haft neinn tíma til að skoða þau mál. Ég heyrði eig­in­lega ekk­ert nema bassa og óbó (ekki alvöru óbó, heldur hljóm­borð­sóbóið hans Gunna). Það hljóm­aði ekk­ert eins og þung­arokk, en þetta dugði okkur alger­lega til að kom­ast gegnum giggið. Og þetta líka stór­skemmti­lega gigg. Þarna sann­að­ist kannski hversu sjóað þetta band er orðið. Við þurfum lítið sem ekk­ert til að gera okkar hluti, við tökum því sem að höndum ber og afgreiðum hlut­ina full­kom­lega. Þetta var eitt skrýtn­asta gigg sem ég hef spilað, fullt af hlutum í lama­sessi, en þessu rúll­uðum við upp. Og mik­ill fjöldi fólks skemmti sér alveg kon­ung­lega, þar á meðal eðal­fólkið Christine og Guð­brandur, sem ég ákvað grein­lega að end­ur­nefna í bloggi í um dag­inn og kall­aði hann Höskuld. Það leið­rétt­ist hér með. Ég hvet þó alla sem hann þekkja til þess að líma Hösk­uldar-nafnið á hann. Það fer honum ágæt­lega. Í það minnsta var þetta síð­asta giggið af fjórum sem þau sáu með okkur hér á Bret­landseyjum, þau hafa fylgt okkur svo að segja alla vik­una og kryddað til­ver­una. Eðalfólk sem við hittum svo aftur heima.

Rútan gat ekki lagt við tón­leika­stað­inn og því kom Robert aðvíf­andi um klukkan ell­efu. Þá hafði hann náð að leggja sig í klukku­tíma. Elu­veitie voru þá nýbyrjuð að spila en við smygl­uðum dót­inu okkar út í bíl fram­hjá tón­leika­gestum. Flexi náði að skjóta inn örstuttri heim­sókn til systur sinnar sem býr í Bristol, en mig grunar að það hafi varla verið meira en hæ og bæ. Við vildum leggja strax af stað því við eigum pant­aða ferju yfir á meg­in­landið klukkan fjögur. Við brun­uðum því af stað. Klukkan er 0.58, eitt sjoppu­stopp búið og allir farnir í koju nema ég og Flexi. Hann er að píska Napoli-menn áfram en ég er vissu­lega að blogga. Ég finn á akstr­inum að Robert er alveg til í að kom­ast til Dover. Á morgun er svo frí en við vitum ekki alveg hvernig það endar. Einhver hafði stungið upp á að eyða deg­inum í Brugge en það hentar ferða­plön­unum ekki nema ákveðið vel og yrði aldrei almenni­legt stopp. Ég er að spá í að ræða þetta við Robert þegar ég loka tölv­unni. Minn sól­ar­hringur er kol­rangur, ég sofna örugg­lega ekki aftur fyrr en hinum megin við sundið.

Meist­ara­legt dags­ins: Christine og „Hösk­uldur“.

Sköll dags­ins: Tímafokk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár