Atburðir síðustu daga hita undir forsetaframbjóðendum

Atburð­ar­rásin á Bessa­stöðum í síð­ustu viku hafa hitað undir mögu­legum for­seta­fram­bjóð­endum. Margir eru þó enn óákveðnir. Andri Snær Magnason til­kynnir um fram­boð sitt í dag.

Ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar um að neita beiðni forsætisráðherra um þingrof og orð hans um hlutverk embættisins vakti mikla athygli í síðustu viku.
Ákvörðun Ólafs Ragnars Gríms­sonar um að neita beiðni for­sæt­is­ráð­herra um þing­rof og orð hans um hlut­verk emb­ætt­is­ins vakti mikla athygli í síð­ustu viku. Mynd: Birgir Þór

Síðasta vika var ein sú tíð­inda­mesta í íslenskum stjór­málum til þessa. Póli­tíkin ein­skorð­að­ist þó ekki við Alþingi og flokk­ana sem þar sitja, heldur varp­aði hún enn skýr­ara ljósi á hlut­verk for­seta­emb­ætt­is­ins. Svo virð­ist sem frammi­staða Ólafs Ragnars Gríms­sonar for­seta og atburð­ar­rásin á Bessa­stöðum hafi ýtt enn frekar við mögu­legum for­seta­fram­bjóð­endum og þeim sem nú þegar hafa til­kynnt um fram­boð. En fram­boðs­frestur rennur ekki út fyrr en 21. maí næst­kom­andi, svo nægur tími er eftir.

Þó er þrennt nýtt að frétta eftir helg­ina sem ber að segja frá:

1. Andri Snær Magnason til­kynnir fram­boð sitt klukkan 17 í dag.

2. Guðni Th. Jóhann­es­son sagn­fræð­ingur er kom­inn undir for­seta­feld­inn.

3. Ólafur Ragnar Grímsson úti­lok­aði ekki í við­tali að hann mundi bjóða sig fram aftur.

[adspot]

Bergþór Pálsson söngv­ari hefur fengið fjölda áskor­ana til að bjóða sig fram og hann seg­ist enn vera að hugsa málið. Hann seg­ist vera algjör­lega „50/50“ í afstöðu sinni en líst vel á Guðna Th. sem for­seta og telur sig mundu styðja hann ef hann ákvæði að fara.

Bryndís Hlöðvers­dóttir rík­is­sátta­semj­ari seg­ist enn vera að íhuga málið af fullri alvöru. Hún ætlar að til­kynna af eða á innan viku.

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hefur sterk­lega verið orð­aður við for­seta­fram­boð og hefur Þjóð­ar­púls Gallup meðal ann­ars verið að mæla stuðn­ing við hann. Davíð hefur þó ekk­ert gefið út, en heim­ildir Kjarnans herma að hann íhugi nú málið vand­lega.

Davíð Þór Jónsson, hér­aðs­prestur og rit­höf­undur, er staddur í Reykja­vík og ætlar meðal ann­ars að hitta sitt bak­land og ræða for­seta­fram­boð. Hann á enn eftir að ákveða sig og býst við að senda út til­kynn­ingu um ákvörðun öðrum hvoru megin við næstu helgi.

Eiríkur Björn Björg­vins­son, bæj­ar­stjóri á Akureyri, er enn að hugsa málið mjög alvar­lega. Ætlar að reyna að til­kynna í þess­ari viku eða næstu.

Guðni Th. Jóhann­es­son sagn­fræð­ingur fékk mik­inn stuðn­ing til fram­boðs eftir síð­ustu viku, þegar hann stóð í sjón­varps­setti Rík­is­sjón­varpss­ins í beinni útsend­ingu klukku­tímum saman og skýrði atburð­ar­rás­ina fyrir áhorf­endum. Guðni hefur verið einn helsti álits­gjafi fjöl­miðla þegar kemur að for­seta­emb­ætt­inu og sagn­fræði­hlið­inni á stjórn­málum.

Sigrún Stef­áns­dóttir, for­seti félags- og hug­vís­inda­stofn­unar Háskól­ans á Akureyri, er enn að hugsa málið. Hún er nú stödd erlendis með nem­endum og ætlar sér að taka sér tíma í að taka ákvörðun. Und­ir­skrift­ar­söfnun henni til stuðn­ings er hafin.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins og fyrr­ver­andi mennta­mála­ráð­herra, er enn að hugsa málið.

Þor­grímur Þrá­ins­son rit­höf­undur er hættur við að bjóða sig fram til for­seta. Hann sagð­ist reyndar aldrei vera alveg ákveð­inn, en í síð­ustu viku gaf hann út að hann ætl­aði sér ekki að taka slag­inn.

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, til­kynnti í fyrra að hann ætl­aði ekki að bjóða sig fram á ný. Hann vildi hins vegar ekki úti­loka það við frétta­menn í síð­ustu viku þegar hann var spurður út í mögu­legt fram­boð.

Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ingar og fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, hefur ekki viljað svara hvort hann ætli að bjóða sig fram. Þar hefur ekki orðið breyt­ing á. Það sama er að segja um Stefán Jón Hafstein, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Reykja­vík­ur­list­ans.

Fleiri sem hafa verið orð­aðir við for­seta­fram­boð eru Ólafur Jóhann Ólafsson rit­höf­undur, Guðrún Nordal, for­stöðu­maður Árna­stofn­unar og Linda Pét­urs­dóttir athafna­kona. Ekki náð­ist í þau við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár