Hlín og Malín handteknar sunnan Vallanna í Hafnarfirði - búnar að játa

Syst­urnar Hlín Ein­ars­dóttir og Malín Brand voru hand­teknar í Hafn­ar­firði, sunnan Valla­hverf­is­ins, á föstu­dag. Í fjár­kúg­un­ar­bréfi sem þær eru sagðar hafa sent Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra á föstu­dag kom fram að skilja ætti eftir pen­ing­ana, sem þær vildu fá í skiptum fyrir upp­lýs­ingar, á þeim stað.

Malín og Hlín hafa játað að hafa sent Sigmundi bréf þar sem þær reyndu að kúga fé út úr honum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þar eru þær ekki nafn­greindar, en sagt að þær hafi játað við yfir­heyrslur og verið sleppt að þeim loknum. Lög­reglan segir að málið telj­ist upp­lýst og verði sent rík­is­sak­sókn­ara að lok­inni rann­sókn.

Malín er blaða­maður á Morg­un­blað­inu. Hún er komin í leyfi frá störfum fram til 1. ágúst. Hlín er fyrr­ver­andi rit­stjóri Bleikt.is, sem er hluti af Vef­press­unni.

Vísir greindi frá því í morgun að í bréfi sem hafi borist Sigmundi og fjöl­skyldu hans á föstu­dag var þess kraf­ist að þau myndu reiða fram nokkrar millj­ónir króna eða upp­lýs­ingar sem áttu að vera við­kvæmar fyrir þau yrðu gerðar opin­berar.

Málið var strax til­kynnt til lög­reglu, og hún réð­ist í umfangs­miklar aðgerðir sem leiddu til hand­töku tveggja ein­stak­linga.

Friðrik Smári Björg­vins­son, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn, vildi ekki tjá sig um málið við Vísi en sagði von á frétta­til­kynn­ingu frá lög­reglu fyrir hádegi í dag. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar, sagð­ist ekki geta tjáð sig um málið heldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár