Arion banki hefur samþykkt að kaupa 9,5 prósent hlut í sjálfum sér af Kaupskilum, félagi í eigu Kaupþings, stærsta eiganda bankans. Um er að kaup á eigin bréfum í samræmi við ákvörðun hluthafafundar sem haldin var á mánudag. Þá var samþykkt að bankinn geti greitt allt að 25 milljarða króna út í arð. Til frádráttar kæmu kaup á eigin bréfum. Heildarupphæð viðskiptanna sem nú eru frágengin er 17,1 milljarður króna. Arðgreiðslan sem kemur til viðbótar þessu verður því 7,9 milljarðar króna.
[links]Kjarninn hefur fjallað ítarlega um þær miklu væringar sem eru í eignarhaldi Arion banka nú um stundir. Hann greindi meðal annars frá því á þriðjudag að Kaupþing ætlaði að virkja forkaupsrétt á hlut ríkisins í Arion banka, sem er 13 prósent, í samræmi við samkomulag sem gert var árið 2009, þegar Arion banki var fjármagnaður. Bankasýsla ríkisins sendi frá sér tilkynningu í morgun þar sem nýting kaupréttarins var staðfest. Bankasýslan mun nú taka málið til skoðunar og leggja fyrir ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins, sem í sitja Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
[adspot]Á þriðjudagskvöld fór líka fram langur stjórnarfundur í Kaupþingi. Samkvæmt heimildum Kjarnans stóð hann fram á nótt. Niðurstaða hans var meðal annars sú að tveir af erlendum hluthöfum bæði Kaupþings og Arion banka, Attestor Capital og fjárfestingarbankinn Goldman Sachs, myndu kaupa 2,8 prósent hlut í Arion af Kaupþingi til viðbótar við það sem þeir áttu. Auk þess keyptu rúmlega 20 sjóðir í stýringu fjögurra af stærstu sjóðsstýringarfyrirtækjum Íslands: Stefnis, Íslandssjóða, Landsbréfa og Júpíter, samtals 2,54 prósent hlut. Samanlagt kaupverð var um 9,5 milljarðar króna. Ástæða þess að sú sala var keyrð í gegn í gær er einföld: þá var hægt að miða kaupverðið við níu mánaða uppgjör Arion banka. Miðað við það er verðið sem greitt var fyrir 0,805 krónur á hverja krónu af eigin fé sem bankinn á. Ef verðið hefði farið niður fyrir 0,8 krónur hefði forkaupsréttur ríkisins á hlutnum virkjast. Ef viðskiptin hefðu farið fram í gær, miðvikudaginn 14. febrúar, þá hefði verðið farið undir þau mörk. Þá birti Arion banki ársuppgjör sitt.
Þessir aðilar, sem keyptu hlut í Arion banka á þriðjudag, fá hlut í arðgreiðslu/endurkaupum Arion banka á eigin hlutafé. Þeir fá því samtals um 1,3 milljarða króna greidda út.
Arion birti, líkt og áður sagði, uppgjör sitt í gær. Þar kom fram að hagnaður samstæðu Arion banka á árinu 2017 hafi numið 14,4 milljörðum króna samanborið við 21,7 milljarða króna árið 2016. Arðsemi eigin fjár var 6,6 prósent en var 10,5 prósent á árinu 2016.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir