Bylting á Beauty tips: „Mér var nauðgað af barnsföður mínum með hníf við hálsinn“

Stelpur á Beauty tips mót­mæla þöggun um kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Deila per­sónu­legri reynslu.

Drusluganga
Druslu­ganga Til­gangur Druslu­göng­unnar er að upp­ræta kyn­ferð­is­of­beldi og skila skömminni. Mynd: Pressphotos

Sann­kölluð bylt­ing á sér stað í lok­aða stelpu­hópnum Beauty tips á Facebook. Þar hrúg­ast nú inn per­sónu­legar frá­sagnir af kyn­ferð­is­legu ofbeldi undir myllu­merk­inu #þöggun. „Mér var nauðgað af barns­föður mínum með hníf við háls­inn heima hjá mér. Ári seinni kærði ég hann,“ segir einn með­limur hóps­ins. „Mér var nauðgað af maka með vak­andi barnið okkar í fang­inu,“ segir önnur. 

Tildrög þess­arar flóð­bylgju var færsla Guðrúnar Helgu Guð­bjarts­dóttur sem spurði á dög­unum hvort ein­hver hafði „lent í Sveini Andra“. Stundin fjall­aði um þá færslu í fyrra­dag. Guðrún er vin­kona Rebekku Rós­in­berg, tví­tugrar stúlku sem kom fram í við­tali við DV í fyrra og sagði frá því að hún hefði kært Svein Andra Sveins­son lög­mann, fyrir tæl­ingu. Málið var fellt niður. Nú vill hún reyna aftur og safnar reynslu­sögum af lög­mann­inum á Facebook-hópnum Beauty tips til sönn­unar fyrir nýrri kæru gegn Sveini Andra. Stundin ræddi við Rebekku sem sagð­ist him­in­lif­andi yfir við­brögð­unum með­lima Beauty tips. „Það er bara byrjuð bylt­ing á Beauty tips. Það eru allir farnir að berj­ast gegn þöggun undir hashtag­inu #þöggun og deila sögum sínum sem þær hafa lent í. Ég var bara „vá“ þegar ég sá þetta,“ segir Rebekka.

#þöggun Tweets

Rödd okkar versti óvinur ofbeldis

María Rut Kristinsdóttir
María Rut Krist­ins­dóttir María Rut sagði frá ofbeldi sem hún varð fyrir af hálfu upp­eld­is­föður síns þegar hún var 17 ára. Hún hafði þá þagað í sex ár.

Beauty tips er vett­vangur tæp­lega 25 þús­und kvenna á Íslandi til þess að leita ráða og ræða ýmis­leg mál­efni. Meðal þeirra sem tjáir sig um málið í  dag er María Rut Krist­ins­dóttir, einn skipu­leggj­andi Druslu­göng­unnar og fyrr­ver­andi for­maður Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands. „Stelpur!! Ég sit hérna með tárin í aug­unum yfir öllum sög­unum ykkar. ‪#‎þöggun‬ og ‪#‎kon­ur­tala‬ er 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár