34 vændiskaupamál í ár

Sex slík mál höfðu komið upp á sama tíma og í fyrra. Fá mál­anna leiða til refs­ingar.

34 mál hafa komið upp hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu það sem af er ári þar sem grunur er um kaup á vændi. Á sama tíma í fyrra höfðu komið upp sex sam­bæri­leg mál. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Miðað er við dag­setn­ingu brots í þessum málum, en oft koma þau til afgreiðslu löngu eftir að brot var framið. Á árinu 2017 komu upp 29 mál þar sem grunur var um kaup á vændi á starfs­svæði lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en árið 2018 voru þau aðeins níu, sé miðað við dag­setn­ingu brota.

Árið 2017 voru greiddar sektir í níu málum. Ekkert mál­anna fór í ákæru­með­ferð, en þrjú þeirra eru enn til rann­sóknar. Af þeim sem komu upp árið 2018 voru greiddar sektir í tveimur málum, eitt fór til ákæru­með­ferðar og þrjú mál eru enn til rann­sóknar. Í svari lög­regl­unnar kom einnig fram að á árunum 2010 til 2018 hefðu 96% sak­born­inga í mál­unum verið með íslenskt rík­is­fang.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár