Hundagjöld í Reykjavík lækkuð í von um að skráningum fjölgi

Dýra­þjón­usta Reykja­víkur heitir nýtt borg­arapparat sem stofnað hefur verið utan um þjón­ustu við hunda og ketti og eig­endur þeirra. Með þessum breyt­ingum er Hunda­eft­ir­litið lagt niður sem sjálf­stæð ein­ing og mál­efni katta fær­ast frá mein­dýra­eft­ir­lit­inu.

Gjöld fyrir hundahald í Reykjavík lækka um að allt að helming, hið minnsta til þriggja ára. Borgarfulltrúar eru ekki einhuga um hvort borgin eigi yfir höfuð að vera að velta sér upp úr hundahaldi borgaranna.
Gjöld fyrir hunda­hald í Reykja­vík lækka um að allt að helm­ing, hið minnsta til þriggja ára. Borg­ar­full­trúar eru ekki ein­huga um hvort borgin eigi yfir höfuð að vera að velta sér upp úr hunda­haldi borg­ar­anna. Mynd: Arnar Þór Ingólfsson

Meiri­hluti borg­ar­stjórnar Reykja­víkur stað­festi á fundi sínum í vik­unni ákvörðun borg­ar­ráðs um að stofna nýja Dýra­þjón­ustu Reykja­víkur til þess að fara með mál­efni hunda og katta í borg­inni, bæði gælu­dýra og þeirra sem eru villt.

Með þess­ari ákvörðun er Hunda­eft­ir­lit Reykja­víkur lagt niður og mál­efni katta flutt frá mein­dýra­eft­ir­liti borg­ar­innar til hinnar nýju dýra­þjón­ustu, sem fengið hefur nafnið DÝR og verður með starfs­stöð í Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garð­inum.

Hundagjöldin lækkuð til þriggja ára í von um aukna skráningu

Borg­ar­yf­ir­völd byggja þessa ákvörðun á til­lögum starfs­hóps, sem skoð­aði mál­efni hunda og katta og taldi að hag­kvæmni myndi nást fram með því að færa alla þjón­ustu við dýrin á einn stað. Vænt­ingar eru uppi um að að fleiri hunda­eig­endur skrái dýrin sín eftir þessar breyt­ingar, en sam­hliða stofnun DÝR er gjald fyrir að skrá nýjan hund lækkað um rúm 40 pró­sent og árlegt þjón­ustu- og eft­ir­lits­gjald um 50 pró­sent.

Gjald fyrir skrán­ingu hunds verður 11.900 krónur í stað 20.800 króna áður og árlega þjón­ustu­gjaldið fer úr 19.850 krónum í 9.900 krónur. Áfram mun kosta 30.200 krónur að láta hunda­eft­ir­lits­menn borg­ar­innar hand­sama óskráðan hund.

Lækkun gjalds­ins er til­rauna­verk­efni til þriggja ára, en skráðum dýrum þarf að fjölga um 80 pró­sent á því tíma­bili til að reikn­ings­dæmið gangi upp og hunda­gjöldin standi undir hunda­eft­ir­lits­hluta Dýra­þjón­ustu Reykja­víkur.

Með breyt­ing­unum sem gerðar hafa verið er hunda­hald form­lega leyft í Reykja­vík. Í bókun meiri­hluta borg­ar­ráðs frá 4. febr­úar segir að á um 40 pró­sent heim­ila í Reykavík búi gælu­dýr og að með þessum breyt­ingum vilji meiri­hlut­inn „gera dýrum og gælu­dýra­eig­endum hærra undir höfði,“ enda séu dýr mik­il­vægur hluti af borg­ar­sam­fé­lagi.

Telja hundaleyfi og -gjöld „tímaskekkju“

Ekki var full sam­staða um þessa breyttu gælu­dýra­stefnu innan borg­ar­ráðs og síðan borg­ar­stjórnar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lagð­ist gegn breyt­ingum í borg­ar­ráði og í bók­unum í fund­ar­gerðum borg­ar­innar má lesa að full­trúar hans og Flokks fólks­ins telji sér­stakar leyf­is­veit­ingar fyrir hunda tíma­skekkju.

„Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks fagna lækkun hunda­eft­ir­lits­gjalds en myndu heldur vilja að gjaldið yrði að fullu fellt niður og hunda­eft­ir­lit Reykja­víkur lagt niður. Hunda­eig­endur hafa ekki notið þjón­ustu í skiptum fyrir hunda­eft­ir­lits­gjald borg­ar­innar og telja inn­heimt­una því órétt­mæta gjald­töku,“ segir í bókun borg­ar­ráðs­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks.

Þeir sögðu einnig að örmerkja­skrán­ingar hunda­eig­enda í land­lægan gagna­grunn ættu að fela í sér nægi­lega skrán­ingu og bentu á að í Bret­landi og í öðrum nor­rænum ríkjum hefði sveit­ar­fé­lög lagt niður sína skrán­ing­ar­skyldu eftir að land­lægir örmerkja­gagna­grunnar komu til sög­unnar.

„Hið opin­bera þarf ekki að sinna sér­stöku eft­ir­liti eða skrá­setn­ingum hunda enda hafa borg­ar­búar og einka­fram­tak tekið sér þessi verk­efni í hendur með far­sælum hætti hér­lendis,“ segir í bók­un­inni.

Sagði hundaeftirlitsmenn hafa „lítið sem ekkert að gera“

Kolbrún Bald­urs­dóttir áheyrn­ar­full­trúi Flokks fólks­ins í borg­ar­ráði sagði það úrelt fyr­ir­komu­lag að vera að fylgj­ast sér­stak­lega með hunda­haldi í Reykja­vík. Í bókun hennar segir að hunda­eft­ir­lit borg­ar­innar sé óþarfi. Aðeins 8 hundar hefðu verið vistaðir í geymslu árið 2018 og kvört­unum fækkað niður í nokkra tugi árlega.

„Samt sem áður hefur starfs­gildum ekki fækkað sem er léleg nýt­ing á fjár­munum hunda­eig­enda. Að hunda­leyf­is­gjöldin standi ekki undir kostn­aði stenst ekki skoðun því ástæðan er launa­kostn­aður starfs­manna sem hafa lítið sem ekk­ert að gera og sinna til­gangs­lausum verk­efnum,“ segir í bókun Kol­brúnar frá 4. febr­úar.

Hún sat hjá við end­an­lega afgreiðslu máls­ins í borg­ar­stjórn í lið­inni viku og gagn­rýndi á ný að verið væri að halda skrá yfir hunda og hunda­eig­endur.

„Hunda­eig­endur standa einir undir öllum kostn­aði við dýra­eft­ir­lit í borg­inni. Hunda­eig­endur sjá um sig sjálfir enda eru þeir öfl­ugir á sam­fé­lags­miðlum og fljótir til að aðstoða hvern annan ef upp koma vanda­mál. Hundar valda sjaldan tjóni og hægt er að tryggja hunda hjá trygg­ing­ar­fé­lögum. Hunda­eft­ir­lits­gjaldið er ekk­ert annað en refsiskattur sem lýsir for­dómum,“ segir í bókun Kol­brúnar frá því á þriðju­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár