Hástökk Sigmundar Davíðs í kosningaspánni

Tveir flokkar njóta mests stuðn­ings í aðdrag­anda kosn­ing­anna. Framboð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar mælist í fyrsta sinn í kosn­inga­spánni.

Stuðn­ingur við íslenska stjórn­mála­flokka hverf­ist nú að mestu leyti um tvo flokka. Það eru Vinstri hreyf­ingin - grænt fram­boð og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Þessir flokkar hafa sögu­lega stillt sér upp hver á sinn end­ann í hefð­bundnum íslenskum stjórn­málum.

Nýjasta kosn­inga­spáin, sem unnin er af Baldri Héð­ins­syni stærð­fræð­ingi og Kjarn­anum, sýnir Vinstri græna vera enn stærsta stjórn­mála­aflið í aðdrag­anda kosn­ing­anna 28. októ­ber næst­kom­andi með 24,3 pró­sent fylgi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar heilu pró­sentu­stigi á milli kosn­inga­spáa og er nú með 23 pró­sent fylgi.

Aðrir flokkar reikn­ast með minna en 10 pró­sent stuðn­ing, fyrir utan Pírata sem myndu fá um 10,9 pró­sent atkvæða ef kosið væri nú. Íslenska stjórn­mála­lands­lagið virð­ist þess vegna hverf­ast að miklu leyti um tvo turna.

Ef úrslit kosn­inga verða í ein­hverri lík­ingu við þetta þá er ljóst að rík­is­stjórn­ar­myndun mun að miklu leyti stjórn­ast af því hversu vel Katrín Jak­obs­dóttir og Bjarni Bene­dikts­son tekst að sann­færa aðra flokka um sam­starf við sig.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir Viðreisn og Björt fram­tíð eiga jafn­framt hættu á að ná ekki kjöri ef fram heldur sem horfir. Í síð­ustu kosn­inga­spám hafa þessir flokkar mælst með lít­inn stuðn­ing. Viðreisn mælist ítrekað með litlu meira en fimm pró­sent og Björt fram­tíð er ávalt minnstur þeirra flokka sem mæl­ast með nægi­legt fylgi til þess að kom­ast að í kosn­inga­spánni.

Það er ágæt þum­al­putta­regla að miða við að flokkur þurfi að fá fimm pró­sent atkvæða í kosn­ingum á lands­vísu til þess að ná kjöri. Það gæti hins vegar verið svo að flokkur fái mun meira fylgi í einu kjör­dæmi umfram önnur og náð kjöri þannig, þrátt fyrir lítið fylgi á lands­vísu.

Sam­fylk­ingin er eini flokk­ur­inn sem bætir við sig í kosn­inga­spánni frá fyrri spá, fer upp um 0,5 pró­sent. Framboð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar verður þó að telj­ast mesti hástökkvar­inn í þess­ari kosn­inga­spá því fram­boð hans (sem hafði ekki fengið nafn þegar nýjasta könn­unin í kosn­inga­spánni var gerð) mælist með 7,1 pró­sent stuðn­ing. Allir flokkar utan Sam­fylk­ing­ar­innar minnka við þetta hástökk Sig­mundar Davíðs.

Þess ber þó að geta að mæl­ingin á stuðn­ingi við Mið­flokk­inn, fram­boð Sig­mundar Davíðs, er óáreið­an­leg­asta mæl­ingin í kosn­inga­spánni. Aðeins ein könnun býr að baki þeim gagna­punkti sem birt­ist hér, miðað við fjórar kann­anir sem sýna fylgi ann­arra fram­boða. Aðeins tím­inn – og fleiri kann­anir – munu færa fylgi Sig­mundar Davíðs meira vægi í kosn­inga­spánni.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni (gerð 29. sept­em­ber 2017) eru eft­ir­far­andi.

  • Skoð­ana­könnun MMR 26. – 28. sept­em­ber (vægi 37,7%)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 19. – 21. sept­em­ber (vægi 26,9%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins, Stöðvar 2 og Vísis 18. sept­em­ber (vægi 18,8%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 10. – 30. ágúst (vægi 16,5%)

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Til útskýr­ingar má segja að vægi kann­ana er gefið eftir því hversu næmur könn­un­ar­að­il­inn og aðferðir hans eru á raun­veru­legar hreyf­ingar í sam­fé­lag­inu. Kosn­ingar eru auð­vitað eini mæli­kvarð­inn á það hversu vel könn­un­ar­að­ilum tekst upp svo miðað er við sögu­leg gögn og þau borin saman við kosn­inga­úr­slit til að ákvarða áreið­an­leika. Þá skiptir máli hversu langt er liðið síðan könn­unin var gerð og hversu margir tóku þátt í henni.

Kjarn­inn birti Kosn­­inga­­spá Bald­­urs fyrst í aðdrag­anda sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­a 2014 og reynd­ist sú til­­raun vel. Á vefnum kosn­­inga­­spá.is má lesa nið­­ur­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­vik kann­ana miðað við kosn­­inga­úr­slit­in.

Kosn­­inga­­spá Kjarn­ans og Bald­­urs Héð­ins­­sonar er nú keyrð í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 28. októ­ber í annað sinn. Kosn­inga­spáin fékk mikla athygli fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar 2016, ekki síst fyrir þing­sæta­spána þar sem spáð var um hvaða fram­bjóð­endur myndu ná kjöri. Nánar um það hér að neðan.

Í nýj­­ustu kosn­­inga­­spánni hverju sinni eru nýj­ustu kann­anir könn­un­ar­að­ila vegnar eftir áreið­an­leika. Fylgi ein­stakra fram­boða er svo fundið með vegnu með­al­tali úr þeim könn­unum sem liggja til grund­vallar hverri spá fyrir sig. Spálíkanið sem Baldur hefur útbúið byggir að veru­legu leyti á aðferðum Nate Silver. Um það má lesa hér. Vægi hverrar könn­unar fyrir sig er metið út frá fyr­ir­fram gefnum for­sendum, eins og stærð úrtaks, fjölda svar­enda, lengd könn­un­ar­tíma­bils og áreið­an­leika könn­un­ar­að­ila. Áreið­an­leiki könn­un­ar­að­ila byggir á því hversu nærri kann­an­irnar hafa kom­ist nið­ur­stöðum kosn­inga á und­an­förnum árum.

Þær kann­anir sem teknar eru gildar í kosn­inga­spánni verða að upp­fylla lág­marks skil­yrði töl­fræði­legrar aðferða­fræði. Þar er litið til stærðar úrtaks­ins, fjölda svar­enda, könn­un­ar­tíma­bils og þess hvort úrtakið stand­ist kröfur til að reyn­ast mark­tækt, svo fátt eitt sé nefnt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár