Heimurinn að rétta úr kútnum

Póli­tískar deilur eru við­var­andi en staða efna­hags­mála í heim­inum hefur batnað hratt að und­an­förnu.

Angela Merkel og Donlald Trump áttu sinn fyrsta fund fyrir helgi. Þau eru af mörgum talin vera í forystu fyrir andstæð öfl í heiminum í dag.
Angela Merkel og Donlald Trump áttu sinn fyrsta fund fyrir helgi. Þau eru af mörgum talin vera í for­ystu fyrir and­stæð öfl í heim­inum í dag. Mynd: EPA

Þó nei­kvæðir straumar frá hinu póli­tíska sviði séu áber­andi um allan heim þessi miss­erin þá er staða efna­hags­mála að batna víða um heim. Það á við um Evrópu, Banda­ríkin, mörg Asíu ríki og Suður-Ameríku einnig. Umdeildar emb­ætt­is­færslur Donalds Trumps og deilur um allt mögu­legt, hafa átt sviðið hjá stjórn­mála­mönn­unum, en kröft­ugur efna­hags­bati víða um heim hefur ekki kom­ist mikið að í fyr­ir­sögnum.

[links]Í leið­ara The Economist segir að þessu tíð­indi sum part óvænt, þar sem fátt hafi bent til þess að efna­hagur heims­ins myndi rétta jafn kröft­ug­lega úr kútnum og hann hefur gert að und­an­förnu.

Efnahagur Bandaríkjanna styrkist

Í Banda­ríkj­unum sköp­uð­ust 298 þús­und ný störf í febr­úar, sem var langt fyrir spám grein­enda og með því mesta sem sést hefur í einum mán­uði tæp­lega þrjú ár. Í 77 mán­uði í röð hafa ný störf orðið til í Banda­ríkj­unum og flestar spár gera ráð fyrir vexti og fram­þróun á næstu miss­erum. Atvinnu­leysi er nú undir 5 pró­sent að með­al­tali, en staða efna­hags­mála er þó æði mis­jöfn eftir ríkjum. Best er hún í strand­ríkjum á austur- og vest­ur­strönd­inni en efna­hags­bat­inn hefur þó náð til flestra ríkja.

Og líka í Evrópu

Í Evrópu hefur hag­vöxtur verið við­var­andi síð­ustu átján mán­uði en atvinnu­leysi er þó enn um 10 pró­sent að með­al­tali. Samt hafa töl­urnar ekki verið lægri frá því árið 2009 þegar þær fóru hratt hækk­andi, ekki síst í Suður-Evr­ópu­ríkjum. En eftir miklar örv­un­ar­að­gerðir Seðla­banka Evrópu, þar sem pen­ingum hefur verið dælt út á markað í gegnum skulda­bréfa­kaup fyr­ir­tækja, ekki síst fjár­mála­fyr­ir­tækja, þá hafa hjólin farið að snú­ast hraðar og hag­vöxtur auk­ist.

En hvað með nýmarkaðsríkin?

Í The Economist kemur fram að stór lönd eins og Rússland og Brasilía, sem hafa gengið í gegnum mikla erf­ið­leika und­an­farin þrjú ár, gætu sýnt góðar hag­vaxtar tölur á þessu ári, þvert á það sem talið var fyrir skömmu síðan. Olíu­drif­inn efna­hagur land­anna hefur sýnt bata­merki eftir mikla lægð, þó enn sé langt í að staðan verði góð, einkum í Brasilíu. Þar búa 200 millj­ónir manna, eða sem nemur meira en sam­an­lögðum íbúa­fjölda allrar Suður-Evrópu, og hafa erf­ið­leikar þar rist djúpt í hag­kerfi Suður-Ameríku.

Ísland í fordæmalausri stöðu

En hvernig blasir staðan á litla Íslandi við, í þessu sam­hengi? Þó það sé ekki mikið upp úr því að hafa, að bera stöðu mála á Íslandi saman við stór­þjóðir, þá verður ekki annað sagt en að bjartir tímar séu á Íslandi þessi miss­erin.

Í fyrra var hag­vöxtur 7,2 pró­sent og hvergi í heim­inum hefur fast­eigna­verð hækkað hraðar en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu und­an­farið ár. Hækkunin nemur 18,6 pró­sentum. Þá er sár vöntun á vinnu­afli, og útlit fyrir áfram­hald­andi hag­vöxt og hækk­anir á fast­eigna­mark­aði. Drif­kraft­ur­inn er mik­ill vöxtur í ferða­þjón­ustu en spár gera ráð fyrir að 2,3 millj­ónir manna sæki Ísland heim á þessu ári, sam­an­borið við 1,8 millj­ónir í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár