Betra ástand á evrusvæðinu en í Bandaríkjunum

Hag­vöxtur var meiri á evru­svæð­inu í fyrra en í Banda­ríkj­unum. Atvinnu­leysi hefur minnkað, störfum fjölgað mikið og jákvæðni gagn­vart hag­kerf­inu er meiri en verið hefur lengi. Við­mæl­endur Financial Times furða sig á því hvað bat­inn á evru­svæð­inu fer lágt.

Hag­vöxtur hefur nú mælst á evru­svæð­inu í fjórtán árs­fjórð­unga í röð, atvinnu­leysi hefur minnkað og er nú komið undir 10% og við­horf gagn­vart hag­kerf­inu hefur ekki verið jákvæð­ara í sex ár. Frá þessu er greint í Financial Times, þar sem tekið er fram að þessi efna­hags­bati hafi farið lágt í sam­an­burði við hástemmd mark­mið og plön Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta.

Þar er haft eftir Erik Nielsen, yfir­hag­fræð­ingi hjá UniCredit, að honum komi sífellt á óvart hversu mikil nei­kvæðni ríki í garð Evrópu. Slík við­horf séu að mestu leyti byggð á því sem virð­ist vera yfir­borðs­kennd skoðun á gögnum, eða kannski val­kvæðum stað­reyndum. Í raun sé það þannig að í jan­úar hafi fjöldi nýrra starfa á evru­svæð­inu verið meiri en und­an­farin níu ár.

Þrátt fyrir miklar áhyggjur af ítölskum bönkum og hinni lang­vinnu kreppu á Grikk­landi hafi hag­vöxtur á evru­svæð­inu á fjórða árs­fjórð­ungi í fyrra verið 0,5 pró­sent. Það er meira en í Banda­ríkj­unum. Þegar litið er á allt árið 2016 var vöxt­ur­inn 1,7 pró­sent á evru­svæð­inu en 1,6 pró­sent í Banda­ríkj­unum.

Grein­endur Financial Times segja nokkrar ástæður fyrir þessu batn­andi efna­hags­á­standi á evru­svæð­inu. Meðal ann­ars sé að verða ára­tugur frá því að fjár­málakreppan hófst og ákvörðun Breta um að yfir­gefa ESB hafi ekki reynst það áfall sem margir ótt­uð­ust. Þá hafi pen­inga­stefna Seðla­banka Evrópu loks­ins farið að virka, og heim­ili og fyr­ir­tæki hafi farið að fá lánað og eyða. Það sé inn­lend eft­ir­spurn sem hafi að mestu leyti orsakað vöxt­inn.

Hag­vöxtur hefur farið batn­andi um allt evru­svæðið, nema á Ítalíu, og til að mynda var 3,2% vöxtur á Spáni í fyrra. Focus Economics, sem tekur saman ýmiss konar hag­spár, hefur vakið athygli á því að mesta hækk­unin í hag­vaxt­ar­spám fyrir þetta ár sé í Evrópu. Jafnvel árið 2018, þegar skatta­lækk­anir og aðrar efna­hags­að­gerðir Donalds Trump eiga að hafa sem mest áhrif, eru nýj­ustu spár fyrir evru­svæðið á pari við Banda­ríkin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

evran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár