Rússneskir borgarar einangraðir enn frekar með lokun Instagram

Rúss­neska fjöl­miðla­eft­ir­litið hefur lokað fyrir notkun þegna sinna á öllum stærstu sam­fé­lags­miðlum heims og sett Meta, móð­ur­fyr­ir­tæki Facebook, á lista sinn yfir öfga­full sam­tök.

Instagram er mest notaði samfélagsmiðillinn í Rússlandi.
Instagram er mest not­aði sam­fé­lags­mið­ill­inn í Rúss­landi. Mynd: Claudio Schwarz on Unsplash

Stjórn­völd í Rúss­landi hafa tekið enn eitt skrefið í átt að því að ein­angra þegna sína frá umheim­inum, en eftir að hafa lokað fyrir aðgang að Facebook og Twitter í Rúss­landi fyrir rúmri viku síðan var ákvörðun tekin í gær um að loka einnig fyrir aðgang að Instagram.

Var sú ákvörðun tekin í kjöl­far þess að Instagram, dótt­ur­fyr­ir­tæki Meta, til­kynnti að slaka ætti á reglum um hat­urs­orð­ræðu á sam­fé­lags­miðl­inum í tengslum við inn­rás Rúss­lands í Úkraínu. Þannig muni sam­fé­lags­mið­ill­inn ekki rit­skoða ákall um ofbeldi gegn Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta eða her­mönnum hans sem standa að árásinni.

Vegna þessa hafa rúss­nesk stjórn­völd einnig sett Meta, móð­ur­fyr­ir­tæki Instagram, Facebook og Whatsapp, á lista yfir öfga­full sam­tök, en í yfir­lýs­ingu er því haldið fram að fyr­ir­tækið hafi stuðlað að og ýtt undir ofbeld­is­full mót­mæli og átök.

Fyrir utan þá ein­angrun frá umheim­inum sem lokun sam­fé­lags­miðl­anna felur í sér, auk þess sem rúss­neskur almúg­inn hefur nán­ast engan aðgan að frétta­veitum öðrum en þeim rík­is­reknu í Rúss­landi, er Instagram langstærsti sam­fé­lags­mið­ill­inn í Rúss­landi og reiðir fjöldi smárra rúss­neskra fyr­ir­tækja sig á sam­fé­lags­mið­il­inn. Þá má heldur ekki gleyma áhrifa­völdum, einnig úr röðum afkom­enda rúss­neskra ólíg­arka.

Whatsapp í hættu

Er WhatsApp þá eini sam­fé­lags­mið­ill­inn undir Meta sem enn er hægt að nota innan Rúss­lands, en margir eru þó ugg­andi vegna yfir­vof­andi örlögum skila­boða­for­rits­ins í ljósi þess að móð­ur­fyr­ir­tæki þess er komið á lista Rússa yfir öfga­full sam­tök. Mikið er þar í húfi þar sem Whatsapp er mest not­aða skila­boða­for­ritið í Rúss­landi og fer 60% allra inter­net­skila­boða í Rúss­landi fram í gegnum Whatsapp, að því er Mary Ilyus­hina, blaða­maður Washington Post um mál­efni Rúss­lands, greinir frá á Twitter.

Áróð­ursmask­ínan svo­kall­aða í Rúss­landi virð­ist eftir fremsta megni reyna að ganga úr skugga um að hinn almenni borg­ari í Rúss­landi viti sem minnst um það sem er að eiga sér stað í Úkraínu, meðal ann­ars með því að sýna fölsuð eða úrelt mynd­skeið af auðum og frið­sælum borg­ar­hlutum í Úkraínu þar sem stríð geisar í raun og veru. Þá eiga allir sem mót­mæla inn­rásinni, sem og þeir sem dreifa því sem rúss­nesk yfir­völd kalla fals­fréttir, þar eð efni og upp­lýs­ingar um inn­rás­ina, yfir höfði sér fang­els­is­vist.

Stjórn­völd í Rúss­landi hafa þannig tals­verða hags­muni í því að halda þegnum sínum grun­lausum um þær hörm­ungar sem her þeirra er að valda nágrönnum þeirra í Úkraínu, og er einn liður í því að hindra aðgang almennra Rússa að sam­fé­lags­miðlum.

Almenn­ingur víðs vegar um heim deyr hins vegar ekki ráða­laus og hefur til að mynda brugðið á það ráð að not­ast við ferða­miðla á borð við Tripa­dvisor til þess að skilja eftir gagn­rýni (e. Reveiw) um rúss­neska veit­inga­staði og hótel þar sem í stað þess að fara fögrum, nú eða ófögrum, orðum um mat­inn eða þjón­ust­una, deila þeir upp­lýs­ingum um inn­rás­ina í Úkraínu í von um að ná til almennra borg­ara í Rúss­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár