34,5% styðja ríkisstjórnina

Litlar breyt­ingar eru á fylgi flokka milli kann­ana hjá MMR. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærsti flokk­ur­inn, en VG sá næst­stærsti. Björt fram­tíð og Viðreisn njóta minnst fylgis flokka á Alþingi.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærsti flokkur lands­ins og mælist með 25,4 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun MMR. Sam­starfs­flokkar hans í rík­is­stjórn, Viðreisn og Björt fram­tíð, eru hins vegar minnstu flokk­arnir af þeim sem náðu kjöri á Alþingi. Viðreisn mælist með 5,5 pró­sent fylgi og Björt fram­tíð 5 pró­sent.

Vinstri græn mæl­ast með næst mest fylgi stjórn­mála­flokka, 23,5 pró­sent. Píratar mæl­ast með 13,7 pró­sent, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 11,4 pró­sent og Sam­fylk­ingin 8,8 pró­sent. Fylgi ann­arra flokka mælist sam­an­lagt 6,9 pró­sent.

[adspot]

Allar breyt­ingar á fylgi flokk­anna eru innan vik­marka, en allir flokkar nema Sam­fylk­ingin og Píratar mæld­ust með aðeins minna fylgi en í síð­ustu könnun.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina minnk­aði milli mæl­inga, var 37,9 pró­sent í síð­ustu könnun en nú sögð­ust 34,5 pró­sent styðja rík­is­stjórn­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár