Íslendingar hafa miklar áhyggjur af plastmengun, súrnun og hærra hitastigi sjávar

Meiri­hluti Íslend­inga hefur miklar áhyggjur af umhverf­is­á­hrifum í haf­inu. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa minnstar áhyggjur en kjós­endur Vinstri-grænna mestar áhyggjur.

Ríflega 80 pró­sent Íslend­inga hafa miklar áhyggjur af plast­mengun í haf­inu, sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun sem Gallup gerði fyrir Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands. 68,5 pró­sent hafa miklar áhyggjur af hækkun á hita­stigi hafs­ins og 66 pró­sent hafa miklar áhyggjur af súrnun hafs­ins.

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin segja nið­ur­stöð­urnar áhuga­verðar í ljósi þess að Ísland hafi enn ekki mótað neina sam­hæfða stefnu um það hvernig eigi að vernda líf­ríki hafs­ins gegn hnatt­rænum umhverf­isógnum eins og súrnun hafs, plast­mengun og hækk­andi hita­stigi.

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins höfðu í öllum til­vikum minnstar áhyggjur en kjós­endur VG mestar áhyggjur.

Mestar áhyggjur af plastmengun í hafi

Yfir 80 pró­sent aðspurðra hafa frekar eða mjög miklar áhyggjur af plast­mengun í sjónum, líkt og fyrr segir. 10,4 pró­sent aðspurðra sögð­ust hafa litlar eða engar áhyggjur af plast­mengun í haf­inu, og rúm­lega níu pró­sent sögð­ust hvorki hafa miklar né litlar áhyggjur af meng­un­inni. Mark­tækur munur var á svörum fólks eftir því hvar á land­inu það býr, eftir menntun þess og eftir því hvaða stjórn­mála­flokk það hyggst kjósa.

Þannig hafa 82% íbúa Reykja­víkur miklar áhyggjur af plast­meng­un­inni, 84% íbúa í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­innar, en 75% íbúa í öðrum sveit­ar­fé­lögum. Þá hafa 80% þeirra sem eru með grunn­skóla­próf miklar áhyggjur, 79% þeirra sem hafa við­bót við grunn­skóla­próf og 85% þeirra sem hafa háskóla­próf. Hlut­fallið er lægst með fram­halds­skóla­mennt­aðra, 77% þeirra hafa miklar áhyggjur af plast­mengun í haf­inu.

Þá hafa kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins minnstar áhyggjur plast­mengun í sjónum, 66% þeirra hafa mjög miklar eða frekar miklar áhyggjur af mál­inu. Næst koma kjós­endur Við­reisnar, en 71% þeirra hafa miklar áhyggjur af plast­mengun, líkt og 80% kjós­enda Fram­sóknar og 88% kjós­enda Pírata. 93% kjós­enda Bjartrar fram­tíðar hafa miklar áhyggjur og næstum allir, eða 98% kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna.

Íbúar höfuðborgarsvæðis áhyggjufyllri en aðrir

68,5% aðspurðra hafa áhyggjur af hækkun á hita­stigi hafs­ins, en 17,4% hafa hvorki miklar né litlar áhyggjur og 14% hafa litlar eða engar áhyggjur. Líkt og með plast­mengun er mark­tækur munur á svörum eftir búsetu, menntun og stjórn­mála­skoð­unum.

71% íbúa Reykja­víkur hafa miklar áhyggjur af hækk­andi hita­stigi sjávar og 73% fólks í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur. Færri, eða 61 pró­sent í öðrum sveit­ar­fé­lögum, hafa miklar áhyggjur af hækk­andi hita­stigi. Áhyggjur af hækk­andi hita­stigi hafs­ins aukast með auk­inni menntun, 57% þeirra sem hafa grunn­skóla­próf hafa miklar áhyggjur af því en 77% þeirra sem hafa háskóla­próf.

54% kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa áhyggjur af hækk­andi hita­stigi, 63 pró­sent kjós­enda Við­reisnar og 64 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. 76% kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar, Bjartrar fram­tíðar og Pírata hafa miklar áhyggjur af hækk­andi hita­stigi og 92 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna.

Minnihluti Sjálfstæðismanna með miklar áhyggjur af súrnun sjávar

Súrnun hafs­ins veldur 65,9% mjög eða frekar miklum áhyggjum, en 19,5% hvorki miklum né litlum áhyggjur og 14,6% litlum eða engum áhyggjum. Mark­tækur munur er eftir aldri, en ekki búsetu eða menntun. Hins vegar er áfram mark­tækur munur á svörum eftir stjórn­mála­skoð­unum. Elsti ald­urs­hóp­ur­inn, 65 ára og eldri, hefur mestar áhyggjur af súrnun sjávar, eða 76%.

48% kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa miklar áhyggjur af súrnun sjávar, 56% kjós­enda Við­reisnar og 60% kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. 72% kjós­enda Bjartrar fram­tíðar, 73% kjós­enda Pírata, 75% Sam­fylk­ing­ar­kjós­enda og 89% kjós­enda Vinstri grænna hafa miklar áhyggjur af súrnun sjávar.

Könnunin var gerð 6. til 13. októ­ber, var net­könnun þar sem 1423 af öllu land­inu voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup. Þátt­töku­hlut­fallið var 59,6%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár