86 manns sagt upp hjá HB Granda

HB Grandi á Akranesi hefur ákveðið að segja 86 starfs­mönnum upp.

Viðræður fyrirtækisins við Akraneskaupstað hafa nýst vel en ekki breytt áformum fyrirtækisins um að sameina vinnslu fyrirtækisins á Akranesi og Reykjavík.
Viðræður fyr­ir­tæk­is­ins við Akra­nes­kaup­stað hafa nýst vel en ekki breytt áformum fyr­ir­tæk­is­ins um að sam­eina vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins á Akranesi og Reykja­vík. Mynd: Birgir Þór Harðarson

86 manns verður sagt upp störfum hjá HB Granda á Akranesi fyrir næstu mán­aða­mót. Þetta var til­kynnt á fundi með trún­að­ar­mönnum í dag, og kemur einnig fram í til­kynn­ingu HB Granda til Kaup­hall­ar­innar.

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að við­ræður við Akra­nes­kaup­stað und­an­farið hafi nýst vel en ekki breytt áformum fyr­ir­tæk­is­ins um að sam­eina botn­fisk­vinnsl­una á Akranesi við botn­fisk­vinnsl­una í Reykja­vík. Það verður gert þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi.

„Samtímis og jafn­framt verður starfs­fólki boðið að sækja um önnur störf hjá HB Granda og dótt­ur­fé­lögum í Reykja­vík og á Akranesi. Vonir standa til að hægt verði að bjóða öllu starfs­fólki sem þess óskar starf við hæfi,“ segir í til­kynn­ingu HB Granda. Þar segir jafn­framt að starfs­fólk sem ekki fær vinnu við hæfi muni fá aðstoð við atvinnu­leit á vegum fyr­ir­tæks­is­ins.

Áfram verður önnur starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins og dótt­ur­fé­laga á Akranesi, og fyr­ir­tækið seg­ist ætla að leggja kraft í að efla þá starf­semi og full­vinnslu sjáv­ar­af­urða á Akranesi.

Til­kynn­ingin til Kaup­hall­ar­innar er hér að neðan.

Á fundi trún­að­ar­manna HB Granda og for­svars­manna HB Granda á Akranesi 11. maí 2017, var farið yfir áform um að leggja af fisk­vinnslu í botn­fisk­vinnslu sinni á Akranesi. Að höfðu sam­ráði við full­trúa starfs­manna og stétt­ar­fé­laga hafa staðið yfir við­ræður við Akra­nes­kaup­stað og einnig hafa feng­ist upp­lýs­ingar frá Faxa­flóa­höfnum og Reykja­vík­ur­borg. Við­ræð­urnar hafa nýst vel til gagn­kvæmra upp­lýs­inga og munu gagn­ast aðilum til fram­tíðar.

Nið­ur­staða við­ræðna hefur þó ekki breytt þeim áformum HB Granda að sam­eina botn­fisk­vinnslu félags­ins á Akranesi við botn­fisk­vinnslu félags­ins í Reykja­vík þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi.

Hjá HB Granda og dótt­ur­fé­lögum á Akranesi starfa 270 manns, þar af vinna 86 við botn­fisk­vinnsl­una sem fá upp­sagn­ar­bréf fyrir næstu mán­aða­mót. Samtímis og jafn­framt verður starfs­fólki boðið að sækja um önnur störf hjá HB Granda og dótt­ur­fé­lögum í Reykja­vík og á Akranesi. Vonir standa til að hægt verði að bjóða öllu starfs­fólki sem þess óskar starf við hæfi.

Starfs­fólk sem ekki fær vinnu við hæfi býðst aðstoð við atvinnu­leit á vegum HB Granda. HB Grandi mun hafa sam­ráð við trún­að­ar­menn og stétt­ar­fé­lög þeirra.

HB Grandi rekur eftir sem áður upp­sjáv­ar­vinnslu, fiski­mjöls­verk­smiðju og dótt­ur­fé­lögin Norð­an­fisk og Vignir G. Jónsson á Akranesi. Félagið mun leggja kraft í að efla þessar rekstr­ar­ein­ingar og full­vinnslu sjáv­ar­af­urða á Akranesi.

For­ráða­menn Akra­nes­kaup­staðar og HB Granda munu halda áfram við­ræðum um að standa að frek­ari upp­bygg­ingu atvinnu­lífs á Akranesi. Einn liður í því er að full­trúar Akra­nes­kaup­staðar í Faxa­flóa­höfnum beiti sér fyrir því að ráð­ist verði í nauð­syn­legar við­halds­að­gerðir á Akra­nes­höfn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár