Fordæmalaus niðurskurður stofnanna en mikil aukning til hersins

Trump leggur fram fjár­laga­frum­varp fyrir næsta ár í Banda­ríkja­þingi í dag.

Donald J. Trump kynnti í gær rík­is­fjár­mála­ætlun sína en hann mun í dag leggja fram fjár­laga­frum­varp fyrir árið 2018 í þing­inu. Áætlunin gerir ráð fyrir gríð­ar­legum breyt­ingum frá því sem nú er. Nið­ur­skurður verður for­dæma­laus hjá næstum öllum und­ir­stofn­unum rík­is­ins og má búast við fjölda­upp­sögnum og nið­ur­fell­ingum á ýmsum verk­efnum, ekki síst á alþjóða­vett­vangi, strax í byrjun næsta árs.

Herinn og innviðir fá innspýtingu

Aukning verður í þremur mála­flokkum. Í sam­göngu­mál er aukn­ingin 13 pró­sent, og hlut­falls­lega mest, til hers­ins um 10 pró­sent og síðan til varn­ar­mála­stofn­anna inn­an­lands um 7 til 10 pró­sent. Aukn­ingin til hers­ins er lang­sam­lega mest í Banda­ríkja­dölum mælt, eða 54 millj­arðar Banda­ríkja­dala.

Nið­ur­skurð­ar­hníf­ur­inn lendir harðar á stofnun umhverf­is­mála (EPA) en þar er boð­aður 30 pró­sent nið­ur­skurður. Til utan­rík­is­mála er boð­aður tæp­lega 30 pró­sent nið­ur­skurður, en þar undir heyra meðal ann­ars fram­lög til Sam­ein­uðu þjóð­anna, mann­úð­ar­mála og ýmissa alþjóð­legra verk­efna sem Banda­ríkin koma að. Gert er ráð fyrir að fram­lög Banda­ríkj­anna til Sam­ein­uðu þjóð­anna verði skert um 50 pró­sent, og fari úr 10 millj­örðum Banda­ríkja­dala niður í 5 millj­arða Banda­ríkja­dala.

Bitnar mest á fólki í neyð

Þessi nið­ur­skurður mun bitna einna harð­ast á flótta­mönnum í gegnum Flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna. Banda­ríkin hafa lagt til 1,5 millj­arð Banda­ríkja­dala af um fjórum millj­örðum sem Flótta­manna­hjálpin fær, og má búast við miklum nið­ur­skurði, sem bitnar hart á flótta­mönnum í neyð, ef ekki kemur til svipað fjár­fram­lag á móti frá öðrum þjóðum.

Þá er nið­ur­skurð­ur­inn á fram­lögum ýmissa vel­ferð­ar­mála, svo sem hús­næð­is­þró­un­ar­verk­efna á vegum hins opin­bera, mennta­mála, atvinnu­mála og félags­mála, veru­legur, eða á bil­inu 15 til 17 pró­sent. Nið­ur­skurður á fram­lögum rík­is­ins til land­bún­að­ar­mála er einna mestur, eða tæp­lega þrjá­tíu pró­sent, og þá lækka fram­lögum til NASA, geim­vís­inda­stofn­un­ar­innar, um eitt pró­sent, en stjórn­endur hennar höfðu sótt það fast að fá veru­lega aukn­ingu á fjár­munum til að sinna mik­il­vægum rann­sóknum.

Barátta framundan

Í umfjöllun Bloomberg kemur fram að búast megi við mik­illi póli­tískri bar­áttu um áherslun Trumps, sem rýma nær alveg við stefnu hans (American First) um að setja banda­ríska hags­muni í fyrsta sætið með þeim hætti sem lýst er í rík­is­fjár­mála­á­ætl­un­inni.

Í ljósi þess hversu gríð­ar­lega umfangs­mikil fjár­fram­lögin eru til hers­ins, þá er jafn­vel búist við að útgjöld verði meiri á næsta ári en þau voru á þessu, sam­kvæmt þess­ari áætlun sem birt­ist í frum­varp­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár