Laxeldi Norðmenn hafa fjár­fest mikið í lax­eldi, meðal ann­ars félagið Arctic Sea Farm hér í Pat­reks­firði fyrir vestan. Félagið er í eigu Arctic Fish sem aftur er í eigu Norð­manna. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Innrásin: Útlendingar eignast íslenska innviði

Ef árin 2005 til 2007 voru tími útrásarinnar er 2021 ár innrás­ar­innar. Í stað þess að íslenskir fjár­festar taki yfir fyrirtæki erlendis í stórum stíl eru erlendir fjár­festar að kaupa upp eignir hér á landi. Sala á greiðslu­miðlun leiðir af sér að greiðslur Íslendinga innanlands gætu stöðvast í útlöndum ef til krísu kæmi.

Norðmenn eiga nánast allt laxeldi á Íslandi og norskt fyrirtæki keypti sælgætis­gerðina Nóa Siríus skömmu eftir hundrað ára afmælið. Erlendir aðilar hafa þegar keypt stóru greiðslu­miðlunar­fyrirtækin og fjarskipta­innviði og fjarskiptanet Mílu hefur verið selt á 78 milljarða króna til alþjóð­legs fyrir­tækis. Síðustu misseri hafa fréttir af kaupum erlendra aðila á íslenskum fyrir­tækjum og innviðum hrannast inn eins og árið sé 2007 á röngunni.

Á sama tíma er ekki allt sem sýnist, því hagtölur segja aðra sögu af stöðu Íslendinga gagnvart umheiminum. 

Uppnám við sölu á greiðslumiðlun

Í sumar var komin upp sú staða að bæði stóru greiðslu­miðlunar­fyrirtækin á Íslandi voru komin undir erlent eignar­hald. 

Einn þeirra sem hefur áhyggjur af stöðu greiðslu­miðlunar á Íslandi er Gylfi Magnússon, hagfræði­prófessor og forseti viðskipta­fræði­deildar Háskóla Íslands, auk þess að vera fyrr­verandi efnahags- og viðskipta­ráðherra utan þings í ríkis­stjórninni sem tók við eftir efnahags­hrunið.

„Þetta er satt best að segja stór­mál“
Gylfi Magn­ús­son hag­fræð­ingur
Um kaup erlendra aðila á greiðslu­miðlun Íslend­inga

„Þetta er satt best að segja stórmál, eða getur orðið það í krísu,“ segir hann í samtali við Stundina. „Það skipti til dæmis máli 2008 að öll debet­kortin og undir­liggjandi innstæðu­kerfi var íslenskt. Íslendingar gátu gripið til aðgerða til þess að tryggja þau kerfi. Það er alls ekki ljóst að ef sama staða kæmi upp aftur væri hægt að gera það með sama hætti. Færslurnar á Íslandi gætu strandað erlendis.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár