Deila um uppbyggingu við Elliðaárdal - Er dalurinn friðaður eða ekki?

Minni­hluti borg­ar­stjórnar leggst gegn breyt­ingu á deiliskipu­lagi við Elliða­ár­dal vegna upp­bygg­ingar í Voga­byggð og Stekkj­ar­bakka. Borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir um freistni­vanda að ræða vegna hús­næð­is­skorts. Vernda þurfi græn svæði í borg­inni.

Meiri- og minni­hluta borg­ar­stjórnar Reykja­víkur greinir á um friðun Elliða­ár­dals­ins, það er að segja hvort þau úrræði sem standa borg­inni til boða og gripið hefur verið til sé nægi­leg friðun á svæð­inu eða hvort grípa þurfi til ítr­ustu úrræða með því að friða svæðið alfarið sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum.

Nánar til­tekið vill meiri­hlut­inn byggja í jaðri dals­ins, sem telst ekki falla innan svo­kall­aðs borg­ar­garðs og nýtur þannig ekki hverf­is­verndar. Minni­hlut­inn telur hins vegar að frið­lýsa eigi Elliða­ár­dal­inn, í sam­ráði við umhverf­is­ráð­herra, sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum til að standa vörð um græn svæði í borg­inni.

Bókanir þvers og krus

Á fundum skipu­lags- og sam­göngu­ráðs og borg­ar­ráðs í byrjun júlí voru lagðar fram til­lögur um nýtt deiliskipu­lag í nágrenni Elliða­árs­dals­ins, auk breyt­inga á deiliskipu­lags dals­ins sjálfs.

Í fyrsta lagi lagði meiri­hlut­inn til að mörk deiliskipu­lags fyrir Elliða­ár­dal­inn yrðu færð til að koma fyrir svo­kall­aðri Voga­byggð. Að auki var lagt fram deiliskpu­lag fyrir umrædda Voga­byggð sem og Stekkj­ar­bakka, þar sem skil­greindar eru nýjar lóðir, bygg­ing­areitir og hámarks bygg­inga­magn á svæð­inu.

Í bókun minni­hlut­ans í borg­ar­ráði, það er að segja full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins og áheyrn­ar­full­trúa Sós­í­alista­flokks­ins, Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins kemur fram ósætti við til­lögur um breyt­ingar á afmörk­unum skipu­lags Elliða­ár­dals­ins. Fleiri slíkar til­lögur liggi fyrir sem allar þrengi að „við­kvæma og verð­mæta svæði í borg­ar­land­inu.“ Full­trúar flokk­anna segj­ast leggja ríka áherslu á verndun grænna svæða í borg­ar­land­inu og leggj­ast gegn hvers kyns upp­bygg­ingu mann­virkja sem gengið getur nærri slíkum svæðum og við­kvæmu líf­ríki þeirra.

Þannig vilja full­trúar flokk­anna að unnið verði að því í sam­ráði við umhverf­is­ráð­herra og Umhverf­is­stofnun að Elliða­ár­dalur og nær­liggj­andi svæði verði frið­lýst með þeim hætti sem kveðið er á um í 38. grein nátt­úru­vernd­ar­laga. „Standa þarf vörð um græn svæði í borg­ar­land­inu, gróð­ur­setja þarf fleiri tré og gæta þess að upp­bygg­ing svæð­anna snúi ein­göngu að bættri aðstöðu til úti­vistar og afþrey­ingar,“ segir í bókun minni­hlut­ans.

Full­trúar meiri­hlut­ans segja Elliða­ár­dal­inn skil­greindan sem borg­ar­garð í Aðal­skipu­lagi og sem slíkur settur undir hverf­is­vernd. Þá sé skil­greint helg­un­ar­svæði Elliðaáa 100 metra frá hvorum bakka og þar sé engin upp­bygg­ing heimil og leyfi til fram­kvæmda mjög tak­markað. Innan borg­ar­garðs­ins eru aðeins heim­il­aðar fram­kvæmdir sem sam­ræm­ast úti­vist, svo sem stíga­gerð.

„Það er mik­il­vægt að upp­bygg­ing á hús­næði í Reykja­vík gangi hratt og vel og að allir inn­viðir sem fylgi nýjum hverfum séu til fyr­ir­myndar. Það er skýrt kveðið á um að ekki sé gengið á græn svæði í Aðal­skipu­lagi Reykja­víkur 2010-2030 og er þessi upp­bygg­ing í fullu sam­ræmi við þá stefnu­mörkun,“ segir í bókun meiri­hluta Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar, Pírata og Vinstri grænna.

Flokk­arnir segja upp­bygg­ingu við Voga­byggð mik­il­væga fyrir fjölgun íbúða í borg­inni og „leitt að sjá vilja til að tefja þetta mik­il­væga mál.“ Meiri­hlut­inn heldur því fram að breyt­ingin sem fyrir liggi hafi engin áhrif á mögu­lega verndun Elliða­ár­dals­ins og snúi að breyttri afmörkun skipu­lags­svæð­is­ins til þess að hægt sé að skipu­leggja grunn­skóla sem þjóna muni hinu nýja hverfi.

Þá telur meir­ir­hlut­inn vert er að geta að ef dal­ur­inn yrði frið­lýstur sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum myndi borgin missa yfir­ráð yfir dalnum og þau fær­ast til rík­is­ins.

Segja tillögu um friðun ekki hafa verið fylgt eftir

Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins segja að með þessu sé verið að ganga á Elliða­ár­dal­inn með mann­virkjum og bygg­ingum.

Í bókun frá full­trúum þeirra í skipu­lags- og sam­göngu­ráði segja þeir að árið 2014 hafi verið lögð fram til­laga í borg­ar­ráði um friðun Elliða­ár­dals í deiliskipu­lagi með svo­kall­aðri hverf­is­vernd. „Svo virð­ist sem til­lög­unni hafi ekki verið fylgt eftir. Eins liggur fyrir að friðun með hverf­is­vernd í deiliskipu­lagi hefur ekki sömu rétt­ar­á­hrif og frið­lýs­ing sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum. Elliðaár og nær­liggj­andi svæði virð­ast því hvorki friðuð með hverf­is­vernd né sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum.“

Í kosn­inga­bar­átt­unni í vor kynnti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hug­myndir sínar um form­lega frið­lýs­ingu Elliða­ár­dals og lögð­ust gegn hvers kyns áformum um upp­bygg­ingu hús­næðis í dalnum.

Í tísti frá Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra kom fram að hann hafi fengið þá til­lögu sam­þykkta í borg­ar­ráði árið 2014, en þar var sam­þykkt að Elliða­árnar og nán­asta umhverfi verði friðað með hverf­is­vernd í deiliskipu­lagi. Þannig sé dal­ur­inn þegar frið­aður.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn heldur því að fram að engin hverf­is­vernd fyrir Elliða­ár­dal sé í gildi.

„Tillagan sem borg­ar­stjóri vís­aði til kom því aldrei til fram­kvæmda. Elliða­ár­dal­ur­inn er ekki frið­aður,“ segir í til­kynn­ingu frá Sjálf­stæð­is­flokknum.

Elliða­árnar sjálfar séu skil­greindar sem borg­ar­garður en að öðru leyti njóti dal­ur­inn í heild ekki verndar. „Jafnvel þó hverf­is­vernd væri nú gild­andi í deiliskipu­lagi myndi hún ekki hafa sams konar rétt­ar­á­hrif og frið­lýs­ing sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum. Hverf­is­vernd kemur ekki í veg fyrir upp­bygg­ingu á grænum svæðum í dalnum og áform núver­andi meiri­hluta í borg­ar­stjórn um upp­bygg­ingu versl­unar- og þjón­ustu­hús­næðis á svæð­inu gefa ekki til kynna nein áform um verndun Elliða­ár­dals­ins.“

Freistnivandi í húsnæðiskreppu

Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir að í grunn­inn vilji flokk­ur­inn ein­fald­lega standa vörð um græn svæði í borg­ar­land­inu.

„Reykja­vík er ekk­ert eina borgin í heim­inum sem hefur staðið frammi fyrir svona freistni­vanda. Sér­stak­lega þegar uppi er hús­næð­is­skortur. Til dæmis voru uppi hug­myndir á sínum tíma um að byggja í Central Park í New York,“ segir Hildur.

Hún segir meiri­hlut­ann hafa verið tví­saga um stöðu verndar á Elliða­ár­dalnum, hvort þar ríki vernd eða ekki, hvernig þeirri vernd sé háttað og hvað hún feli í sér. „Það virð­ist liggja fyrir þarna tilaga frá 2014 um að setja á svo­kall­aða hverf­is­vernd í Elliða­ár­dalnum, en hún er ekki komin á ennþá því hún er sett á með deiliskipu­lagi sem ekki er búið að sam­þykkja fyrir þetta svæði,“ segir Hildur og bætir því við að hverf­is­vernd komi síðan ekki í veg fyrir að hægt sé að byggja mann­virki á svæð­inu, enda eru nú þegar áform um ýmsan rekstur í dalnum.

Hildur tekur fram að Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin hafi sagt að græn svæði hafi mikil jákvæð áhrif á til að mynda and­lega heilsu fólks sem og loft­gæði, auk ann­ars. „Við höfum talað um að þetta svæði sé lungu borg­ar­innar þar sem að fólk getur farið og notið nátt­úr­unnar og úti­vistar og þess vegna leggj­umst við gegn þessu.“

Hver er munurinn á friðlýsingu, hverfisvernd, borgargarði og helgunarsvæði?

Í lögum um nátt­úru­vernd segir að ráð­herra geti frið­lýst land­svæði til að stuðla að mark­miðum lag­anna, sem eru meðal ann­ars að vernda til fram­tíðar fjöl­breytni íslenskrar nátt­úru. Þar segir einnig að hvers konar athafnir eða fram­kvæmdir sem ganga gegn mark­miði frið­lýs­ingar og geta skðað vernd­ar­gildi frið­lýstra nátt­úru­minja séu óheim­ilar nema sam­kvæmt sér­stakri und­an­þágu sem ráð­herra veitir sam­kvæmt mjög þröngum skil­yrðum. Þá varðar það allt að fjög­urra ára fang­elsi að spilla frið­lýstum nátt­úru­minjum hljót­ist af þeim alvar­leg spjöll á nátt­úru lands­ins sam­kvæmt lög­unum.

Samkvæmt Aðal­skipu­lagi Reykja­víkur eru borg­ar­garðar þeir stóru garðar innan borg­ar­mark­ana sem setja hvað mestan svip á borg­ar­landið. Auk Elliða­ár­dals, sem er 270 hekt­arar, eru í hópi stórra borg­ar­garða Foss­vogs­dalur, Öskju­hlíð, Klambratún, Vatns­mýri, Laug­ar­dalur, Gufunes, Graf­ar­vogur að Hólms­heiði og Úlf­arsár­dalur frá Blika­staða­kró að Hafra­vatni.

Minni borg­ar­garðar eru til dæmis Tjörnin og Hljóm­skála­garður og Laug­ar­nestangi. Gert er ráð fyrir því að styrkja sér­stöðu og sér­kenni borg­ar­garð­anna þannig að hvert svæði bjóði upp á ólíka mögu­leika til úti­vistar og afþrey­ingar. Innan borg­ar­garða er gert ráð fyrir úti­vist­ar­iðkun og fjöl­breyttri mann­virkja­gerð af ýmsum toga sem teng­ist nýt­ingu og þjón­ustu svæð­anna til úti­veru, afþrey­ingar og leikja og allrar almennrar frí­stunda­iðk­unar. Einnig má gera ráð fyrir veit­inga­að­stöðu og veitu­mann­virkjum.

Í skipu­lags­lögum segir að sé talin þörf á að vernda sér­kenni eldri byggðar eða ann­arra menn­ing­ar­sögu­legra minja, nátt­úru­minjar, nátt­úru­far eða gróður vegna sögu­legs, nátt­úru­legs eða menn­ing­ar­legs gildis við gerð skipu­lags­á­ætl­unar, án þess að um friðun sé að ræða sam­kvæmt öðrum lögum, skuli setja í við­kom­andi skipu­lags­á­ætlun ákvæði um hverf­is­vernd. Jafn­framt skal setja í við­kom­andi skipu­lags­á­ætlun ákvæði um vernd­ar­svæði í byggð sam­kvæmt lögum um vernd­ar­svæði í byggð.

Í Aðal­skipu­lag­inu segir að ekki sé gert ráð fyrir að byggt sé nær ám og vötnum innan þétt­býl­is­svæðis borg­ar­innar en ákvarð­ast af helg­un­ar­svæði þeirra. Helg­un­ar­svæði áa og vatna ákvarð­ist síðan af afmörkun hverf­is­verndar fyrir við­kom­andi á eða vatn. Ekki er heim­ilt að hindra leið fót­gang­andi með­fram ám og vötnum. Endanleg fjar­lægð byggðar frá vötnum og ám er skil­greind á grunni nátt­úru­farsút­tekta og á grunni deiliskipu­lags fyrir við­kom­andi svæði og afmörkun hverf­is­vernd­ar­svæðis. Gera má ráð fyrir mann­virkjum innan helg­un­ar­svæðis áa og vatna sem tengj­ast notkun svæð­anna til úti­vistar sem sagt stíga, dvalar- og áning­ar­staða. Ár og vötn eru hluti af heild­ar­skipu­lagi opinn svæða í borg­ar­land­inu, en hefur sér­staka skil­grein­ingu sem ár, vötn og sjór á land­notk­un­ar­upp­drætti.

Skilgreining Elliðaárdalsins í Aðalskipulagi

Elliða­ár­dalur nær frá Elliða­vatni, vestur og norður að Elliða­vogi. Hann dregur nafn sitt af Elliðaám, sem um hann renna. Elliða­vogs­hraun þekur dal­botn­inn. Austan og norðan við dal­inn eru hverfin Árbær og Höfðar, en sunnan og vestan við hann eru Heimar, Sogamýri, Foss­vogur og Breið­holt. Elliða­ár­dalur er eitt mest sótta úti­vist­ar­svæðið í borg­inni.

Reykja­vík­ur­borg keypti Elliða­árnar árið 1906, til vatns­afls­virkj­unar. Raf­stöðin var reist um 1920.

Árið 1950 hóf Skóg­rækt­ar­fé­lag Reykja­víkur skóg­ræktar- og upp­græðslu­starf í árhólm­anum í sam­starfi við borg­ina og Raf­magns­veitu Reykja­víkur. Það starf hefur skilað í víð­feðmum skógi og frjósömu líf­ríki gróð­urs sem er eitt helst aðdrátt­ar­afl skóg­ar­ins. Fuglalíf er fjöl­skrúð­ugt í Elliða­ár­dal og þar hafa einnig fund­ist forn­minjar, m.a. frá tíð Inn­rétt­ing­anna.

Elliða­ár­dalur skipt­ist í meg­in­dráttum í tvo hluta, ofan og neðan við Breið­holts­braut sem þverar svæðið. Innan svæð­is­ins er hest­húsa­byggðin í Víðidal, íþrótta­svæði, rækt­aður úti­vist­ar­skógur. Árnar og nán­asta umhverfi þeirra, Blá­steins­hólmi og árbakkar Dimmu falla undir hverf­is­vernd.

„Stefnt er að afmörkun hverf­is­vernd­ar­svæðis fyrir Elliða­árnar og nán­asta umhverfi þeirra í deiliskipu­lagi innan þriggja ára frá sam­þykkt aðal­skipu­lags­ins. Megin stefna í skipu­lagi svæð­is­ins er að skapa jafn­vægi á milli vernd­unar og nýt­ingu svæð­is­ins til úti­vistar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár