Ungverjar bestir í almenningssamgöngum

Ísland er í þriðja neðsta sæti ef hlut­fall almenn­ings­sam­gangna er borið saman milli Evr­ópu­ríkja.

Sporvagnarnir í Búdapest falla vel inn í borgarskipulagið og eru löngu orðnir hluti af borgarmyndinni í Ungverjalandi.
Spor­vagn­arnir í Búdapest falla vel inn í borg­ar­skipu­lagið og eru löngu orðnir hluti af borg­ar­mynd­inni í Ung­verja­landi.

Í Ung­verja­landi voru þriðj­ungur allra ferða með far­ar­tækjum farnar í almenn­ings­sam­göngum og fjölda­sam­göngum árið 2014. Flestar almenn­ings­sam­göngu­ferð­anna voru farnar með stræt­is­vögnum, rútum eða spor­vögnum eða um 22,6 pró­sent. Hlutfall lengri lesta­ferða var 9,9 pró­sent.

Þetta kemur fram í gögnum hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins þar sem sam­göngu­máta í Evr­ópu­ríkjum hefur verið skipt upp í þrjá flokka: ferðir með einka­bíl, ferðir með lestum og ferðir með almenn­ings­vögnum.

Noregur og Portúgal reka lest­ina þegar kemur að hlut­falli almenn­ings­sam­gangna milli landa. Aðeins 10,3 pró­sent allra ferða með far­ar­tækjum voru farnar með almenn­ings­sam­göngum í Noregi og Portúgal árið 2014. Lang flestar ferðir voru farnar í einka­bíl, eða 89,8 pró­sent.

Ísland í þriðja neðsta sæti á undan Noregi og Portúgal. Hér á landi voru 88,6 pró­sent allra ferða með far­ar­tækjum farnar í einka­bíl árið 2014. Restin af ferð­unum, eða 11,4 pró­sent, voru farnar með stræt­is­vögnum eða rútum enda eru hér engar lestir eða spor­vagnar.

Ísland er þess vegna nokkuð langt á eftir með­al­tali Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna 28 þegar kemur að hlut­falli almenn­ings­sam­gangna. Það er 16,7 þvert á öll aðild­ar­ríki ESB og skipt­ist það nokkurn veg­inn jafnt milli lesta­ferða og ferða í almenn­ings­vögnum.

Hér að neðan má sjá hlut­fall ferða í hverju landi fyrir sig í öllum Evr­ópu­löndum. Þar með talin eru Ísland, Noregur, Sviss og Makedónía, sem ekki eiga aðild að ESB. Sam­göngur í Liechtenstein, sem á heldur ekki aðild að ESB, eru taldar með Aust­ur­ríki enda rekur aust­ur­ríska lesta­þjón­ustan lest­ar­kerfið í Liechtenstein.

[box]

Borgir leika lykilhlutverk

Borgar- og bæj­ar­yf­ir­völd á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa kynnt til­lögur um breyt­ingar á svæð­is­skipu­lagi sveit­ar­fé­lag­anna þar sem taka á frá rými fyrir öfl­ugri og skil­virk­ari almenn­ings­sam­göngur. Verk­efnið gengur undir heit­inu Borg­ar­lína. Borg­ar­lín­unni er ætlað að verða þunga­miðja sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á næstu ára­tugum.

Í aðgerða­á­ætlun Evr­ópu­sam­bands­ins í lofts­lags­málum eru sam­göngur sá geiri sem talið er að hægt sé að minnka hvað mest og hvað hrað­ast. Útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna sam­gangna í ESB er tæp­lega fjórð­ungur alls útstreymis frá álf­unni. Bíla­um­ferð ber lang­mesta ábyrgð útstreymi í þessum flokki, eða ríf­lega 70 pró­sent.

Þessar tölur eru sam­bæri­legar við Ísland þar sem um fimmt­ungur útblást­urs­ins verður til við sam­göngur og nær allt útstreymið verður til í vega­sam­göngum.

Meðal til­lagna ESB er að hámarka nýtni staf­rænnar tækni til þess að draga úr mengun í sam­göngum, auk þess að hraða þróun vist­vænna orku­gjafa í sam­göngum. Mark­miðið verði að útblástur frá far­ar­tækjum verði eng­inn.

„Borgir og sveit­ar­fé­lög munu leika mik­il­vægt hlut­verk í fram­kvæmd þess­arar áætl­unar,“ segir jafn­framt í áætlun ESB. „Þar er nú þegar verið að inn­leiða hvata fyrir notkun vist­vænnar orku og vist­vænna far­ar­tækja, stuðlað að hjól­reiðum og göngu auk almenn­ings­sam­gangna til þess að minnka mengun og umferða­stíflur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár