Fasteignamarkaður á tímamótum

Upp­gangs­tíma á fast­eigna­mark­aði er ekki lokið, sé horft til þess að mik­ill fjöldi nýrra eigna er nú að koma inn á mark­að­inn. Ólíklegt er hins vegar að mark­að­ur­inn muni ein­kenn­ast af verð­hækk­unum. Frekar er lík­legt að lækk­anir verði raunin.

Að teknu til­liti til verð­bólgu hefur fast­eigna­verð lítið sem ekk­ert hækkað á und­an­förnum 12 mán­uðum. Vísitala íbúða­verðs hefur hækkað um 3,8 pró­sent, en verð­bólga á árs­grund­velli mælist nú 3,6 pró­sent.

Vaxtalækkun vinnur á móti

Það sem helst getur unnið gegn veru­legri kólnun í þróun fast­eigna­verðs, frá því sem verið hefur raunin á und­an­förnum þremur árum, er vaxta­lækkun á mark­aði. Flestir við­mæl­enda Kjarnans gera ráð fyrir að Seðla­banki Íslands lækki vexti enn frekar á næst­unni, til að vinna á móti sam­drætti í efna­hags­líf­inu, eftir fall WOW air í mars og einnig veru­lega íþyngj­andi áhrif af kyrr­setn­ingu á 737 Max vélum frá Boeing sem eru hluti af flota Icelandair.

Ferða­þjón­ustan finnur fyrir þessu og áhrif­anna gætir vítt og breitt í efna­hags­líf­inu. Minni eft­ir­spurn í ferða­þjón­ustu dregur einnig úr eft­ir­spurn á fast­eigna­mark­aði, en útleiga á íbúðum til ferða­manna hefur verið veru­lega umfangs­mikil á und­an­förnum árum, ekki síst mið­svæðis í Reykja­vík.

Spá Hagstofu Íslands gerir ráð fyrir 0,2 pró­sent sam­drætti í lands­fram­leiðslu á þessu ári, sam­an­borið við 4,6 pró­sent hag­vöxt í fyrra. Ekkert annað land í Evrópu er að upp­lifa við­líka við­snún­ing til hins verra í lands­fram­leiðslu.

Í fyrra urðu til um 6.500 ný störf, en þeim fjölg­aði frá upp­hafi úr 201 þús­und í 207 og fimm hund­ruð, sam­kvæmt tölum Hagstofu Íslands um yfir­lit yfir fjölda fólks á vinnu­mark­aði.

Spá Seðla­banka Íslands gerir ráð fyrir 0,4 pró­sent sam­drætti á þessu ári. Meg­in­vextir Seðla­bank­ans eru núna 4 pró­sent, verð­bólga 3,6 pró­sent, en verð­bólgu­mark­miðið er 2,5 pró­sent.

Stærsti eignamarkaðurinn

Fast­eigna­mark­að­ur­inn er stærsti eigna­mark­að­ur­inn í hag­kerf­inu, en sé horft til fast­eigna­mats fyrir 2020 þá hækk­aði það um 6,1 pró­sent milli ára og var sam­tals rúm­lega 9 þús­und millj­arðar króna.

Þar af nemur fast­eigna­mat íbúða í land­inu 6.594 millj­örðum, og nemur hækk­unin 6 pró­sentum frá fast­eigna­mati fyrir 2019.

Spár fyrir horfur á fast­eigna­mark­aði hafa verið nokkuð mis­vísandi und­an­farin miss­eri. Grein­ing­ar­deild Arion banka spáði raun­verðs­lækkun á fast­eigna­mark­aði, í upp­hafi þessa árs, og hefur sú verið raunin, þegar horft er til þró­unar á síð­ustu sex mán­uðum að teknu til­liti til verð­bólgu.

Á und­an­förnum sex mán­uðum hefur vísi­tala íbúða­verðs hækkað um 0,7 pró­sent en verð­bólga hefur hald­ist yfir þrjú pró­sent á sama tíma.

Er góður tími til að kaupa eða selja?

Fast­eigna­við­skipti eru jafnan stærstu við­skipti venju­legra fjöl­skyldna. Kaup á fast­eignum eru því lang­tíma­fjár­fest­ingar, oft­ast nær, og ekki ein­ungis horft til tíma­bund­inna verð­sveiflna þegar fast­eigna­við­skipti eiga sér stað, hvort sem um er að ræða sölur eða kaup.

Eins og horf­urnar eru þessi miss­erin þá standa líkur til þess að kaup­máttur launa hjá fólki muni að með­al­tali ekki aukast mikið á næstu miss­erum.

Frekar mun launa­þró­unin standa í stað, en á móti kemur geta vextir farið lækk­andi, sem hjálpar til við að halda greiðslu­byrði lána í skefjum. Framboð eigna á mark­aði er að aukast hratt, einkum litlar og með­al­stórar íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, og á það bæði við um eignir til leigu og kaups.

Um 84 pró­sent íbúða­við­skipta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í apríl, voru undir ásettu verði íbúða, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem fram komu mán­að­ar­skýrslu Íbúð­ar­lána­sjóðs. Um 10 pró­sent seld­ust á hærra verði.

Þetta er nokkrar breyt­ingar frá því sem var áður en fyrir ári síðan fóru 69 pró­sent eigna á undir ásettu verði og 17 pró­sent seld­ust á yfir­verði.

Á því mikla hækk­un­ar­tíma­bili á fast­eigna­mark­aði, sem stóð sem hæst á árunum 2013 til og með 2018, þá var hækk­unin mest á vor­mán­uðum 2017, 23,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár