Gætu „áhrifasjóðir“ leyst vandamál samtímans?

Svo­kall­aðir áhrifa­sjóðir sem fjár­festa eiga í félags­lega mik­il­vægum verk­efnum hafa rutt sér til rúms víða um heim á und­an­förnum árum. En hverjum þjóna þeir í raun og veru, fólki í neyð eða alþjóð­legum fyr­ir­tækjum og öðrum valda­mönnum?

Nirmala Sitharaman, fjármálaráðherra Indlands.
Nirmala Sit­hara­man, fjár­mála­ráð­herra Indlands. Mynd: EPA

Innan fjár­mála­heims­ins hefur ný teg­und fjár­fest­ing­ar­sjóða sótt í sig veðrið. Sjóð­irnir, sem miða að því að fjár­festa í verk­efnum sem hafa jákvæð sam­fé­lags­á­hrif, stýra nú billjónum Banda­ríkja­dala og hafa vakið athygli stjórn­mála­manna sem ein­föld lausn við félags­legum vanda­málum. Hins vegar eru ekki allir sann­færðir um ágæti sjóð­anna og vís­bend­ingar eru um að sumir þeirra hafi verið mis­not­aðir til að bæta ímynd fyr­ir­tækja og stjórn­valda.

Félagsleg kauphöll

„Það er kom­inn tími til að færa fjár­mála­mark­að­ina nær almenn­ingi og láta þá ná félags­legum mark­miðum tengdum hag­vexti fyrir alla,“ sagði Nirmala Sit­hara­man, fjár­mála­ráð­herra Indlands, í ræðu sinni um nýtt fjár­mála­frum­varp lands­ins fyrr í mán­uð­inum. Að mati ráð­herr­ans yrði slíkt skref tekið með upp­setn­ingu svo­kall­aðrar „félags­legrar kaup­hallar“.

The Guardian fjall­aði um til­lögur Sit­hara­man, en sam­kvæmt miðl­inum myndi félags­leg kaup­höll auð­velda fjár­festum að kaupa hluti í sam­fé­lags­lega mik­il­vægum verk­efnum og sjóðum. Slíkir sjóðir, sem kall­aðir eru áhrifa­sjóðir (e. impact funds), hafa orðið vin­sælir um allan heim og talið er talið að þeir stýri um 22 billjónum Banda­ríkja­dölum árlega. Þar af eiga 12 billjónir að vera stýrðar í Banda­ríkj­unum einum, en slík upp­hæð jafn­gildir fjórð­ungi af öllu stýrðu fjár­magni þar í landi.

„Göfugri tilgang fyrir fjármagn“

Meg­in­til­gangur áhrifa­sjóða er tví­þættur: ann­ars vegar er það ávöxtun pen­inga, eins og hjá öðrum hefð­bundnum fjár­fest­ing­ar­sjóðum, hins vegar er það hámörkun jákvæðra félags­legra áhrifa. Með þessum tveimur mark­miðum er bæði fjár­festum og sam­fé­lag­inu í heild sinni ætlað að græða á þessu fyr­ir­komu­lagi. Miklar vonir eru bundnar við sjóð­ina, til að mynda taldi pistla­höf­undur Forbes þá meðal ann­ars geta unnið gegn hlýnun jarðar, útrýmt fátækt og komið á fæðu­ö­uryggi á heims­vísu.

Amit Bhatia, tals­maður hags­muna­sam­taka slíkra áhrifa­sjóða, er álíka bjart­sýnn um mik­il­vægi þeirra í við­tali við Guardian nú á dög­unum. „Við höfum fundið göf­ugri til­gang fyrir fjár­magn,“ sagði hann og benti á hversu fljótt umsvif þeirra hafa auk­ist á und­an­förnum árum. Ind­verska rík­is­stjórnin bindur einnig miklar vonir við auknar fjár­fest­ingar sjóð­anna með stofnun félags­legrar kaup­hallar, en hún er talin geta styrkt stöðu lands­ins með því að fjár­magna inn­lend þró­un­ar­verk­efni sem þyrftu ann­ars að reiða sig á fjár­hags­að­stoð erlendis frá.

Lélegir í báðu

Þrátt fyrir göfug mark­mið og áhuga stjórn­mála­manna eru þó ekki allir sam­mála um ágæti áhrifa­sjóð­anna. Samkvæmt vef­miðl­inum Vox eru aðal­mark­mið þeirra –hámörkun arðs og félags­leg áhrif– oft á skjön við hvort annað og leiða til þess að sjóð­irnir sinni báðum hlut­verkum sínum illa. Sér­fræð­ingar hafa bent á að ávöxtun áhrifa­sjóða sé alla jafna lægri en hjá hefð­bundnum fjár­fest­ing­ar­sjóðum, þótt óvíst er hversu stórt mis­ræmið milli þeirra er.

Til við­bótar við lægri ávöxtun eru sam­fé­lags­legu áhrif sjóð­anna óljós. Þar sem mög verk­efni sem telj­ast félags­lega mik­il­væg eru laus­lega skil­greind og áhrif þeirra lítið rann­sökuð er erfitt að mæla hversu vel áhrifa­sjóð­unum gengur að vinna úr þeim. Samkvæmt Vox er óvissan raunar það mikil að betra er að fjár­festa í hefð­bundnum fjár­fest­ing­ar­sjóðum og láta hagn­að­inn af fjár­fest­ing­unum renna til vel rann­sak­aðra þró­un­ar­verk­efna.

Grænþvottur fyrirtækja og hvítþvottur stjórnvalda

Lausleg skil­grein­ing og óná­kvæmar mæl­ingar á félags­legum áhrifum sjóð­anna hafa einnig leitt til ann­arra og alvar­legri vanda­mála. Financial Times greindi frá því fyrr í mán­uð­inum að sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Vanguard hafi við­ur­kennt að einn áhrifa­sjóður þeirra sem átti að sér­hæfa sig í umhverf­is­vænum fjár­fest­ingum hafi í raun eytt tölu­verðum fjár­munum í olíu­fyr­ir­tækið Schlumberger.

Þessi hátt­semi hefur verið kölluð græn­þvottur, þar sem sjóð­irnir segj­ast vera umhverf­is­vænir þrátt fyrir að styrkja meng­andi starf­semi. Samkvæmt frétt Forbes um málið eru margir fjár­festar áhyggju­fullir yfir því að óljósar skil­grein­ingar geri fyr­ir­tækj­unum auð­veld­ara fyrir að stunda græn­þvott í gegnum áhrifa­sjóði.

Einnig er ótt­ast að rík­is­stjórnir not­færi sér óviss­una í kringum félags­leg áhrif til að styrkja umdeild mál­efni. Mihir Sharma, hag­fræð­ingur hjá rann­sókn­ar­sam­tök­unum Observer, sagði lít­inn skiln­ing ríkja innan fjár­mála­ráðu­neyti Indlands um áður­nefnd áform um að koma á fót félags­legri kaup­höll. Samkvæmt The Guardian er einnig mögu­leiki á að áformin séu liður í því að auka fjár­veit­ingar til hægri­s­inn­aðra sjálf­boða­sam­taka Hindúa (RSS) sem styðja stjórn­mála­stefnu Narendra Modi, for­sæt­is­ráð­herra lands­ins.

Skrattinn í smáatriðunum

Á blaði virð­ast félags­lega ábyrgir fjár­fest­ing­ar­sjóðir slá tvær flugur í einu höggi: ann­ars vegar að tryggja nægt fjár­magn fyrir mik­il­væg verk­efni og hins vegar að láta fjár­festa græða á því. Ónákvæm skil­grein­ing á því hvaða verk­efni eru félags­lega mik­il­væg hefur hins vegar leitt til þess að sjóð­irnir skila ekki hárri pen­inga­legri ávöxtun og hafa í nokkrum til­vikum verið not­aðir í ann­ar­legum til­gangi.

Hins vegar eru fræði­menn bjart­sýnir á að sjóð­irnir geti þjónað mik­il­vægum til­gangi í fram­tíð­inni, nái þeir að stíga yfir nokkur tækni­leg vanda­mál. Þótt ýmsir áhrifa­sjóðir hafi litið á verð­lagn­ingu á félags­legum fram­förum sem smá­at­riði telja höf­undar nýlegrar vís­inda­greinar að hún gæti skipt sköpum til þess að mæla gildi þeirra. Samkvæmt þeim er sam­ræmdur mæli­kvarði á ágæti verk­efn­anna nauð­syn­legt til þess að „þróa list­ina við að ráð­stafa fjár­magni sam­fé­lag­inu til bóta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár