Rússar reyndu að njósna um Macron

Leyni­þjón­usta Rúss­lands er sögð hafa notað Facebook til þess að kom­ast í staf­ræn tengsl við kosn­inga­bar­áttu Macrons og stofn­aði tugi gervi­prófíla.

Heldur Pútín um þræðina? Það er spurningin sem alþjóðasamfélagið spyr sig að í dag. Rússar virðast fara huldu höfði víða.
Heldur Pútín um þræð­ina? Það er spurn­ingin sem alþjóða­sam­fé­lagið spyr sig að í dag. Rússar virð­ast fara huldu höfði víða. Mynd: EPA

Rúss­neska leyni­þjón­ustan reyndi að njósna um Emmanuel Macron, for­seta Frakk­lands, á meðan kosn­inga­bar­átt­unni fyrir frönsku for­seta­kosn­ing­arnar stóðu yfir í vor, sam­kvæmt heim­ildum Reuters sem greinir frá þessu.

Leyni­þjón­ustan not­aði Facebook til þess að kom­ast í staf­ræn tengsl við kosn­inga­bar­áttu Macrons og stofn­aði tugi gervi­prófíla til þess að tengj­ast starfs­fólki kosn­inga­bar­átt­unnar. Banda­ríska sam­fé­lags­miðla­fyr­ir­tækið Facebook komst á snoðir um athæfið og lok­aði öllum gervi­reikn­ing­unum.

Emmanuel Macron var kjör­inn for­seti Frakk­lands í tveimur umferðum for­seta­kosn­inga í maí. Í seinni umferð­inni fékk hann mun fleiri atkvæði en Marine Le Pen, fram­bjóð­andi Þjóð­fylk­ing­ar­innar (f. Front National).

Facebook sagð­ist hafa lokað nokkrum gervi­reikn­ing­unum í apríl sem höfðu verið að dreifa fölskum upp­lýs­ingum um frönsku kosn­ing­arnar. Þá hvar hins vegar ekki sagt frá til­raunum til þess að njósna um Macron.

Rússnesk stjórn­völd hafa þver­tekið fyrir að hafa reynt að beita sér í kosn­inga­bar­átt­unni í Frakk­landi með staf­rænum árásum og gagna­lekum. Banda­ríska leyni­þjón­ustan sagði í maí að hún hefði upp­lýs­ingar um að tölvu­þrjótar með tengsl við rúss­nesk stjórn­völd hefðu átt sök á staf­rænum árásum en gat ekki sannað það með hald­bærum sönn­un­ar­gögnum að rúss­nesk stjórn­völd stæðu þar að baki.

[links]Lög­reglu­yf­ir­völd í Banda­ríkj­unum eru sann­færð um að Rússar hafi haft áhrif á kosn­inga­bar­átt­una fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum á síð­asta ári. Talið er að sami hópur tölvu­þrjóta hafi verið að verki í Frakk­landi. Sá hópur er sagður vera hluti af GRU, sér­þjálfaðri njósn­a­her­deild rúss­neska hers­ins.

Talið er að Facebook hafi lokað allt að 70.000 reikn­ingum í tengslum við frönsku for­seta­kosn­ing­arnar í vor. Njósnir rússa hafi gengið út á að þykj­ast vera vinir vina Macrons á Facebook sem reyndu að viða að sér upp­lýs­ingum um fram­bjóð­and­ann og fram­boðið.

Sér­fræð­ingar Facebook telja Rússana ekki hafa náð að grafa nógu djúpt til þess að fá fólk til að sækja njósn­a­for­rit eða láta af hendi við­kvæmar upp­lýs­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár