Segir aðför í gangi til að hrekja hann úr embætti ríkislögreglustjóra

Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri segir að ef hann missir starfið kalli þá á enn ítar­legri umfjöllun hans um valda­bar­áttu bak við tjöldin. Rógs­her­ferð sé í gangi gegn honum m.a. vegna þess að hann hafi barist gegn spill­ingu.

Haraldur Johanessen ríkislögreglustjóri.
Haraldur Johanes­sen rík­is­lög­reglu­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Har­ald­ur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri seg­ir að verið sé að reyna að hrekja hann úr emb­ætti með því að dreifa vís­vit­andi rang­færslum og róg­burði um hann. Þeir sem séu að gera það séu lög­reglu­menn sem telji sig eiga harma að hefna gegn honum, meðal ann­ars vegna þess að hann hafi gripið inn í vegna starfs­hátta eða fram­komu þeirra eða vegna þess að þeir hafi ekki fengið stöður sem þeir sótt­ust eftir. Ef til starfs­loka hans komi kalli það á enn ít­ar­legri um­fjöll­un af hans hálfu um valda­bar­átt­una bak við tjöld­in.

Þetta kemur fram í við­tali við hann í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar segir Haraldur að gagn­rýni hans á fram­göngu lög­reglu­manna eigi þátt í því sem hann kallar aðför gegn sér. Hann seg­ist hafa bent á að spill­ing ætti ekki að líð­ast innan lög­regl­unnar. „Hluti af umræð­unni sem er að brjót­ast fram núna er kannski einnig vegna þeirr­ar af­stöðu minn­ar. Ég hef til dæm­is bent á að það fari ekki sam­an að lög­reglu­menn séu með­fram starfi sínu í póli­tísku vaf­stri. Það fer að mínu viti ekki sam­an.“ Umræða um bíla­mál lög­regl­unn­ar sé hluti af þeirri rógs­her­ferð að óreiða sé í fjár­mál­um rík­is­lög­reglu­stjóra.

[adspot]Haraldur segir í við­tal­inu að „sví­v­irði­leg­um aðferðum [sé beitt] í valda­tafli, hags­muna­gæslu og póli­tík“ og að of stór­ hluta af fjár­mun­um til lög­regl­unn­ar á Íslandi renna í „há­timbraða yf­ir­manna­bygg­ingu“. Því þurfi að ráð­ast í sam­ein­ingu lög­reglu­emb­ætta.

Lögreglufélög kölluðu á stjórnsýsluúttekt

Tölu­verðar deilur hafa verið innan lög­regl­unn­ar, og þá einkum í garð Rík­is­lög­reglu­stjóra, að und­an­förnu, en í fréttum RÚV hefur meðal ann­ars komið fram að þær tengis fata­málum lög­reglu og bíla­málum, ásamt öðrum mál­u­m.

Fjöl­mörg lög­reglu­emb­ætti í land­inu hafa lýst yfir stuðn­ingi við stjórn Lands­sam­bands lög­reglu­manna sem hafa und­an­farið sett þrýst­ing lög­reglu­stjóra lands­ins á að láta fara fram al­hliða stjórn­sýslu­út­tekt á emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra.

Ákveðið var að Rík­is­end­ur­skoðun ráð­ist í slíka úttekt í lið­inni viku.

Har­aldur sendi frá sér yfir­lýs­ingu á fimmtu­dag þar sem sagði að álykt­anir lög­reglu­fé­laga, gegn emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra, væru ekki til þess fallnar að skapa frið um störf lög­reglu. Þá sagði að yfir­lýs­ingar sem „ali á ótta“ geti verið til þess fallnar að bitna á öryggi almenn­ings og það sé ámæl­is­vert. „Við þetta ástand verður ekki unað enda kastar það rýrð á lög­regl­una og störf hennar sem grefur undan því mikla trausti sem almenn­ingur ber til lög­regl­unn­ar. Á end­anum gæti þetta ástand því komið niður á öryggi almenn­ings,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni.

Hann sagð­ist þar einnig fagna fyr­ir­hug­aðri út­tekt rík­is­end­ur­skoð­anda á emb­ætt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár