Stærð fiska verður minni vegna loftslagsbreytinga

Minna súr­efni í höfum hefur áhrif á stærð margra af helstu nytja­fiski­teg­unda á jörð­inni. Stærri fiskar verða frekar fyrir áhrifum sem truflar fæðu­keðj­una.

Hlýnun sjávar og minna súr­efni í haf­inu mun leiða til þess að hund­ruð fiski­teg­unda munu minnka meira en áður en var talið. Á meðal þeirra fiski­teg­unda sem munu minnka eru þorskur, ýsa og lax.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar birt­ust í vís­inda­tíma­rit­inu Global Change Biology á mánu­dag. Frá þessu er greint á vef National Geographic.

Stærð fiska mun minnka um að því sem nemur 20 til 30 pró­sent miðað við nið­ur­stöður rann­sóknar sem unnin var við háskól­ann í Bresku kól­umbíu í Kanada.

Fisk­arnir minnka svo mikið vegna þess að blóðið í þeim er kalt, er haft eftir William Cheung, einn rann­sak­end­anna. Kalt blóðið veldur því að fisk­arnir geta ekki stýrt lík­ams­hita sínum. Um leið og hafið sem þeir synda í hlýnar verða efna­skipti fiskanna hrað­ari og þá þarf dýrið meira súr­efni. „Það kemur að því að tálkn fisk­ana geta ekki unnið nógu mikið súr­efni fyrir stærri lík­ama svo fisk­arnir hætta að vaxa,“ segir Cheung.

Þessar breyt­ingar munu hafa gríð­ar­leg áhrif á stærri vist­kerfi hafs­ins. „Nið­ur­stöður til­rauna á rann­sókn­ar­stofu sýna að það verði alltaf stærri dýr sem muni finna fyrir þessu fyrst,“ segir Daniel Pauly, aðal­höf­undur rann­sókn­ar­innar. „Minni teg­undir munu þess vegna fá for­skot, hvað þetta varðar.“

Pauly hefur áður rann­sakað fiska og er kannski þekkt­astur fyrir rann­sóknir sínar á ofveiði. Hann hefur rann­sakað tálkna­vöxt og stærð fiska und­an­farna ára­tugi. Þeir Cheung greindu frá nið­ur­stöðum frum­rann­sóknar sinnar á tengslum tálkna­stæðar og fiski­stærðar árið 2013.

Fyrir þá rann­sókn hlutu þeir gagn­rýni fyrir að styðj­ast við ein­fald­anir. Í rann­sókn­inni sem birt­ist á mánu­dag styðj­ast Pauly og Cheung við þró­aðri líkön og færa rök fyrir kenn­ingu sinni á ný. Nið­ur­stöð­urnar eru í grunn­inn þær sömu, nema að fyrri rann­sókn virð­ist hafa van­metið áhrif þessa vanda­máls á stærð fiska.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár