Nú geta mötuneyti sýnt kolefnisspor máltíða

Kolefn­is­reikni­vélin Mat­ar­spor, sem reiknar og sýnir kolefn­is­spor mál­tíða og ber það saman við akstur fólks­bíla, stendur nú mötu­neytum og mat­sölu­stöðum til boða gegn greiðslu. Reikni­vélin á að auð­velda fólki að taka upp­lýstar ákvarð­anir um eigin neyslu.

Kolefn­is­spora­reikni­vél verk­fræði­stof­unnar EFLU, sem reiknar og ber saman kolefn­is­spor mis­mun­andi mál­tíða og rétta, stendur nú mötu­neytum og mat­sölu­stöðum til boða gegn greiðslu. Kolefn­is­spor mál­tíð­anna er sett í sam­hengi við það hversu langt þyrfti að aka fólks­bíl til að losa sama magn gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og er reikni­vélin hugsuð til að auð­velda fólki að taka upp­lýsta ákvörðun um eigin neyslu og auka umhverf­is­vit­und þess. Reikni­vélin kall­ast Mat­ar­spor og er þjón­ustu­vefur hennar opnuð í dag.

Sýna kolefnisspor máltíða til að fólk geti tekið upplýstar ákvarðanir

[links]Kolefn­is­spor er mæli­kvarða á beina og óbeina losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna athafna manns­ins en hnatt­ræn hlýnun vegna los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda er ein mesta ógn sem mann­kynið stendur frammi fyrir. Íslenskur land­bún­aður veldur 13 pró­sent los­unar í kolefn­is­bók­haldi Íslands og er þá ótalin losun vegna fram­leiðslu mat­væla erlendis og inn­flutn­ings þeirra.

Að mati verk­fræði­stof­unnar EFLU er því mik­il­vægt að miðla upp­lýs­ingum um áhrif mat­væla á lofts­lag svo hægt sé að taka upp­lýstar ákvarð­anir. Stofan þró­aði því reikni­vél til að reikna út kolefn­is­spor mál­tíða í aðdrag­anda umhverf­is­viku fyr­ir­tæk­is­ins. Reikni­vélin vakti athygli víða og mikil eft­ir­spurn var hjá fyr­ir­tækjum og stofn­unum eftir slíku tóli, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu EFLU.

Reikni­vélin var því þróuð áfram og í dag opnar EFLA þjón­ustu­vef­inn Mat­ar­spor. Mat­ar­spor virkar þannig að skráðar eru upp­skriftir ólíkra mál­tíða og hug­bún­að­ur­inn stillir þá upp sam­an­burði á kolefn­is­spori mál­tíð­anna. Kolefn­is­sporið er síðan sett í sam­hengi við það hversu langt þyrfti að aka fólks­bíl til að losa sama magn af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum. [adspot]

Mat­ar­spor byggir á stórri safn­grein­ingu inn­lendra og erlendra rann­sókna sem gerðar hafa verið með aðferða­fræði vist­fer­ils­grein­ingar. Flutn­ingar mat­væla til Íslands eru teknir með í reikn­ing­inn og eru sýndir sér­stak­lega þannig að not­andi geti auð­veld­lega áttað sig á hversu stóran þátt flutn­ingar eiga í kolefn­is­spor­inu.

Ársáskrift að reiknivélinni

Mötu­neytum og mat­sölu­stöðum stendur nú til boða að kaupa árs­á­skrift af Mat­ar­spori. Verð áskrift­ar­innar fer eftir stærð mötu­neyti. Árs­á­skrift fyrir mötu­neyti sem þjón­usta færri en 50 manns er 96.000 krónur, fyrir yfir hund­rað manna mötu­neyti er það 144.000 þús­und á ári og fyrir yfir 300 manna mötu­neyti er það 384.000 ári.

Samkvæmt EFLU fylgir sam­an­burður á kolefn­iss­spori mál­tíða aukin umhverf­is­vit­und starfs­fólks og við­skipta­vini. Jafn­framt getur Mat­ar­spor verið verk­færi til að þróa lofts­lagsvænni mál­tíðir og matar­æði sem og verið öfl­ugt tól til að meta og draga úr losun fyr­ir­tækis vegna matar. 

Orku­veita Reykja­víkur hefur þegar tekið kolefn­is­spora­reikn­inn í notkun en mark­mið orku­veit­unnar er að draga úr losun fyr­ir­tæks­ins vegna matar um 90 pró­sent fram til árs­ins 2030.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár