Ferðaþjónustan finnur fyrir vaxtarverkjum

Stór hluti skulda ferða­þjón­ustu­fyri­tækja er í óverð­tryggðum lánum, sem bera háa vexti. Geng­is­styrk­ing krón­unnar kemur illa við fram­legð í grein­inni.

Banda­ríkja­dalur kostar nú 103 krónur og evran 112. Fyrir rúm­lega einu og hálfu ári kost­aði Banda­ríkja­dalur tæp­lega 140 krónur og evran 150 krónur. Pundið hefur á tæp­lega einu ári farið úr 206 krónum í 133 krónur.

Algjör­lega nýr veru­leiki blasir því útflutn­ings­hlið hag­kerf­is­ins, þar sem tekj­urnar eru í erlendri mynt.

Minna fæst fyrir vör­urnar og þjón­ust­una en áður, og hefur þessi veru­leiki komið hratt fram. Hraðar launa­hækk­anir hafa líka sett strik í reikn­ing­inn hjá mörgum fyr­ir­tækjum, en 1. maí síð­ast­lið­inn hækk­uðu laun um 4,5 pró­sent, sam­kvæmt kjara­samn­ingum.

Góða staða þrátt fyrir allt

Mikil og hröð geng­is­styrk­ing krón­unnar er nú farin að bíta, jafn­vel þó staða efna­hags­mála sé á flesta mæli­kvarða nokkuð góð um þessar mundir. Mikil vöntun er á vinnu­afli, hag­vöxtur mæld­ist 7,2 pró­sent í fyrra og skuldir hafa verið greiddar hratt niður. Skuldir heim­il­anna mæl­ast nú um 77 pró­sent af lands­fram­leiðslu en hlut­fallið var í um 130 pró­sent skömmu eftir hrunið. Skuldir hins opin­bera hafa einnig verið að lækka hratt og hefur Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, nefnt það sér­stak­lega að það sé for­gangs­mál hjá rík­is­stjórn­inni að greiða niður skuldir og lækka vaxta­kostnað.

Vaxtaverkir

Sú mikla geng­is­styrk­ing sem hefur átt sér stað und­an­farin miss­eri kemur engum á óvart sem hefur skoðað gaum­gæfi­lega fjár­flæði til og frá hag­kerf­inu. Vöru- og þjón­ustu­jöfn­uður var jákvæður um rúm­lega 155 millj­arða króna á árs­grund­velli í fyrra og útlit fyrir að sú þróun haldi áfram á þessu ári. Þrýst­ing­ur­inn er því áfram í átt að frek­ari styrk­ingu krón­unnar, en ómögu­legt er að spá fyrir um hvort Seðla­banki Íslands muni beita sér fyrir því að veikja gengið, eins og hann hefur gert á und­an­förnu ári, en þó í minna mæli að und­an­förnu.

Gert er ráð fyrir því, í flestum spám grein­enda, að fjöldi ferða­manna muni aukast mikið á þessu ári frá metár­inu í fyrra, og verði um 2,3 millj­ónir. Til sam­an­burðar var fjöld­inn 1,8 millj­ónir í fyrra og áður en mik­ill upp­gangur hófst, árið 2010, þá var fjöld­inn 454 þús­und á árs grund­velli.

Fjárfesting aukist

Fjár­fest­ing hefur auk­ist jafnt og þétt í ferða­þjón­ust­unni, sam­hliða þessum mikla upp­gangi, eins og gefur að skilja. Hótel hafa sprottið upp, og ennþá umfangs­miklar fram­kvæmdir í píp­unum, enda gera flestar spár ráð fyrir áfram­hald­andi fjölgun ferða­manna hingað til lands.

Samtals eru nú 26 flug­fé­lög sem fljúga hingað til lands, og veru­leik­inn því gjöbreyttur frá því sem var, þegar að hámarki þrjú til fjögur flug­fé­lög sáu um flug­sam­göngur milli Íslands og umheims­ins.

Gengisáhætta

Þegar horft til gagna sem til eru um fjár­mögnun þessar miklu upp­bygg­ingar í ferða­þjón­ustu sem átt hefur sér stað þá sést vel að tölu­verð geng­is­á­hætta er í rekstri margra fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ust­unni. Algeng­asta form lána virð­ist vera óverð­tryggð lán í krónum, en þau bera alla jafnan nokkuð háa vexti.

Hávær krafa um vaxta­lækkun, ekki síst frá ferða­þjón­ust­unni, ætti því ekki að koma neinum á óvart. Heild­ar­skuldir ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja við fjár­mála­kerfið námu um 180 millj­örðum króna í lok árs í fyrra, og höfðu vaxið úr 140 millj­örðum árið á undan, að því er fram kemur í Fjár­mála­stöð­ug­leika Seðla­banka Íslands, frá því í apríl.

Um 100 millj­arðar af þessum 180 millj­örðum eru óverð­tryggð lán í krónum, 40 millj­arðar í verð­tryggðum lánum og 40 í erlendri mynt.

Styrking krón­unnar er því afar við­kvæm fyrir marga í grein­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár