155 milljarða afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum

Inn­flutn­ingur hefur auk­ist mikið og toppar árið 2007. Í þetta skiptið er inni­stæða fyrir því, segja grein­endur.

Þjón­ustu­af­gangur árið 2015 nam 191 millj­arði króna árið 2015,sam­kvæmt bráða­birgða­tölum, sem er 56 millj­örðum meira en árið 2014. Þjón­ustu­af­gang­ur­inn hefur aldrei verið meiri.

Aftur á móti jókst vöru­skipta­halli í fyrra svo vöru- og þjón­ustu­jöfn­uður var jákvæður um 155 millj­arða sem er 31 millj­arði meira en árið 2014, sam­kvæmt sam­an­tekt grein­ing­ar­deildar Arion banka.

Eins og greint var frá í gær, í nýrri spá Íslands­banka, er gert ráð fyrir um 30 pró­sent vexti í ferða­þjón­ustu á þessu ári og a gjald­eyr­is­tekjur geti numið 428 millj­örðum króna.

„Sé nánar rýnt í tölur um þjón­ustu­við­skipti má sjá sem fyrr að aukn­ingin og mik­ill útflutn­ingur skýrist að lang­mestu leyti af ferða­þjón­ustu,“ segir í sam­an­tekt grein­ing­ar­deildar Arion banka.

Í grein­ingu er einnig minnst á að inn­flutn­ingur hafi auk­ist hratt að und­an­förnu, en margt bendi þó til þess að í þetta skiptið - ólíkt því sem var á árunum fyrir hrun fjár­mála­kerf­is­ins - sé inni­stæða fyrir þessum aukna inn­flutn­ingi.

„Inn­flutn­ingur jókst mikið í fyrra og súpa sjálf­sagt margir hveljur ef við bendum á að inn­flutn­ingur þá var meiri á föstu gengi heldur en árið 2007. Þrennt verður þó að hafa í huga í því sam­hengi. Í fyrsta lagi hefur hag­kerfið aftur náð vopnum sínum og virð­ist sem hér hafi mynd­ast fram­leiðslu­spenna. Í öðru lagi hefur útflutn­ingur vaxið um 51 pró­sent síðan 2007 svo inn­flutn­ing­ur­inn hefur ekki verið fjár­magn­aður með erlendu lánsfé að þessu sinni með áhætt­unni sem því fylgir. Einnig má benda á að aukin þörf hefur skap­ast fyrir inn­flutn­ing í tengslum við aukin umsvif í útflutn­ings­greinum, sér­stak­lega ferða­þjón­ustu,“ segir í sam­an­tekt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár