Afhendingu á nýju skipi Fáfnis Offshore frestað fram til 2017

Lágt heims­mark­aðs­verð á olíu hefur gert það að verkum að verk­efni þjón­ustu­skipa við olíu- og gas­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó eru hverf­andi.

Polarsyssel, skip Fáfnis Offshore, var afhent fyrir rúmu ári.
Pol­ar­sys­sel, skip Fáfnis Offshore, var afhent fyrir rúmu ári. Mynd: sysselmannen.no

Afhend­ing á Fáfni Viking, skipi í eigu íslenska félags­ins Fáfnis Offshore, hefur verið frestað í annað sinn. Skipið átti að afhend­ast í mars á næsta ári en sam­kvæmt nýju sam­komu­lagi milli Fáfnis og norsku skipa­smíða­stöðv­ar­innar Hayvard Ship Technologies AS, sem skrifað var undir í gær, mun afhend­ing þess frest­ast fram til júní­mán­aðar 2017. Bjarni Ármanns­son, stjórn­ar­for­maður Fáfnis Offshore, stað­festir þetta í sam­tali við Kjarnann. Á meðal þeirra sem hafa fjár­fest háum fjár­hæðum í Fáfni Offshore eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Fáfnir Offshore sér­hæfir sig í þjón­ustu við olíu- og gas­bor­p­alla auk ann­arra verk­efna á norð­lægum slóðum. Fram­kvæmda­stjóri og einn stærsti eig­andi félags­ins er Stein­grímur Erlings­son, en hann stofn­aði félagið árið 2012.

Hrun á heimsmarkaðsverði = engin verkefni

Heim­ildir Kjarnans herma að ástæða frest­un­ar­innar á afhend­ingu á nýja skip­inu sé ein­föld: ástandið á olíu­mark­aði hefur leitt til þess að engin verk­efni séu til staðar fyrir skip eins og Fáfni Viking, sem á að þjón­usta olíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó. Í júní 2014 var heims­mark­aðs­verð á tunnu af Brent-olíu 115,9 dalir. Nú kostar hún 40,74 dali og hefur því lækkað um 65 pró­sent á tæpu einu og hálfu ári.

Fáfnir Viking á að verða tvinn­skip sem verður meðal ann­ars knúið raf­magni. Skipið fékk umhverf­is­verð­laun á Offshore Support Journal ráð­stefn­unni fyrr á þessu ári.

Fáfnir Offshore á einnig skipið Pol­ar­sys­sel, sem var kost­aði yfir fimm millj­arða króna og er dýrasta skip Íslands­sög­unnar. Það skip var afhent haustið 2014 og er með þjón­ustu­samn­ing við sýslu­emb­ættið á Sval­barða um birgða­flutn­inga og örygg­is­eft­ir­lit. Upp­haf­lega gekk sá samn­ingur út á að sýslu­manns­emb­ættið hefði skipið til umráða að lág­marki í 180 daga á ári, eða sex mán­uði. Hina sex mán­uði árs­ins stóð til að nota skipið í verk­efni tengdum olíu- og gas­iðn­að­inum í Norð­ur­sjó. Þau verk­efni hafa hins vegar horfið und­an­farið ár, sam­hliða hinni miklu lækkum á heims­mark­aðs­verði á olíu.

Í októ­ber síð­ast­liðnum var því gerður nýr samn­ingur við sýslu­manns­emb­ættið á Sval­barða. Hann tryggir Pol­ar­sys­sel verk­efni í níu mán­uði á ári. Þessi samn­ingur er eina verk­efni Fáfnis Offshore sem stendur.

Íslenskir lífeyrissjóðir eiga mikið undir

Í nóv­em­ber 2014 var Stein­grímur Erlings­son, fram­kvæmda­stjóri Fáfnis Offshore, við­mæl­andi á fræðslu­fundi VÍB, sem er hluti af Íslands­banka. Þar sagði hann meðal ann­ars að Fáfnir Offshore stefndi að því að vera með 3-4 skip í rekstri á næstu árum. Hægt er að sjá við­talið í heild sinni hér að neðan.

Skömmu eftir að VÍB tók við­tal við Stein­grím, nánar til­tekið í des­em­ber 2014, var til­kynnt að Akur fjár­fest­ingar, fram­taks­sjóður í rekstri Íslands­sjóða, sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis Íslands­banka, hefði keypt 30 pró­sent hlut í Fáfni Offshore fyrir 1.260 millj­ónir króna. Helstu eig­endur sjóðs­ins eru líf­eyr­is­sjóðir, Íslands­banki og VÍS.

Áður höfðu ýmsir fjár­festar komið að félag­inu, meðal ann­ars stjórn­ar­for­mað­ur­inn Bjarni Ármans­son, fyrrum banka­stjóri Glitnis, í gegnum fjár­fest­inga­fé­lag sitt Sjáv­ar­sýn. Þá á félag tengt Havyard ship skipa­smíða­verk­smiðj­unni, sem smíðar bæði skip Fáfnis Offshore, hlut í félag­inu. Það á Horn II, fram­taks­sjóður í rekstri Lands­bréfa, sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis Lands­bank­ans, líka. Helstu fjár­fest­arnir í Horni II eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Horn II á í dag 23,1 pró­sent hlut í Fáfni Offshore.

Tugum skipa hefur verið lagt

Þjón­ust­mark­aður fyrir olíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó hefur hrunið und­an­farið rúmt ár. Tugum skipa sem gerðu út á þennan markað, sem alþjóð­lega nefn­ist „Offshore“-mark­að­ur­inn, hefur verið lagt vegna þess að það eru ekki verk­efni til staðar fyrir þau og oliu­borpöllum í Norð­ur­sjó hefur fækkað mikið. Ástæðan er sú að olíu­verð hefur lækkað svo mikið- það hefur lækkað úr 116 dölum í 40 dali á einu og hálfu ári – að það svarar ekki kostn­aði að vinna olí­una úr þeim lindum sem þar er að finna.

Offshore-borpöllum í Norður-Ameríku hefur einnig fækkað skarpt á þessu tíma­bili. Frá nóv­em­ber 2014 og til loka sama mán­aðar í ár fækk­aði þeim úr 54 í 30.

Fáfnir Offshore tap­aði 3,4 millj­ónum norskra króna á síð­asta ári, eða um 52 millj­ónum íslenskra króna á gengi dags­ins í dag. Velta félags­ins í fyrra var 33,2 millj­ónir norskra króna, eða rúm­lega hálfur millj­arður íslenskra króna. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Fáfnis Offshore fyrir árið 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár