Segir hugmyndir Eyþórs beina árás á samgöngur Grafarvogsbúa

Dagur B. Egg­erts­son segir hug­myndir Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem kynntar voru á íbúa­fundi í Graf­ar­vogi í gær, óraun­sæjar og skorta fram­tíð­ar­sýn og þekk­ingu í sam­göngu- og skipu­lags­málum.

Dagur B. Egg­erts­son segir hug­myndir Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem kynntar voru á íbúa­fundi í Graf­ar­vogi í gær, óraun­sæjar og skorta fram­tíð­ar­sýn og þekk­ingu í sam­göngu- og skipu­lags­málum.

Á fund­inum kynnti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hug­myndir um stór­fellda upp­bygg­ingu í Keldum, þar sem hægt væri að færa stofn­anir og búa til atvinnu­tæki­færi, ásamt byggð sem efla myndi sjálf­stætt og sjálf­bært sam­fé­lag í Graf­ar­vogi.

Í stöðu­upp­fræslu á Facebook segir Dagur fulla ástæðu til að vara borg­ar­búa við þessu, ekki síst þá sem búa í aust­ur­hluta borg­ar­innar og nota Miklu­braut itl að kom­ast leiðar sinna til og frá vinnu.

„Eyþór Arnalds og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leggj­ast gegn Borg­ar­línu og öðrum lykil-leiðum til að létta á umferð­inni. Engu að síður hélt hann fund í gær þar sem hann boðar risa­hverfi í landi Keldna (við Graf­ar­vog). Upp­bygg­ing þar hefur alltaf verið háð því að borg­ar­l­ina verði að veru­leika, sbr. vilja­yf­ir­lýs­ingu ríkis og borgar um við­ræður um Keldna-landið frá síð­asta ári,“ segir Dagur

Hann segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn boða Keldna­hverfi án nokk­urra sam­göngu­lausna og ætli þannig með öðrum orðum að bæta allri umferð frá þessu nýja hverfi inn á Miklu­braut.

„Þetta er mjög van­hugsað og eig­in­lega bara galið. Ég held satt best að segja að íbúar í Graf­ar­vogi, Graf­ar­holti, Úlf­arsár­dal, Árbæ og Breið­holti hafi ekki fengið kald­ari kveðjur í seinni tíð. Þetta er bein árás á dag­legar sam­göngur þessa helm­ings borg­ar­búa og þar með lífs­gæði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár