Ráðleggur dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna að rannsaka FL Group

Í nýrri grein sem birt­ist á Bloomberg- frétta­síð­unni var sagt frá því að grunur leiki á um að FL group hafi verið milli­liður í fjár­tengslum Donald Trump við rúss­neska auð­jöfra.

Fréttastofan Bloomberg segir hugsanlegt að FL Group hafi verið styrkt af rússneskum óligörkum.
Frétta­stofan Bloomberg segir hugs­an­legt að FL Group hafi verið styrkt af rúss­neskum óli­görkum. Mynd: Úr safni

Bloomberg birti í dag grein þar sem frétta­stofan færði rök fyrir því að dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna ætti að skoða fjár­mögnun FL Group vegna hugs­an­legra tengsla við Rússland.

Í frétt­inni segir frá Felix Sater, fyrr­ver­andi rekstr­ar­stjóra fast­eigna­sam­stæð­unnar Bayrock Group og dæmdum fjár­glæfram­anni með teng­ingar við rúss­nesk glæpa­sam­tök. Þrátt fyrir það hafi Donald Trump, Banda­ríkja­for­seti haldið tengslum við Sater þar sem Bayrock og Trump hafi meðal ann­ars staðið að baki bygg­ingu Trump Soho hót­els­ins í Man­hattan.

Einn stærsti bak­hjarl Bayrock var FL Group, fjár­fest­inga­fé­lag í eigu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, en Bloomberg segir Sater hafa nýtt sér þenslu­á­standið á Íslandi árið 2007 og sann­fært FL Group í að fjár­festa í Bayrock.

FL Group er lýst sem hluti af hinum íslensku útrás­ar­vík­ingum, sem sumir hverjir áttu að hafa veitt óábyrg lán, verið með við­skipta­tengsl milli hverja aðra og fram­leitt afvega­leið­andi fjár­hags­upp­lýs­ingar. Einnig eru ummæli Jóns Ásgeirs í við­tali við RetailWeek rifjuð upp þar sem hann lýsir sér frekar sem rokk­stjörnu heldur en við­skipta­manni. Félagið hafi síðan orðið gjald­þrota fyrst allra stórra fyr­ir­tækja á Íslandi í októ­ber 2008.

Bloomberg spurði Ólaf Þór Hauksson, fyrr­ver­andi sér­stakan sak­sókn­ara, og Evu Joly úti í meintar teng­ingar FL group við styrkjum frá rúss­neskum sjóðum. Hvorug þeirra sögð­ust hafa orðið var við neitt slíkt, enda höfðu þau ekki ein­beitt sér að greiðslum og samn­ingum erlendis.

Hins vegar segir annar ónafn­greindur starfs­maður sem var tengdur rann­sóknum í kjöl­far banka­hruns­ins á Íslandi að rúss­neskur pen­ingur hafi lík­lega farið í gegnum bank­ana hér, en það sé umræðu­efni sem Íslend­ingar forð­ist.

Boris Berezovsky, einn stærstu auð­jöfra Rúss­lands, fannst teng­ingin milli Rúss­lands og Íslands aug­ljós. Árið 2009 sagði hann í við­tali við SkyTV að Ísland væri besta dæmi um hugs­an­legan stað þar sem Pútín Rúss­lands­for­seti og vinir hans stund­uðu pen­inga­þvætti. Ísland á að hafa verið hluti af kerfi sem var búið til af Pútín og öðrum hátt settum rúss­neskum emb­ætt­is­mönnum til að kaupa eignir utan Rúss­lands, að sögn Berezovsky. Hægt er að skoða við­talið í Youtube-klippu hér að neðan, talið berst að Íslandi eftir tvær mín­útur og 40 sek­úndur.

Jody Kriss, inn­herji Bayrock, sagði Björgólf Þór Björg­ólfs­son einnig hafa viljað fjár­festa í Bayrock Group. Fyr­ir­tækið hafi hins vegar ákveðið að velja frekar FL Group vegna þess hve náið fyr­ir­tækið var Pútín.

Í nið­ur­lagi frétt­ar­innar segir: „Jafnvel þótt Pútín hafi ekki haft neitt að gera með FL, þá var FL tengt Bayrock með 50 millj­óna dala fjár­fest­ingu. Og Bayrock var við­skipta­vinur núver­andi Banda­ríkja­for­seta. Í ljósi þess gæti verið snið­ugt fyrir dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna að skoða hvaðan pen­ingar Bayrock og FL group komu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár